Ægir - 01.07.1989, Blaðsíða 48
388
ÆGIR
7/P9
NÝ
FISKISKIP LL2
Hálfdán í Búð ÍS 19
/VýH tveggja þilfara fiskiskip bættist við fiskiskipa-
flotann 8. maí s.L, en þann dag kom Hálfdán í Búð ÍS
19 í fyrsta sinn til heimahafnar sinnar, Isafjarðar.
Skipið er nýsmíði nr. 227 hjá Lunde Varv och Verks-
tads í Ramvik í Svíþjóð, en er hannað hjá Skipatækni
h.f., Reykjavík. Hálfdán í Búð ÍS er þriðja skipið sem
umrædd stöð smíðar fyrir Islendinga, hin fyrri eru
Skúmur GK (kom í desember '87) og Bliki EA (kom í
október '88).
Skipið er sérstaklega hannað til línu- og togveiða
(afturbyggt) og er með búnað til að frysta afla um
borð.
Hálfdán í Búð ÍS er í eigu Norðurtangans h.f., Isa-
firði. Skipstjóri á skipinu er Skarphéðinn Gíslason og
yfirvélstjóri er Hörður Steingrímsson. Framkvæmda-
stjóri útgerðar er Jón Páll Halldórsson. Hálfdán í Búð
kemur ístað Víkings IIIÍS 280 (127), 149 brl. stálfiski-
skips, smíðað í Noregi árið 1964.
Almenn lýsing:
Skipið er smíðað úr stáli samkvæmt reglum og
undir eftirliti Det Norske Veritas í flokki •i' 1A1, Stern
Trawler, lce C,>i<MV. Skipið er með tvö heil þilför
stafna á milli, perustefni, gafllaga skut og skutrennu
upp á efra þilfar, opinn hvalbak fremst á efra þilfari,
og þilfarshús og brú rétt aftan við miðju.
Undir neðra þilfari er skipinu skipt með fjórum
vatnsþéttum þverskipsþilum í eftirtalin rúm, talið
framan frá: Stafnhylki fyrir sjókjölfestu; hrágeymar
fyrir brennsluolíu ásamt hliðarskrúfurými; fiskilest
ásamt keðjukö sum fremst í síðum og botn- og síðu-
geymum fyrir brennsluolíu; vélarúm með botn-
geymum t’yrir ferskvatn; og aftast skutgeymar fyrir
brennsluolíu ásamt stýrisvélarrými.
Fremst á neðra þilfari er stafnhylki fyrir sjókjölfestu
og þar fyrir aftan íbúðarými, sem fremst nær yfir
breidd skipsins, en aftantil meðfram b.b. síðu. Aftan
Mesta lengd ......................... 36.60 m
Lengd milli lóðlína (HVL) ........... 32.45 m
Lengd milli lóðlína (perukverk) 30.22 m
Breidd (mótuð) 8.17 m
Dýpt að efri þilfari 6.40 m
Dýpt að neðra þilfari ................ 3.78 m
Eiginþyngd 480 1
Særými (djúprista 3.78 m) ............. 657 t
Burðargeta (djúprista 3.78 m) 177 t
Lestarrými ............................ 240 m3
Brennsluolíugeymar
(með daggeymi) ....................... 87.4 m
Ferskvatnsgeymar 13.6 m
Sjókjölfestugeymir 9.4 m
Rúmlestatala 252 brl.
Skipaskrárnúmer 1989
við og til hliðar við íbúðir er vinnuþilfar með fiskmot'
töku aftast fyrir miðju og þar aftan við er geymsH
(dælurými). S.b-megin við fiskmóttöku og geymslu er
línugangur, en b.b megin vélarreisn, verkstæði og
netageymsla.
Á efra þilfari er opinn hvalbakur úr áli frenist. Aftan
við miðju á efra þilfari eru þilfarshús beggja niegin'
rofin af togbraut, s.b.-megin dælurými og b.b.-meg111
Myndin sýnir togbraut undir brú.
Ljósmyndir meö grein: Tæknideild /JS.