Ægir - 01.04.1987, Side 10
194
ÆGIR
4/87
ingu. Því miður tókst ekki að
framleiða upp í gerða samninga.
Ástæður voru m.a. minnkandi
karfaafli og óhagstæð verð miðað
við verðlag á öðrum mörkuðum.
Einsýnt er, að ef þessi viðskipti
eiga að halda áfram með svip-
uðum hætti og áður fyrr, verður
sovéski markaðurinn að borga
sama verð og fæst á öðrum
mörkuðum fyrir sambærilega
vöru. Ýmislegt bendir til að sala
frystra sjávarafurða muni aukast
til ýmissa landa á meginlandi Evr-
ópu á næstu árum.
Sölufyrirtæki eriendis
íslendingar eiga nokkur fyrir-
tæki erlendis, sem annast sölu
frystra sjávarafurða á helstu
mörkuðum. Er þetta í samræmi
við nútímaviðskiptahætti, þar
sem framleiðandinn reynir að
fylgja vöru sinni eftir á þeim
mörkuðum, sem eru hvað mikil-
vægastir. í sölu matvæla hefur
þetta enn meiri þýðingu en í sölu
annarra vöruflokka. Ræður hér
m.a. um, að matvörureinsogt.d.
frystar sjávarafurðir, eru við-
kvæmar í flutningi, geymslu og
sölu og því mikilvægt að geta
fylgt þessum atriðum sem best
eftir allt til neytenda. Þá er það
ekki síður mikilvægt að hafa gott
yfirlit yfir verðþróunina og geta
fylgst með hinum öru breytingum
á kröfum og smekk kaupenda.
Vöruþróun er einnig stórt atriðið
í starfsemi dótturfyrirtækja stóru
sölusamtakanna erlendis. í þeim
efnum hafa þessi fyrirtæki gegnt
forustuhlutverki s.s. í Bandaríkj-
unum.
Þau fyrirtæki, sem helst koma
við sögu í þessum efnum eru sem
fyrr. I Bandaríkjunum: Coldwater
Seafood Corp., (S.H.), lceland
Seafood Corp., (S.Í.S.) og Ocean
Harvester. Á Bretlandi: lcelandic
Freezing Plants Ltd., (S.H.) og
lceland Seafood Ltd., (S.Í.S.).
Á s.l. 3 árum hafa sölur Cold-
water (C.S.C.) og lceland Sea-
food Corp. (I.S.C.) verið eins og
tafla 9 sýnir.
Samtals jukust sölur þessara
fyrirtækja úr US$ 350,3 millj.
árið 1985 í US$ 392,4 millj. árið
1986 eða um US$ 42,1 millj. sem
var 12% aukning. í krónum mælt
miðað við meðalgengi dollarans
kr. 41,00 voru heildarsölur fyrir-
tækjanna árið 1986 kr. 16,1 mill-
jarður eða sem næst heildarút-
flutningsverðmæti allra frystra
sjávarafurða frá íslandi á því ári.
Segir það nokkuð til um umfang
og stærð þessara fyrirtækja. Þá
hefur fyrirtækinu Ocean Har-
vester gengið vel á Bandaríkja-
markaði.
Á árinu lét Guðjón Ólafsson,
forstjóri I.S.C. af störfum eftir 11
ára farsælt starf fyrir fyrirtækið, en
hann tók við forstjórastöðu Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga.
Við forstjórn I.S.C. tók Eysteinn
Helgason, viðskiptafræðingur. Á
árinu hætti Coldwater rekstri
fiskiðnaðarverksmiðjunnar í Eve-
rett, Boston, og færði alla fram-
leiðslustarfsemina í verksmiðju
fyrirtækisins í Cambridge, Mary-
land. Everett-aðstaðan var áfram
notuð sem móttöku- og fryst'-
geymslustöð. — Þá rak I.S.C. fisk'
iðnaðarverksmiðju sína í Harris-
burg af miklum krafti.
Bæði fyrirtækin áttu við þa“
vandamál að stríða á árinu 1986,
að þau fengu ekki til sölurneð-
ferðar nægilega mikið magn a
þýðingarmiklum fisktegundum
eins og þorski, ýsu og karfa svo
eitthvað sé nefnt. Háði það starí-
seminni, sem gekk að öðru ley'1
vel.
Á Bretlandi hafa umsvif íslend-
inga í fisksölumálum aukist gííur'
lega á örfáum árum. Eru Þeir
eignaraðilar að nokkrum fyrir'
tækjum í Hull og Grimsby, sem
annast sölu fersks/ísaðs fisks a
breska markaðnum. Þá eiga storu
sölusamtökin, S.H. og S.l-p-
rekstrarfyrirtæki á Bretlandi-
Fyrirtæki S.H., lcelandic FreeZ
ing Plants Ltd., Grimsby, stad'
rækir þar stóra fiskiðnaðarver'
smiðju og frystigeymslu. Þá er
S.Í.S. með sölufyrirtækið, lce
land Seafood Ltd., í Hull.
Heildarsölur fyrirtækjanna s-•
3 ár hafa verið eins og tafla
sýnir.
Tafla 9.
Coldwater Seafood Corp. lceland Seafood Corp.
Milljón Breyting Milljón Breytii >3
dollarar % dollarar %
1984 208,7 + 7,3 120,0 0,0
1985 ... 216,1 + 3,5 134,2 11,8
1986 235,3 + 8,9 157,1 1á£__J