Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1985, Blaðsíða 38

Ægir - 01.10.1985, Blaðsíða 38
verið talinn enda langlærður hjá Englendingum, hann hafði 108 krónur, Jóel Jónsson, síðar sjálfur togaraskipstjóri, hafði 75 kr. og svo einir fimm af hásetunum með 65 kr., svo voru strákarnir Guð- mundur Jónsson með 50 kr. og Jón Tómasson með 50 kr. Kaup Sigurðar Hanssonar er illskiljan- legt, 40 kr., því að Sigurður var áreiðanlega búinn að vera lengi með Englendingum og vanurtog- aramaðurorðinn. Kolamokarinn, Sigurbjarni Guðnason, var með 65 kr., 2. maksinmeistari, Fredrik Jensen með 100 kr. 1. maskin- meistari, Ólafur Jónsson, með 160 kr., 2. stýrimaður og jafn- framt bátsmaður, Bergur Pálsson, hafði 126 kr., 1. stýrimaður, Kol- beinn Þorsteinsson, hafði 150 kr. og prósentur af nettóafla, hvernig svo sem hann hefur verið reikn- aður. Lifrarhlutur var enginn fyrstu árin, eins og sjá má af ráðningar- samningum og aflaskýrslum, lifrin ekki hirtásumum skipanna, t.d. á Forsetanum 1907 og 1908 eða útgerðin tók hana til sín (Coot). Svo virðist sem mönnum hafi verið borgað kaup eftir því sem andinn inngaf skipstjóran- um. Hann hefur metið karlana í fjöru. Sjálfsagt þekkt þá flesta og kannski hafttil hliðsjónarsjóferða- vottorð eða sjóferðabækur, en í þær var skráð sitthvað um ágæti manna eða öfugt. Við ákvörðun mánaðarkaups- ins mun einhver hliðsjón þó hafa verið höfð af fastakaupi fullgildra háseta og viðvaninga á fragt- og farþegaskipum þess tíma og í stöku tilviki einnig af kaupinu á ensku togurunum. Þar var „third hand" fullgildur háseti með 21 sh. á viku og að auki sem svaraði 10 sh. í lifrarhlut. í shilling voru 90 aurar og þetta svarar því til meðalhíru 28 kr. ísl. á viku eða um 112 kr. á mánuði sem er svipað og Páll Jónsson hafði á Forsetanum. Páll hefur verið í aðstöðu til að heimta sama kaup og greitt var á enskum togurum en yfirleitt var kaup manna á Forsetanum lægra en gerðist á ensku togurunum. Þess er þó að gæta að úthaldið var ekki eins jafnt á ensku togurunum og þeim íslensku. Forsetanum og Marzinum var haldið úti nær allt árið og úthald togaranna var yfirleitt þannig ársúthald, aðeins stoppað tíma ur sumrinu til að þrífa, þar til kom fram í kreppu, að þeir voru bundnir tímum saman vegna verðfalls og aflaleysis. Togararnir fóru á saltfiskvertíð- ina í byrjun febrúar og voru að framí endaðan maí eða byrjun júní, þá varskipiðþrifiðogdyttað að ýmsu sem lagfæra þurfti, síðan verið á síld framí september, og þá tók við ísfiskirí allt haustið til áramóta og áfram út janúar i byrjun næsta árs. Því er það, að þótt kaupið sýn- ist hafa verið lágt á togurunum þá höfðu menn yfirleitt meira upp á þeim en öðrum fiskiskipum. Hlutir á árabátunum og vélbát- unum, sem voru sem óðast að koma á þessum sama tíma og fyrstu togararnir, gátu orðið meiri á vetrar- og vorvertíð en nam kaupinu á togurunum á sama tíma í miklum aflaárum í hinum einstöku verstöðvum, en árstekjur sjómanna á þessum bátum náðu sjaldan kaupi togara- manna fyrir árið og oftast miklu minna. Sama var að segja um tekjurmannaáskútunum. Þarvar algengt að menn hefðu upp 3- 400 krónur á 8 mánaða úthaldi og í góðum aflaárum 5—600 krónur. Þá var það og til á skút- unum að hörðustu færamenn hefðu upp 1000 krónur en líka hitt að þeir linustu hefðu ekki nema 200 krónur eða svo. Þótt ekki kæmi til lifrarhlutur sem hét á fyrstu togurunum, þa höfðu menn þar til jafnaðar meira upp en aðrir fiskimenn og meira en landverkafólk þó vinna vaeri stöðug. Eftir að komin var regla á lifr' arhlutinn, þá gerði hann sem svaraði 10-12 krónur á mánuði og fastakaupið þá 70 krónur hja 586-ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.