Ægir - 01.08.1981, Side 19
ar bænda í Grýtubakkahreppi, merks þáttar í
'slenzkri útgerðarsögu. Þess hefir verið getið til, að
ermóður hafi ekki verið fyrsta þilskipið, sem
0rsteinn byggði að nýju, heldur skip, sem hann
afi byggt veturinn 1854-55. Er saga þess máls
rakin hér að framan og óþarfi að endurtaka hana
er- Sumir hafa einnig getið sér þess til, að
0rsteinn hafi byggt Hermóð veturinn 1854-1855
og að hann sé skipið, sem getið er í aflafrétt
orðra haustið 1855 sem þilskips auk Orra og
tnervu. Þetta fær þó engan veginn staðizt.12
Ekki er svo að sjá sem árið 1856 hafi orðið hinu
jraesta á undan miklu lakara hvað aflamagn snerti.
orðri getur þess í júlí, að hákarlsafli hafi orðið
8°ður, einkum þó á þilskip og ætti það að verða
efnamönnum hvöt til þess að koma sér upp slíkum
^kipum. í október birti Norðri aflaskýrslu úr
rýtubakkahreppi, og af henni er ljóst, að þar
lafa aflazt 31.038 kútar lifrar eða 776 tunnur lýsis,
sern að peningaverðmæti nam 20.952 rd., og er
bað svimandi há upphæð fyrir einn hrepp. Skyldi
n°kkurn furða, þótt slíkt ævintýri, sem raunar
minnir mest á sögurnar um Klondyke, yrði mönn-
Um hvatning til enn frekari athafna. Aftur á móti
s 'ýrir Norðri einnig frá því, að hefðu hákarlamenn
Selt >ýsi sitt á ísafirði, hefðu þeir fengið 1552 rd.
meira fyrir sama aflamagn þar, en þeir fengu á
^kureyri.
Nú fór líka árangur hinna miklu aflameta
undanfarandi ára að koma greinilega í ljós, og þil-
skipum fjölgaði óðum við Eyjafjörð. Vorið 1857
kom Jón Loftsson frá Grenivík siglandi til landsins
á jakt, er hann hafði keypt í Danmörku, en þangað
hafði hann haldið haustið áður til náms í sjó-
mannafræðum. Með sér flutti Jón vörur til ýmissa
verzlana á Norðurlandi, og verður þessi atburður
því að teljast einhver hinn merkasti í norðlenzkri
sögu siðari alda. Einnig kom þetta vor til landsins
jakt, sem Þorsteinn á Skipalóni hafði látið kaupa
erlendis þá um veturinn. Það er því vart unnt að
segja, að þetta vor hafi verið viðburðarsnautt við
Eyjafjörð, en sem betur fór má segja, að sumarið
hafi orðið eyfirzkum útvegsmönnum jafn tekjuríkt
og vorið varð viðburðarríkt. Ella er hætt við því,
að margur hefði beðið tjón af djörfung sinni og
athafnasemi. Norðri er heldur fáorður um það,
hvernig útvegurinn hafi gengið fyrir sig þetta
sumar, segir aðeins, að skipastóll til hákarlaveiða
hafi aukizt stórlega og að afli hafi verið góður þá
loksins menn hafi komizt út. En það var annað,
sem varð til þess að örva útvegsmenn við
Eyjafjörð. Verð á hákarlalýsi hafði farið stig-
hækkandi undanfarin ár, en nú hækkaði það í 35
rd. á tunnuna, enda var það nú orðinn einhver út-
gengilegasta vara, sem hinn annars svo fáskrúðugi
íslenzki markaður hafði að bjóða. Þegar rætt er
ÆGIR — 427