Ægir - 01.01.1990, Síða 22
14
ÆGIR
1/90
Einstakir afurðaflokkar
Eftir afurðaflokkum greinist
heildarútflutningurinn (53.710)
tonn) sem hér segir:
Frystar botnfiskafurður 46.560 tonn -
aukning 15%.
Fryst rækja 1.641 tonn. -aukning 6%.
Frystur heill humar og humarhalar 230
tonn - aukning 3%.
Frystur hörpudiskur 227 tonn - aukn-
ing 11 %.
Fryst hrogn 206 tonn — samdr. 14%.
Fryst loðnuhrogn 300 tonn - aukning
113%.
Fryst loðna475 tonn-aukning49%.
Fryst síld 4.075 tonn - aukning 25%.
Eins og hér kemur fram er um
aukningu að ræða í öllum afurða-
flokkum nema frystum hrognum.
Helstu markaðssvæði
Bandaríkin: Þangað fóru
14.100 tonn á móti 11.200
tonnum árið 1988. Aukningin er
2.900 tonn eða 26%. Hlutdeild
Bandaríkjanna í útflutningi Sjávar-
afurðadeildar (m.v. magn) varð nú
26% en var 24% árið 1988.
Vestur-Evrópa: Þangað fóru
23.300 tonn á móti 20.900
tonnum árið áður. Aukning 2.400
tonn eða 11%. Hlutdeild Vestur-
Evrópu í heildarútflutningi deild-
arinnar (m.v. magn) varð 43% en
var 45% árið 1988.
Austur-Asía: Þangað voru flutt
12.900 tonn á móti 10.700
tonnum árið 1988. Aukning 2.200
tonn eða 21%. Af þessu fóru
10.172 tonn til Japans, aukning
13%, og 2.588 tonn til Taiwan,
aukning 67%. Hlutdeild markaðs-
landa í Austur-Asíu hélt enn áfram
að aukast og varð nú 24% á móti
23% árið áður.
Sovétríkin: Útflutningur þangað
nam 3.200 tonnum á móti 3.600
tonnum árið 1988. Samdráttur
400 tonn eða 11%. Hlutdeild
Sovétríkjanna í heildarútflutningi
m.v. magn féll úr 8% í 6%.
Bandaríkin og Kanada
Heildarsala:
Heildarsala á árinu 1989 varð
að heita má hin sama í dollurum
og árið áður, 132.7 milljónir doll-
ara á móti 133.4 milljón dollara
árið 1988. Samdráttur nemur
þannig 0.7 milljónum dollara eða
0.5%.
Heildarsalan í magni varð 82.9
milljónir punda eða 37600 tonn
og var það 0.3% minna en árið
1988.
Einstakir þættir sölunnar:
Sala frystra fiskflaka nam 40
milljónum ddiara (aukning 25%)
og 19.5 milljónum punda (aukn-
ing 25.4%). Sala fiskrétta nam
87.1 milljón dollara að verðmæti
(samdráttur 7.5%) og 59 milljón-
um punda í magni (samdráttur
5.9%).
Markaðssvæöi o.fl.:
Markaðssvæði ISC nær yfir
Bandaríkin og Kanada. Segja má
að starfsemi fyrirtækisins greinist í
tvo meginþætti: annars vegar sölu
á flökum og skelfiski, en þessar
afurðir eru fullbúnar til markaðs-
setningar, þegar vestur kemur;
hins vegar er sala á fiskréttum,
sem framleiddir eru í eigin fisk-
réttaverksmiðju fyrirtækisins á
Camp Hill, nálægt Harrisburg í
Pennsylvaníu. Fiskréttaverk-
smiðjan er af mörgum talin ein hin
fullkomnasta í öllum Bandaríkjun-
um og þar vinna að staðaldri 350-
400 manns.
Vestur-Evrópa
Heildarsala:
Heildarsalan á árinu 1989 nam
44.2 milljónum sterlingspunda á
móti 41.3 milljón punda árið
1988. Aukningin nemur því 2.9
milljónum punda eða 7%. Heild-
arsalan í magni var 24.566 tonn
og var það 7.6% meira en árið
áður.
Markaðssvæði:
Markaðssvæði lceland Seafood
Ltd. nær yfir Vestur- og Suður-
Evrópu. Aðalstöðvar fyrirtækisins
eru í Hull í Englandi; söluskrif-
stofur eru í Vestur-Þýskalandi og
Frakklandi, nánar tiltekið í Ham-
borg og Boulogne-sur-Mer.
Einstök markaðslönd:
Stærstu markaðslöndin eru
Bretland, Frakkland og Vestur-
Þýzkaland, í þessari röð. í Bret-
landi nam salan 26.8 milljónum
sterlingspunda og var það svipað
verðmæti og árið áður. Magnið
var 13.076 tonn (samdráttur 6%).
Sala Frakklandsskrifstofu nam
111.2 milljónum franka (18.4%
meira en árið áður). Magnið var
5.069 tonn (aukning 24%). Sala
Hamborgarskrifstofu nam 22.5
milljónum marka (46.3% meira
en árið áður). Magnið var 3.159
tonn (aukning 26%).