Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.1990, Side 39

Ægir - 01.01.1990, Side 39
1/90 ÆGIR 31 slægðum fiski í óslægðan skal margfalda með 1.25. Við línuveiðar í janúar, febrúar, nóvember og desember reiknast 50% aflans ekki til aflahámarks Þorskur og ufsi smærri en 50 cm og ýsa smærri en 45 cm telst ekki að tveimur þriðju hlutum með í aflahámarki fiskiskips, enda fari fiskur undir þessum lágmarks- stærðum ekki yfir 10% af afla þessara fisktegunda í veiðiferð og fyrir Iiggi staðfesting frá mats- mönnum um magn, skv. reglum er ráðherra setur. Allur fiskur, sem veiddur er á handfæri telst til afla- hámarks. Allan þorsk-, ýsu- og ufsaafla, án tillits til stærðar eða í hvaða veiðarfæri hann fæst, sem fluttur er óunninn á erlendan markað, skal reikna til aflahámarks með 15% álagi sbr. 2. mgr. hér að ofan. 9. gr. Skylt er að hirða og koma með a& landi allan botnfisk af kvóta- bundnum fisktegundum og nýtan- legum fisktegundum, sem mark- aður er fyrir. Sleppa skal þó þorski og ufsa smærri en 50 cm og ýsu smærri en 45 cm, sem fæst á handfæri. Skipstjóra er skylt að halda fiski aðskildum eftir tegundum um borð í veiðiskipi. Ennfremur er honum skylt að vigta hverja teg- und sérstaklega í löndunarhöfn, sbr. reglugerð nr. 567, 28. nóv- ember 1989, um vigtun sjávarafla. 10. gr. Útgerðum báta, skipstjórnar- mönnum og kaupendum er skylt að senda sjávarútvegsráöuneytinu skriflegar upplýsingar um afla, aflasamsetningu og um úthald og sjósókn á eyðublöðum sem ráðu- neytið leggur til. Vanskil á skýrslum og röng skýrslugerð varða tafarlausri leyfissviptingu. 11. gr. Miðist aflahámark við stærð báts, skal miðað við gildandi mælingarbréf frá Siglingamála- stofnun ríkisins 22. janúar 1988. Hafi skip komið í rekstur eftir 22. janúar 1988 skal miða við fyrsta gildandi mælingarbréf skipsins. 12. gr. Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 3, 8. janúar 1988 um stjórn fiskveiða 1988-1990. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála. 13. gr. Reglugerð þessi er sett sam- kvæmt ákvæðum laga nr. 3, 8. janúar 1988 um stjórn fiskveiða 1988-1990 til að öðlast gildi 1. janúar 1990 og birtist til eftir- breytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Sjávarútvegsráöuneytiö, 19. desember 1989. Halldór Asgrímsson Árni Kolbeinsson. Útgerðarmenn og skipstjórar Dráttarbraut fyrir allt að 450 þungatonn. Pantið pláss tímanlega. Botnhreinsun og málun. Öll almenn viðhaldsvinna ásamt smíði yfirbygginga og innréttinga. Leitið upplýsinga og tilboða. Skipasmíðastöðin Dröfn h/f Strandgata 75, 220 Hafnarfirði. Símar: 50393 - 50483

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.