Ægir

Volume

Ægir - 01.07.1989, Page 12

Ægir - 01.07.1989, Page 12
352 ÆGIR 7/89 son tillögu 1986 um kvótaúthlutun til allra landsmanna og markaðs- stýringu með kvótabréfum, sú til- laga var í engu rökstudd. í reglugerð nr. 16 1988 um stjórn botnfiskveiða 1988 var enn þrengt að sóknarmarksskipum með fækkun sóknardaga í 260 og munur þorskaflahámarks togara milli norður og suðursvæðis var dregin meir saman en áður. í reglugerð nr. 17 um veiðar smábáta 1988 eru þeir settir undir svipaðar reglur og stærri skipin að því undanteknu að aflahámark er óframseljanlegt. Smábátar geta valið milli aflahámarks byggt á reynslu og aflahámarks miðað við stærð báts. Smábátum er einnig gefinn kostur á sóknarmarki sem byggist á svipuðu fyrirkomulagi og þeir höfðu áður undir heildarafla- marki. Með reglugerð nr. 18, 1988 um veiðar á djúprækju var settur rammi um djúprækjuveiðarnar sem var sniðin að mestu eftir botn- fiskreglugerðunum. Veiðiskipum var gefinn kostur á aflamarki byggðu á reynslu og aflahámarki eftir skipagerð. Aflahámark var óframseljanlegt en um aflamark giltu reglur um framsal botnfisk- kvóta. Síðan um mitt ár 1988 hefur verið leyfður varanlegur flutningur aflamarks milli skipa. Þetta atriði hlýtur í framtíðinni að teljast mesta framför í reglum um kvótann. í upphafi var von manna að með kvótakerfinu tækist að minnka flotann að því marki að hægt væri að ná hámarksnýtingu á hverju einstöku skipi. Hvatning til að minnka flotann er enginn meðan ekki má versla með kvótann. Með verslun er hér átt við eignakaup og -sölu, en ekki leigu kvóta eins og venjulega er átt við með „kvótakaupum". Krókaleiö að markmiðum í þessum pistli hefur oft verið vikið að því að sá rammi eða það efnahagslega umhverfi sem stjórn- völd hafa ætlað að skapa fyrir- tækjum í sjávarútvegi hafi smá- rofnað á árabilinu 1984-1986. (Hér eru því gerðir skórnir, að það efnahagslega umhverfi sem stjórn- völd ætla að skapa, hafi þa& markmið að knýja út úr fiskveið- unum ýtrasta framlag til hagvaxt- ar). Merki þessa er t.d. fjöldi reglu- gerða sem gefin var út á fyrstu tveim árum kvótans, til að þjóna sérhagsmunum. Loks var með kvótalögunum fyrir árin 1986- 1987 stefnubreyting frá þessu markmiði sem áður var nefnt/ þegar veiðiskipum var leyft að keppa að hærri kvóta í stað þe$5 að gefa þeim leyfi til að kaupa kvóta. Áður en þetta frávik verðut rætt, þá verður tekið fyrir gat sem var á kvótalögunum frá upphafi og er enn, þ.e.a.s; að ákveðin getð skipa veiði frjálst utan kvótakerfiS' ins. Fram til ársins 1988 voru öllum leyfðar frjálsar veiðar á bátum ^ brl (Reyndar innan heildarkvóta að nafninu til) og engar höndut voru á fjölgun þessarra báta- Frelsið leiddi til þvílíkrar fjártest^ ingar í þessarri tegund báta 3 helst er hægt að líkja við s^uttc!jjj arakaupin á síðasta áratug. n° smábáta hafði staðið í stað í ára tugi, en tvöfaldaðist á árunum 1986-1988, eins og sjá má af l'nU' riti 3. Línan á við fjölda skráðra a ^ <10 brl, það þýðir í raun að her^ um að ræða flesta báta 6-10 br stærð. Minni bátar eru sjaldna 1986 skráðir í skipaskrá. A árinu eftir fjölgaði skráðum smábátum, áratuga stöðnun, um 3%, ur bátum í 162. Loks árið 198/ skriðan af stað, skráðum bátuu1 <10 brl fjölgaði í 234, eða un 44%. Næsta ár, 1988 þessarri tegund báta síðan ' . sem er fjölgun um 21 %• pa fj hafði fjöldi skráðra smábáta n tvöfaldast á 2 árum. ^ Auk skráðra smábáta er ) opinna báta. Árið 1985 var J þeirra 988, 1986 voru opmr D orðnir 1.040 talsins. opurjð bátum fjölgaði stig af stigL

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.