Ægir - 01.08.1981, Side 56
í skipinu eru tvær ísvélar frá Finsam, af gerð
VIP 10 IMS, afköst 10 tonn á sólarhring hvor. ís-
vélar eru í þilfarshúsi, s.b.-megin aftast undir hval-
baksþilfari, en á neðra þilfari, undir ísvélaklefa, er
einangruð og klædd ísgeymsla, um 16 m3 að stærð,
og er ísinn fluttur þaðan með snigli að lest.
Loft vinnuþilfars er einangrað með 150 mm
steinull og klætt með 11 mm plasthúðuðum kross-
viði, en siður eru einangraðar með polyurethan og
klæddar með stálplötum.
Fisilest:
Fiskilest er um 600 m3 að stærð og gerð fyrir
fiskkassa. í lest er unnt að koma fyrir 3800 90 1
fiskkössum. Stálklæðning í síðum lestar er löguð
fyrir stöflun á kössum og því engir álpallar. Lestin
er einangruð með polyurethan og klædd að innan
með 5-6 mm stálplötum. Kæling í lest er með kæli-
leiðslum í lofti lestar.
Myndin sýnir frágang í lest, en stálklceðning í síðum er löguð
fyrir stöflun á kössum. Ljósm.: Skipatœkni h/f, Bárður.
í lest er rafknúið færiband, bæði til að flytja
fisk og ís. Eitt lestarop (2400 x 2200 mm) er aftar-
lega á lestinni, með álhlera á lömum sem búin er
fiskilúgu, en að auki er ein minni lúga (fiskilúga)
framan við aðallúgu. Á efra þilfari, upp af lestar-
lúgu á neðra þilfari, er ein losunarlúga (3000 x
3160 mm) með stálhlera slétt við þilfar. Fyrir af-
fermingu á kassafiski eru tveir kranar.
Vindubúnaður, losunarbúnaður:
Aðalvindubúnaður skipsins er frá Brusselle og er
um að ræða tvær togvindur, fjórar grandaravind-
ur, tvær hífingavindur, tvær hjálparvindur,
flotvörpuvindu og akkerisvindu. Allar Brusselle
vindur, að undanskildum hjálparvindum á aftur-
þilfari, eru rafknúnar. Annar vindu- og losunar-
búnaður eru tvær litlar hjálparvindur og losunar-
kranar, sem er vökvaknúið, og tvær kapalvindur
fyrir netsjártæki, sem eru rafknúnar.
Aftantil á togþilfari, s.b,- og b.b.-megin, aftan
við þilfarshús fyrir togvindumótora, eru tvær tog-
vindur (splittvindur) af gerð 3602 S.
Tœknilegar stærðir (hvor vinda):
Tromlumál ...........520mm°x 1540mm“x
1430 mm
Víramagn átromlu.....1400 faðmar af 3Vi” vír
Togátak á miðja tromlu .. 10.0 t
Dráttarhr. á miðja tromlu 110 m/mín
Rafmótor.............BBC, GN 315-M34F
Afköst mótors........275 hö við 894 sn/mín
Spenna, straumur.....390 V, 551 A
Fremst í hvalbak eru fjórar grandaravindur
gerð EL 6-1. Hver vinda er með einni tromln
(406mmHx 980mm°x 645mm) og knúin af 61
BBC 3ja hraða riðstraumsmótor, togátak á tóma
tromlu (435mm°) 6.0 t og tilsvarandi dráttarhraði
55 m/mín miðað við 3. hraðastig.
Aftan við yfirbyggingu á hvalbaksþilfari eru
tvær hífingavindur af gerð EL 8. Hvor vinda er
með einni tromlu (406mm°x 630mm°x 430mm)
knúin af 48 KW BBC 3ja hraða riðstraumsmótor,
togátak á tóma tromlu (435mm°) 8.0 t og tilsvar-
andi dráttarhraði 32 m/mín miðað við 2. hraða-
stig.
Aftast á togþilfari, s.b.- og b.b.-megin við skut-
rennu, eru tvær hjálparvindur af gerð HL 7. B.b-'
vindan er með tveimur útkúplanlegum tromluu1
464 — ÆGIR