Ægir - 01.07.1981, Blaðsíða 20
„Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið að
loðnubátum verði heimilt að veiða allt að 30
þús. tonn af þorski á þessu ári. Ákvörðun þessi
miðast við að 37 bátar fari til þorskveiða, ýmist
til netaveiða eða togveiða, en fari færri bátar til
þorskveiða, lækkar heildarþorskkvóti loðnu-
bátanna hlutfallslega. Netaveiðar loðnubáta
mega hefjast 10. febr. n.k. og skulu útgerðarað-
ilar sækja um leyfi til veiðanna til ráðuneytisins
fyrir 6. febrúar n.k.
Um netaveiðar loðnubáta gilda sömu reglur
og um netaveiðar annarra báta, að öðru leyti en
því að hverjum bát er óheimilt að veiða meira en
800 tonn af þorski og er það magn miðað við allt
árið.
Sérreglur þær sem gilt hafa undanfarnar tvær
vertiðar um netaveiðar loðnubáta eru felldar
niður.
Loðnubátar þeir, sem fara til togveiða mega
einnig hefja veiðar 10. febr. n.k. Loðnubátarnir
falla allir undir ,,skrapdagakerfið“ án tillits til
lengdar báta og skulu þeir taka a.m.k. 25 skarp-
daga á tímabilinu 10. febr. til 30. apríl n.k. Að
öðru leyti gilda sömu reglur um veiðar þessara
báta og um veiðar skuttogara.
Komi til aukningar loðnukvótans frá því sem
þegar hefur verið ákveðið, verður þeirri aukn-
ingu skipt milli einstakra loðnubáta, sem ekki fá
aftur á móti leyfi til netaveiða. Taki togskip
aftur á móti þátt í þeim loðnuveiðum, telst sá
timi ekki ,,skrapdagar“, sem þær veiðar taka.“
Og hinn 28. febrúar gaf sjávarútvegsráðuneytið
út reglugerð nr. 133 um viðauka við reglugerð nr.
425, 11. ágúst 1980, um veiðar á loðnu haustvertíð
1980 og vetrarvertíð 1981, sbr. reglugerð nr.
593/1980. Samkvæmt hinni nýju reglugerð var 28
bátum veittur viðbótarkvóti, frá 1. marz að telja, til
frystingar og hrognatöku, sem nam 60.130 tonn-
um, og skiptist þetta magn eftir sömu reglum og
fyrr (sjá 5. tbl. Ægis 1980).
í febrúarlok höfðu 28 skip af 40 fyllt fyrri kvóta
sinn og hætt veiðum. Þá var heildaraflinn frá ára-
mótum um 86.250 tonn á móti 291 þús. tonnum á
sama tíma í fyrra.
í byrjun marsmánaðar var loðnugangan komin
vestur undir Hrolllaugseyjar og gekk hægt vestur
með landinu. Fyrstu daga mánaðarins var nokkur
ótið og fáir bátar komnir á miðin, en þeim fór ört
fjölgandi, því eins og áður er um getið fengu 28
bátar viðbótarkvóta. Hinn 9. mars fannst einnig
loðna vestan við Vestmannaeyjar (svæði 320) og
næstu daga var góð veiði bæði á því svæði svo og
við Ingólfshöfða. Besti veiðidagur mánaðarins var
þann 15., en þá fengu 16 bátar um 9.690 tonn. Er
líða tók á mánuðinn fór skipum ört fækkandi, enda
höfðu þau þá fyllt kvóta sinn og í lok mánaðarins
voru aðeins tvö skip er áttu ófylltan kvóta.
Um mánaðamótin var loðnan komin vestur
undir Reykjanes. Síðasti loðnufarmurinn á vertíð-
inni barst á land þann 8. apríl og þar með lauk ver-
tíðinni að þessu sinni.
Heildaraflinn varð samtals 155.953 tonn, 42
Ljósm.: Friðþjófur. Ljósm.: Friðþjófur.
372 — ÆGIR