Ægir - 01.08.1981, Blaðsíða 34
5. mynd. Útbreiðsla sumargotssíldarinnar í Beruftrði i desember
1980. Myndin sýnir að síldin var um alla Fossárvík en mjög lítið
fannst annars staðar í Berufirði þótt aðeins yrði síldar vart úti við
Teigarhorn en þar tókst ekki að mæla síldina með bergmálsaðferð-
um.
7. mynd. Útbreiðslusvœði síldar í Mjóaftrði í desember 1980.
Myndin sýnir að síldartorfan hélt sig inni við fjarðarbotn, eingöngu
innan við Asknes og að mestu innan við Borgareyri.
STAOAREYRl fOSSÍRVÍK SKÁIAVÍK TCiGARTANGl OJÚPtVOGUR
6. mynd. Langskurður af sildartorfunni á Fossárvík og sjávarhiti í
Beruftrði. Myndin sýnir að síldartorfan var allt að því 30 metra
þykk þar sem hún var þykkust á Fossárvík. Sjávarhitinn í ftrðinum
var svo til jafn um allan fjörðinn eða tæp tvö stig.
BORGAREYRl ASKNCS BREKKA
8. mynd. Langskurður af síldartorfunni í Mjóaftrði og sjávarhiti i
ftrðinum á þremur mismunandi stöðum. Myndin sýnir að torfan er
þykkust inni við fjarðarbotn, innan við Miðeyri. Sjávarhitinn
virðist mjög jafn um allan fjörðinn bœði djúpt og grunnt, rúm þfJu
stig.
drógu margir þá ályktun, að síldin færði sig á milli
fjarða með stuttu millibili. Hér skal ekki fullyrt um
það hvort svo hafi verið en athuganir okkar í des-
ember benda þó fremur til hins að síldin hafi
haldið sig meira eða minna í flestum fjarðanna.
Taka verður tillit til þess að gífurlegur floti tók
þátt í veiðunum. í þröngum fjörðum hefur því
komið mikil styggð að síldinni og virðist hún þá
leita alveg upp í fjöruborð. Því er hugsanlegt, að
þessar brellur síldarinnar hafi valdið því, að hún
virtist hverfa dögum saman úr tilteknum fjörðum
en fannst þá óvænt i öðrum. Ég tel alveg einsæú
að haustið 1980 hafi verið unnt að veiða leyfilegan
hámarksafla á mjög ódýran hátt með landnótum-
Enda þótt ekki sé ætlunin að mæla með því a^
landnótaveiðar verði teknar upp að nýju verður
ekki komist hjá því að benda á þann óheyrileg3
kostnað, sem er við síldveiðar eins og nú standa
sakir.
Á síðastliðnu hausti varð Austfirðingum að von-
um mjög tíðrætt um það að nú hefði verið hafm
nýtt síldarævintýri á Austfjörðum. Hér að framau
442 — ÆGIR