Ægir - 01.01.1990, Side 13
1/90
ÆGIR
5
a& geta þess, að það er raunar
skyIda sjófarenda að greina strax
frá hafís sem sést. Lítill vandi er að
hunsa þessa skyldu og væri óneit-
ar|lega ánægjulegra til þess að
vita, að enn fleiri hjálpuðu til í
pessum efnum af áhuga og skiln-
|ngi/ frekar en einberri kvöð. Ergi-
®gt er að fljúga yfir skipaflota við
hafísjaöar og uppgötva þegar
heim kemur á Veðurstofuna, að
ekkert þeirra hefur hirt um að
senda tilkynningu um hafís!
Á þessum vettvangi í Ægi skora
ég því á alla þá, sem eru að
veiðum eða á siglingu í námunda
við ísinn, að leggja lóð sitt á vog-
arskálarnar og senda tilkynningu
til Veðurstofu íslands. Um leið er
þeim þakkað sem sinnt hafa kall-
inu.
c) Veðurathugunarstöðvar við
strendur landsins skima eftir hafís í
nánd og senda tilkynningar til
Veðurstofu. Þetta eru auðvitað
mjög áreiðanlegar heimildir.
Veðurathugunarmenn taka á sig
krók og ganga á sjónarhóla til að
glöggva sig sem best á hafís úti
fyrir og breytingum frá síðasta
athugunartíma. Oft er skyggni
ábótavant, en því verður að hlíta.
Þá skal nefna heimamenn á
ströndum þar sem sést hefur til
hafíss, úti fyrir eða jafnvel uppi í
fjörum. Upplýsingar þeirra eru
bráðnauðsynlegar og mjög vel
þegnar. Helst kjósum við að fá
þær beint, frekar en reiða okkur á
tilviljanakenndar blaðafregnir.
Að lokum skal nefna, að
skilgóðar lýsingar vegfarenda eða
annarra koma líka að gagni.
d) Veðurtungl sveima í sífellu
umhverfis jörðina, sum yfir pól-
svæði og hafísslóðir. Æ meira
gagn er að myndum þeirra af yfir-
borði jarðar, skýjum og hafís.
Víða erlendis notfæra hafísdeiIdir
veðurstofanna veðurtunglamyndir
i ríkum mæli, enda tekur tækni í
fjarkönnun framförum ár frá ári..
Því miður eru rannsóknir og
athuganir af þessu tagi skammt á
veg komnar á íslandi. Hafísmyndir
frá móttökustöð í Tromsö í
Norður-Noregi berast að vísu haf-
ísdeild Veðurstofunnar vikulega,
en frekar lítið gagn er að slíkum
langsóttum pöntunum. Þess má
geta, að tekið er á móti veður-
tunglamyndum á spádeild Veður-
stofunnar sem koma að notum við
ákvörðun á staðsetningu skýja og
skila í veðrahjúpi. Hafís sést hins
vegar illa.
Vonandi fara íslendingar að
taka sig á í þessum vísindum. Það
er óþarft að segja skilið við góðar
og gildar aðferðir, þótt reynt sé að