Ægir

Volume

Ægir - 01.02.1983, Page 22

Ægir - 01.02.1983, Page 22
Verksmiðjan var opnuð í október 1938 og stóð við Lindargötu í Reykjavík. Ekkert var til verksmiðj- unnar sparað og sögðu erlendir sérfræðingar að hún stæði ekki að baki nýtísku verksmiðjum er- lendis. Niðursuðuverksmiðjan veitti tugum manna atvinnu. í niðursuðuverksmiðju SÍF var unnt að sjóða og leggja niður flestar tegundir sjávarafurða, græn- meti og fleira. Meðal vörutegunda, sem verksmiðj- an framleiddi, voru reykt síld, gaffalbitar, síldar- flök, fiskbollur, gulrætur og grænar baunir. Fram- leiðslan var bæði seld innanlands og utan og fór mikið af útflutningnum til Bandaríkjanna. Rekst- ur verksmiðjunnar gekk misjafnlega þau ár sem S.Í.F. starfrækti hana en verksmiðjan var seld árið 1952. Þá töldu menn að hún hefði lokið því for- gangsverkefni sem henni var ætlað í upphafi, þ.e. að sýna hvað hægt væri að gera í niðursuðumálum hér á landi. Samdráttur í seinni heimsstyrjöld Seinni heimsstyrjöldin hafði i för með sér stór- felldan samdrátt í saltfiskframleiðslu íslendinga. Árið 1945 var t.d. sú framleiðsla, sem S.Í.F. hafði til umráða, komin niður i 745 tonn. Á stríðsárunum var megnið af fiskframleiðslu íslendinga flutt út sem isfiskur eða freðfiskur. Gerðir voru viðtækir samningar við Breta og Bandaríkjamenn en fiskurinn fór aðallega til neyslu í Bretlandi. Þar var nægur markaður öll stríðsárin fyrir allan þann fisk sem íslendingar gátu framleitt og fór megnið af saltfiskframleiðsl' unni einnig þangað. Vegna sölusamninganna við Breta og Banda' ríkjamenn dró verulega úr saltfiskframleiðslu Is' lendinga á striðsárunum og þótt samningununi hefði ekki verið til að dreifa er vísast að lítið hefð' verið fengist við saltfiskverkun. Bæði var hægt að losna við áhættu af verkuninni og fá skjóta greiðslu fyrir fiskinn nýjan. Auk þess skorti fólk til að verka fiskinn. Heimsstyrjöld og hernám höfðu fært íslendingum björg í bú og atvinnuleysi hvarf eins og dögg fyrir sólu. Siðast en ekki síst reyndis1 ókleift vegna ófriðarins að fá saltfisk fluttan til þeirra landa sem áður höfðu keypt megnið af salt' fiskframleiðslu íslendinga. Ýmsir voru þeirrar skoðunar á stríðsárunum að saltfiskverkun hér á landi væri nú að syngja sitt síðasta og að í framtíðinni mundi þorskfiskafli Is' lendinga einkum verða seldur ísaður og hraðfryst' ur. Þeir menn voru þó til sem töldu þetta fjarstaeðu eina og að öldungis væri víst að sala á saltfisk' mundi hefjast á ný þegar aðstaða skapaðist til að hafa bein sambönd við gömlu saltfiskmarkaðina- Bjartsýnismennirnir bentu á að þjóðirnar við Mið' jarðarhaf hefðu öldum saman étið saltfisk og hefðu ekki misst lystina á honum þótt þær hefðn orðið að vera án hans um stundarsakir að meira eða minna leyti. Þegar frá leið kom i ljós að þetta sjónarmið var á rökum reist. Rétt úr kútnum Eftir stríð var tekið til við að styrkja og endut' heimta ýmsa þá markaði sem saltfiskframleiðsla íslendinga hafði byggst á um fjölda ára fyrir stríð- 70 — ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.