Ægir - 01.07.1989, Qupperneq 26
366
ÆGIR
7/89
SamábyrgÖ íslands á fiskiskipum
80 ára
Samábyrgöin var stofnuð meö
lögum 30. júlí 7 909 og er því átta-
tíu ára 30. júlí á þessu ári. I tilefni
þess lét Páll Sigurösson forstjóri
Samábyrgöarinnar ÆGI í té ágrip
af sögu Samábyrgöarinnar, sem
ótvírætt má segja aö gegnt hafi og
gegni mikilvægu hlutverki í þróun
íslensks sjávarútvegs. Á því ágripi
og afmælisgrein af tilefni 60 ára
afmælis Samábyrgöarinnar sem
birtist í 21. tbl. ÆGIS I. desember
1969, byggist eftirfarandi grein.
Samábyrgð íslands var stofnuð
með lögum nr. 54 30. júlí 1909 og
á stofnunin því 80 ára afmæli á
þessu ári.
Það var þó ekki fyrr en 26. ágúst
1909 að lögin voru birt og tóku
þau gildi 1. janúar 1910. En 1.
mars 1910 hófst starfsemi félags-
ins.
Ástæðan fyrir stofnun Sam-
ábyrgðarinnar var sú að eftir að
útvegur íslendinga tók að vaxa á
síðustu áratugum 19. aldar og
með tilkomu vélskipa á fyrstu ára-
tugum 20. aldarinnar varð rík þörf
fyrir innlent tryggingafélag sem
annast gæti beina tryggingar
og endurtryggingar fiskiskipa.
Abyrgðarfélögum hafði að vísu
verið komið á fót í flestum hér-
uðum landsins, svo sem Þilskipa-
ábyrgðarfélaginu við Faxaflóa,
Ábyrgðarfélagi fyrir vélbáta við
Faxaflóa, öátaábyrgð Vestmanna-
eyja o.fi., en þau höfðu ekki bol-
magn til að takast á hendur full-
komnar tryggingar. Sum þeirra
höfðu leitað endurtryggingar hjá
erlendum tryggingafélögum, sem
einnig tóku að sér í nokkrum mæli
tryggingar íslenskra fiskiskipa. Þar
sem að baki starfsemi tryggingafé-
laga liggur fyrst og fremst að jafna
áhættu og í þessu tilfelli að jafna
áhættu í rekstri íslenskrar útgerð-
ar, þá var eðlilegt að menn sæju
þörf fyrir innlent tryggingafélag
sem sæi um þennan mikilvæga
þátt helsta atvinnuvegs þjóðarinn-
ar.
Ólafur Briem vakti máls á þess-
ari þörf fyrir stórt innlent trygg-
ingafélag á Alþingi árið 1908. En
einsætt þótti, eins og fjárhag
landsmanna var þá háttað, að
Alþingi hefði forgöngu um stofnun
þess og styrkti reksturinn með
ábyrgð landssjóðs.
Landsstjórnin undir forsæti
Hannesar Hafstein ráðherra tók
frumkvæði í málinu og kom það 1
hlut starfsmanns íslensku stjórnar-
ráðsskrifstofunnar í Kaupmanna-
höfn, Jóns Krabbe lögfræðings,
sem hafði kynnt sér tryggingastarf-
semi, að undirbúa málið og semja
frumdrög löggjafarinnar. Að til-
lögu hans skipaði Hannes Hat-
stein nefnd „til þess að íhuga
hvernig hægt væri að koma á fót
tryggi legri og hagkvæman
vátryggingu á fiskiskipum hér a
landi." í nefndina voru skipaðir
Tryggvi Gunnarsson bankastjori/
Ágúst Flygering útgerðarmaður,
Eggert Briem skrifstofustjóri
Carl Trolle áður sjóðliðsforingi
Fólksþingmaður, síðar forstjóri