Ægir

Volume

Ægir - 01.03.1989, Page 24

Ægir - 01.03.1989, Page 24
132 ÆGIR 3/8? tekið síðan 1979. Af þessu leiðir að verði humarveiðin 1989 ná- lægt hámarki undanfarinna ára, þ.e. 2.700 tonn, mun veiðistofn- inn haldast áfram í lægð fram til 1991. Veiðin mundi því í auknum mæli byggjast á smáhumri úr árgöngunum 1984 og 1985 sem væntanlega eru betri en nokkrir árgangar á undan. Við 2.400 tonna afla stækkar stofninn dálít- ið, einkum 1991. Þriðji kosturinn, 2.100 tonna afli á ári, verður hins vegar til þess að veiðistofninn vex verulega fram til 1991 þegar ár- gangarnir frá 1984 og 1985 bætast við hann. Með hliðsjón af þessu leggur Hafrannsóknastofnunin til að humarafli verði takmarkaður við 2.100 tonn 1989. Með því móti verður dregið úr sókn í smáhumar úr 1984 og 1985 árgöngunum og þeir nýttir til stækkunar veiðistofns- ins á komandi árum. Þar sem sam- dráttur í stofnstærð hefur orðið mestur á suðausturmiðum, er æski- Millj. Árgangar 10. Mynd. HUMAR. Stærð humarárganganna 1963-1985. Fjöldi við áætlaðan 6 ára aldur (í milljónum). legt að haga sókn þannig árið 1989, að afli takmarkist við 1.000 tonn á suðusturmiðum, en 1.100 tonn verði veidd á suðvestur- miðum og við Vestmannaeyjar. Heimildir: Hafrannsóknastofnun Fjölrit nr. 15- Ástand humar- og úthafsrækjusto'n‘ 1988. Aflahorfur 1989. Útgeröarmenn - Fisk verkendur Höfum fyrirliggjandi: Hraðfrystiskápa Frystivélar - stórar og litlar Kæliblásara - ýmsar stærðir Kondensar Loftkæidir - sjókældir Uppsetning og viðhald á öllum kælikerfum- og tækjum Framleiðum: Lausfrystitæki allar stærðir Allt á einni hendi: Framleiðsla - sala - þjónusta i; Kœling hf. Réttarhálsi 2 - 130 Reykjavik - Sími 32150 - 33838

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.