Ægir - 01.04.1987, Qupperneq 20
204
ÆGIR
4/87
verið miðstýrð í samræmi við
sölukerfið. Svonefnt „Verðlags-
ráð", þar sem yfirnefnd er skipuð
tveimur mönnum frá Sölusam-
tökunum og tveimur mönnum
frá samtökum sjómannaog L.Í.Ú.
með oddamanni frá ríkisstjórn,
hafa ákveðið verðið. Þettaverðer
síðan greitt alls staðar á landinu
þar sem útgerð og vinnsla er í
eigu samaaðilaogeinnigþarsem
engin samkeppni er um fiskinn.
Á þeim svæðum, sem hafa bestan
aðgang að ferskfiskútflutningn-
um, Suður- og Vesturlandi, hefur
myndast töluverð samkeppni um
fiskinn og verðlagsverðið verið
yfirborgað leynt og Ijóst.
Uppboðsmarkaður mun stuðla
að réttri verðlagningu fisksins og
líklega sprengja hinu miðstýrðu
verðlagningu strax á fyrsta ári og
verð vera gefið frjálst.
Uppboðsmarkaður mun auka
möguleika fyrirtækja til sérhæf-
ingar á öllum sviðum og auka
gæði fisksins en nú eru togarafyr-
irtækin að vinna allar tegundir
fisks samtímis, oftast a.m.k.
tveggja vikna gamlan.
Vinnslufyrirtækin geta sótt
hráefnið á uppboðsmarkaðinn í
stað þess að þurfa að gera út tog-
ara eða báta til að fá hráefnið.
Einstaklingar ættu að geta gert út
skip til fiskveiða á arðbærari veg
heldur en fiskvinnslufyrirtæki
sem hugsa um að hafa ávallt hrá-
efni fyrirliggjandi. Uppboðsmark-
aður mun því stuðla að aðskiln-
aði útgerðar og vinnslu og von-
andi gera hvort tveggja betur
rekið.
Frjálst kaupverð -
frjálst söluverð
Ef upphefjast á fjörugur upp-
boðsmarkaður, með misjöfnu
verði, háu verði fyrir kjörfisk,
verður að nýta alla sölumögu-
leika. Frjálsræði í framleiðslu,
sölu og útflutningi verður að vera
fyrir hendi. Því miður er ekki svo
í dag þó svo að frjálsræði hafi
aukist hin síðari ár. í stuttu máli er
frjálsræði í útflutningi ferskfisks
og aukning og gróska í þeim sölu-
málum. Freðfiskur er frjáls á Evr-
ópumarkað en ekki til Ameríku.
Einnig er allur saltaður fiskur
meira og minna einokaður af
S.Í.F.
Aðal einokun hinna stóru sölu-
samtaka er fólgin í lögum þeirra
sem segja „að félagsmenn verði
að afhenda „alla" framleiðsluna
til sölumeðferðar samtakanna."
Einnigeru sölusamtökin vernd-
uð með útgáfu „útflutningsleyfa
frá viðskiptaráðuneyti."
Til að frjáls uppboðsmarkaður
þróist á íslandi verður að þróast
frjálst söluverð. í þeirri trú að svo
verði, erframundan veruleg breyt-
ing, nánast bylting í verðlagn-
ingu, framleiðslu og sölu á hfs'
viðurværi þjóðarinnar, þorsk-
inum.
Höfundur er fiskútflytjandi, í stjórn
Fiskmarkaöar í Reykjavík og í stjórn
útflutningsráðs Félags ísl. stórkaup'
manna.
Frá sjávarútvegsráðuneytinu
Um
grásleppuveiðar
1987
Ráðuneytið vekur athygli á, að grásleppuveiðar eru ekki
háðar veiðileyfum.
Eftir sem áður er gildandi reglugerð um veiðarnar og eru
veiðireglur þær sömu og árið 1986.
Ráðuneytið leggur áherslu á að veiðiskýrslur berist
Fiskifélagi (slands. Mun skráðum grásleppuveiði-
mönnum send skýrslueyðublöð ásamt reglugerð.
Nýjum aðilum og þeim sem ekki fá send slík eyðublöð er
bent á að snúa sér til trúnaðarmanna Fiskifélags
íslands. Nöfn trúnaðarmanna er að finna á bls. 629 í
Sjómanna Almanakinu.
Sjá varútvegsráduneytið