Ægir

Volume

Ægir - 01.07.1985, Page 11

Ægir - 01.07.1985, Page 11
fjskjar v®'ar fífa hreistrið af Um 6n vaicfa um nokkr- gallj ernrr|dum á roðinu. Þetta er sneittS|!rn æskilegt væri að geta tj|ra .Ja- Norðmenn hafa gert slóoj tnjr, með notkun ensíma úr te|ja l ^ess a& hreistra karfa og skemla nnig megi komast hía Unnl- ■ Um a r°ðinu. Samkvæmt hraðfSln8Um fra Sölumiðstöð mark^St'hrÚSanna er nú góður ee , Ur f^rir ýsuflök með roði, hreíctaU|Penciur vilJa hafa Þau kvaemr aUS‘ Ýsan er M við- nota Ur,ílskur að illa gengur að án k 8lbunað við hreistrunina vaerj6? skemma fiskinn. Það athup?l' mfög áhugavert að ensím ri L0,t hægt væri að nota ið, 1 Þess að losa ýsuhreistr- Fiskeldi •eeima3513 sti§ið i eldi flestra fisk- a (eftir klak) er hin svokall- aða startfóðrun. Hér er um að ræða fóðrun fyrstu dagana eða vikurnar sem seiðin taka til sín utanaðkomandi næringu. Margar fisktegundir, sem nú er verið að reyna að ala, verða að fá lifandi næringu sem startfóður, t.d. lif- andi smákrabbadýreða þörunga. Ástæðan fyrir þessu er m.a. talin vera sú að meltingarfæri þessara fiska myndi ekki meltingarensím fyrr en nokkru eftir að þeir byrja að taka fóður. Ef þetta er raunin verða seiðin að fá virk meltingar- ensím með fæðunni. Það er ýmsum erfiðleikum háð og kostn- aðarsamt að nota lifandi start- fóður og væri því heppilegra að geta í þessum tilfellum notað til- búið startfóður, sem blandað væri virkum meltingarensímum. Þetta hefur þó ekki tekist ennþá, enda er mjög takmörkuð þekking fyrir hendi á meltingarstarfsemi þeirra fisktegunda, sem nú eru háðar lifandi startfóðri. Lokaorö Ég hef reynt að draga fram nokkur dæmi um notkun ensíma í iðnaði og nefnt nokkra mögu- leika sem áhugavert gæti verið fyrir okkur að gefa gaum. Það er vert að undirstrika, að við þurfum varla að vænta neins árangurs á sviði sem þessu frekar en öðrum tæknisviðum nema að undan- gengnum' öflugum grunnrann- sóknum. Það eru fyrst og fremst grunnrannsóknirnar sem skapa þann þekkingargrundvöll sem tæknin byggir á. Eitthvað af þess- ari þekkingu getum við sótt til annarra landa, en við þurfum jafnframt að reikna með að inn- lendar grunnrannsóknir séu veiga- mikill þáttur í uppbyggingu á íslenskri líftækni. Það er einnig mikilvægt að slíkar grunnrann- sóknir séu stundaðar í nánum tengslum við þær atvinnugreinar sem þær eiga að þjóna ef einhver raunhæfur árangur á að fást. BETRI MEÐFERÐ AUKINGÆÐI handbragð þitt skiptir máli RIKISMA T SJÁ VARAFURÐA ÆGIR-367

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.