Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1981, Síða 64

Ægir - 01.08.1981, Síða 64
FISKVERÐ Fiskbein og fiskslóg Nr. 9/mi. Verðlagsráð sjávarútvegsins hefur ákveðið eftirfarandi lágmarksverð á fiskbeinum, fiskslógi og heilum fiski til mjölvinnslu svo og á lifur frá 1. júní til 30. september 1981. a) Þegar selt er frá fiskvinnslustöðvum til fiskimjölsverksmiðja: Fiskbein og heill fiskur, sem ekki er sér- staklega verðlagður, hvert tonn ......... kr. 125.00 Karfa- og grálúðubein og heill karfi og grálúða, hvert tonn ..................... — 180.00 Steinbítsbein og heill steinbítur, hvert tonn — 81.25 Fiskslóg, hvert tonn .................... — 56.25 b) Þegar heill fiskur er seldur beint frá skip- um til fiskimjölsverksmiðja: Fiskur, sem ekki er sérstaklega verð- lagður, hvert tonn ....................... kr. 106.40 Karfi og grálúða, hvert tonn ............. — 153.20 Steinbítur, hvert tonn ................... — 69.15 Verðið er miðað við, að seljendur skili framangreindu hráefni i verksmiðjuþró. Karfa- og grálúðubeinum skal haldið aðskildum. Lifur (bræðsluhæf, seld frá veiðiskipi til lifrarbræðslu): 1) Lifur, sem landað er á höfnum frá Akra- nesi austur um til Hornafjarðar, hvert tonn ................................. kr. 1000.00 2) Lifur, sem landað er á öðrum höfnum, hverttonn ............................ — 780.00 Verðið er miðað við lifrina komna á flutningstæki við hlið veiðiskips. Reykjavík, 3. júní 1981. Verðlagsráð sjávarútvegsins. Kolmunni Nr. 12/1981. Verðlagsráð sjávarútvegsins hefur ákveðið eftirfarandi lágmarksverð á kolmunna til bræðslu frá 1. júní til 30. september 1981: Hvert tonn kr. 255.00 Verðið er miðað við 3% fituinnihald og 19Vo fitufrítt þurrefni. Verðið breytist um kr. 17.70 til hækkunar fyrir hvert 1%, sem fituinnihald hækkar frá viðmiðun og hlutfalls- lega fyrir hvert 0.1%. Verðið breytist um kr. 26.50 til hækkunar eða lækkunar fyrir hvert 1%, sem þurrefnis- magn breytist frá viðmiðun og hlutfallslega fyrir hvert 0.1%. Auk verðsins, sem að framan greinir, skal lögum samkvæmt greiða fyrir kolmunna 7.5% olíugjald og 10% gjald til stofnfjársjóðs fiskiskipa, sem ekki kemur til skipta. Fituinnihald og fitufrítt þurrefnismagn hvers kol- munnafarms skal ákveðið af Rannsóknastofnun fisk- iðnaðarins eftir sýnum, sem tekin skulu sameiginlega af fulltrúa veiðiskips og fulltrúa verksmiðju, eftir nánari fyrirmælum Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins. Sým skulu innsigluð af fulltrúa veiðiskips með innsigli við- komandi skips. Verðið er miðað við að seljendur skili kolmunna a flutningstæki við hlið veiðiskips eða í löndunartæki verksmiðju. Ekki er heimilt að nota aðra dælu en þurr- dælu eða blanda vatni eða sjó í hráefni við löndun. Verðuppbætur: Með vísun til laga nr. 4 frá 1. febrúar 1980 skal greiða 50% uppbót á framangreint verð kolmunna allt veiði- tímabilið. Uppbót þessi greiðist úr verðjöfnunardeild Aflatryggingarsjóðs og annast Fiskifélag íslands greiðsl- urnar til útgerðaraðila eftir reglum, sem sjávarútvegs- ráðuneytið setur. Reykjavík, 30. júní 1981- Verðlagsráð sjávarútvegsins. Hörpudiskur og rækja Nr. n.mi■ Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur ákveðið eftirfarandi lágmarksverð á hörpudiski og rækju frá L júní til 30. september 1981. Hörpudiskur í vinnsluhæfi ástandi: a) 7 cm á hæð og yfir, hvert kg ...... kr. 2.18 b) 6 cm að 7 cm á hæð, hvert kg ...... — 1 -79 Verðið er miðað við að seljendur skili hörpudiski a flutningstæki við hlið veiðiskips og skal hörpudiskurinn veginn á bílvog af löggitlum vigtarmanni á vinnslustað og þess gætt, að sjór fylgi ekki með. Verðið miðast við gæða- og stærðarmat Framleiðslu- eftirlits sjávarafurða og fari gæða- og stærðarflokkun fram á vinnslustað. Rækja, óskelflett í vinnsluhæfu ástandi: a) 160 stk. og færi í kg. hvert kg ......... kr. 7.23 b) 161 til 180 stk. í kg. hvert kg ......... — 6.31 Framhald á bls. 467■ 472 — ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.