Ægir - 01.07.1989, Side 32
372
ÆGIR
7/89
Ufsi
Ufsaaflinn minnkaði nokkuð frá
fyrra ári. Alls komu á land 74.383
tonn af ufsa, en árið áður var afl-
inn 78.175 tonn. Árið 1987 var
næstbesta ár hvað veiði á ufsa
varðar og árið 1988 var þriðja
besta aflaár íslendinga að því er
ufsa varðar. Einungis árið 1948 er
betra en þessi ár, en þá var landað
81.467 tonnum af ufsa. Reykja-
nes, Norðurland vestra og
Norðurland eystra juku hlutdeild í
ufsa, en aðrir landshlutar töpuðu
að sama skapi. Nokkurnveginn
sama hlutfall aflans var flutt út sem
ísfiskur á árinu 1988 og flutt var út
með þessum hætti árið áður.
í dollurum talið lækkaði heild-
araflaverðmæti lítið eitt eða um
1,2%, sem stafar af minni afla.
Fyrir hvert kíló fékkst hinsvegar
hærra verð í dollurum, en svo til
óbreytt meðalverð gagnvart SDR-
einingum.
Svo sem sést á meðfylgjandi
myndum vinnur botnvarpan
stöðugt á, í veiðum á þessari
tegund. Hlutur netanna minnkar
að sama skapi. Á árinu 1987 var
ufsaafli í net 18.363 tonn en 1988
einungis 1 5.053 tonn. í botnvörpu
fengust 57.403 tonn árið 1988 á
móti 57.521 tonni árinu áður.
Athyglisvert er að Akureyri
hefur nær fimmfaldað hlut sinn í
ufsaaflanum á fimm árum. Úr 698
tonnum árið 1983, í 3.264 tonn
1988. Þannig að Akureyringar fara
nálægt því að veiða tuttugasta
hvern ufsa sem veiðist hér við
land. Vestmannaeyjar eru þó enn
með langstærstan hlut í þessum
veiðum, en nærri mun láta að
Vestmannaeyingar dragi fimmta
hvern ufsa á árinu 1988. í hlut
þeirra féllu 13.247 tonn af heild-
arafla ufsa árið 1988.
Landshlutaskipting ýsuafla
1970-1974 1975-1979 1980-1984 1985 1986 1987 1988
m Suöuriancl f Reykjanes □ Vesturland WM Vestfiröir
nm Noröurl. v. o Noröurl. e. Austfiröir lllllllll Erlendis
Fiskiféiag Isiands
Veiðarfæraskipting ufsaafla