Ægir

Årgang

Ægir - 01.08.1981, Side 21

Ægir - 01.08.1981, Side 21
‘nn stöðugt, og árið 1861 var hann orðinn alls 32 P'lskip, eða nærri því hámarki, sem hann náði.16 Svo sem fram hefir komið, er ritgerð þessi að all- ni'klu leyti byggð á þeim heimildum, sem hin yrstu norðlenzku blöð veita, og fram til þessa á orðra. Sú breyting verður á norðlenzkri aðaútgáfu um áramótin 1861-62, að Norðri rettir að koma út, en Björn Jónsson hefur útgáfu nýs blaðs, Norðanfara. Með Norðanfara verða n *ar heimildir um hákarlaútveg við Eyjafjörð æði fyllri 0g þetri, enda Björn Jónsson eins og a ur hefir verið getið, hinn mesti áhugamaður um utvegsmál og sjósókn. Ekki er þó sami eldmóður- lnn í skrifum Björns Jónssonar nú og í upphafi, enda varla von. Þegar hér er komið sögu er ny.iabrumið farið af þilskipaútgerðinni, hún vex e ki mikið hvað skipatölu snertir, ævintýrið er °rðið að raunveruleika, og í hönd fer þroska- f eiðið með miklum þjóðfélagsbreytingum, sem af PVl leiða. Ekki má þó skilja þetta svo, að hinn storhuga ritstjóri hvetju ekki Norðlendinga til . a°a sern fyrr, öðru nær. Nú er hins vegar breyt- lngin orðin sú, að þeir eru orðnir fremstir og verða J1 ekki lengur hvattir til dáða með frásögnum af a rekum annarra. Ritstjórinn talar því í tón þess, sent valdið hefur. 1 aPríl 1862 getur Norðanfari þess, að gæftir séu stirðar og að ísalög hafi hamlað veiðum. okkur skip höfðu þó náð legu fyrir páska og Ur u hæstu hlutir 42 kútar lifrar. Ekki var þetta að I 'su neinn metafli, en gæta verður þess, að í einni e§u, sem varla hefur orðið miklu lengri en í mesta ^agi þrjár vikur, hafa hásetar haft u.þ.b. árskaup ■nnumanns. Þess verður þó að gæta, að vöruverð °r hækkandi á þessum árum. Af næstu blöðum er $a Ijóst, að heldur hefir útlitið vænkazt eftir því, em á leið vertíðina, því að í mai skýrir Norðanfari ra því, að hákarlsafli sé afbragðsgóður hjá sum- a?1’en hvergi lakur. Það kemur fram í sömu frétt, j. nákarlamiðin eru að fjarlægjast landið og sínar j.0rnu stöðvar, enda segir Norðanfari, að sum ey- lrzku skipin hafi sótt allt vestur fyrir Hornstrandir j,8 liggi fram af miðum ísfirðinga á allt að 300 a ma dýpi, en sjálfir liggi ísfirðingar á 100—150 a ma dýpi. Segir blaðið eyfirzku skipin yfirleitt sk' 3 ^ ^ vaðarhöld á borði, þá hákarl sé undir og 'Pverja hvorki neyta svefns né matar svo ekl^rUm l^e^ Þetta 1 huga telur blaðið það við ' ^ur^a’ Þótt Eyfirðingar afli bezt hákarl hér land, er þeir séu bæði hinir harðfengustu sjósóknarar og hafi auk þess beztan útbúnað. í júníblaði 1862 getur Norðanfari þess, að þilskip, sem þá um sumarið voru gerð út á millum Tjörness og Skaga, væru alls 32 að tölu, þar af höfðu 8 verið keypt utanlands frá. í skýrslu, sem birtist í Norðanfara sumarið 1863, kemur í ljós, að á vertíðinni 1862 öfluðu skipin á millum Tjörness og Skaga í alls 1763 tunnur lýsis, þar af öfluðu eyfirzku skipin í 991 tunnu, en þau þingeysku í 690 tunnur. Ef miðað er við, að þetta sumar hafi í kauptíð fengizt 27 rd. fyrir tunnuna, nemur þetta aflamagn að heildarverðmæti um 47 þús. rd., sem vart getur talizt mjög mikið, en þó varla lélegt að heldur. Þótt þannig megi segja, að árið 1862 hafi verið heldur í lakara lagi, hvað aflamagn snerti, er það að mörgu leyti athyglisvert fyrir okkur nútíma- menn. Það, sem fyrst vekur athygli, eru sagnirnar í Norðanfara um það, að ísalög voru fyrir Norður- landi i apríl, en hákarlamenn náðu þó einni legu fyrir páska. Þetta virðist gefa til kynna, þótt oft megi telja að jaðri við fífldirfsku, að menn voru orðnir kjarkmeiri og skirrðust síður en fyrr við að bjóða hinum forna vágesti byrginn og sigruðust líka á honum. Þá ber frásögnin um sókn Eyfirðinga á mið ís- firðinga þess glöggan vott, að menn létu það ekki lengur á sig fá, þótt hákarlinn fjarlægðist landið og gangi ekki á sín fornu mið uppi við fjörusteina. Þeir voru orðnir færir um að leita eftir honum og fylgja honum eftir, ef svo bar undir. Það er jafnvel ekki ólíklegt, að sagnirnar um það, er „mikli skip- stjórinn” Jón Loftsson frá Grenivík fór á hákarla- veiðar norður við Jan Mayen, séu einmitt frá þessu ári. Árið 1863 birti Norðanfari mjög litlar aflafregn- ir, en ljóst er þó, að það ár aflaði Steinn Jónsson á Svæði i Höfðahverfi á þilskip sitt 180 tunnur lýsis, er nemur um 300 rd. í hlut. Af fréttum í Norðan- fara má sjá, að lýsisverð var fremur gott þetta sumar eða 28 rd. á tunnuna. Af þeirri einu frétt, sem vitnað var til hér að framan, er þó ekki auðvelt að geta sér nákvæmlega til um heildaraflann þetta sumar, því að Steinn var, eins og viðurnefni það, er honum var gefið bendir til (afla-Steinn), mjög mikil aflamaður, en svo er að sjá sem árið hafi verið í meðallagi. Árið 1864 var gott aflaár, en í marz 1865 birti Norðanfari skýrslu yfir afla þess. Segir, að með hörmungum hafi tekizt að reita skýrsluna saman ÆGIR — 429

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.