Ægir - 01.08.1990, Blaðsíða 19
414
ÆGIR
8/90
SJÁVARÚTVEGSSÝNING í LAUGARDALSHÖLL^
Hekla hf.
Söguágrip
Um áramótin 1933-1934 stofn-
uðu Sigfús Bjarnason og Magnús
Víglundsson fyrirtæki sem þeir
gáfu nafnið Heildverslunin Hekla.
Fyrirtækið stundaði í fyrstu inn-
flutningsverslun með margbreyti-
legan varning, aðallega ávexti frá
Spáni. Fljótiega keypti Sigfús hlut
Magnúsar, og árið 1940 var fyrir-
tækinu breytt í hlutafélag í eigu
fjölskyldu Sigfúsar og er það rekið
á því formi í dag. Árið 1971 var
breytt um nafn á fyrirtækinu og
þekkja flestir landsmenn það
undir nafninu sem þá var tekið
upp, Hekla hf.
Fyrirtækið sem stofnað var á
tímum kreppu í þjóðfélaginu,
hefur blómgast vel. Sú meiriháttar
bjartsýni sem sýndi sig hjá þessum
ungu athafnamönnum sem hösl-
uðu sér völl í innflutningsverslun á
tímum kreppu í milliríkjaverslun,
hefur borið drjúgan ávöxt. í dager
Hekla hf eitt af umsvifamestu
verslunarfyrirtækjum landsins og
teygir sig inn á flest svið viðskipta.
Aðalmiðstöð fyrirtækisins er í
stórhýsi að Laugavegi 170-174.
Alls mun húsnæðið vera yfir 12
þúsund fermetrar að grunnfleti og
einn starfsmanna Heklu orðaði
það svo, að ef gólf væru sæmilega
gróin nægði heyfengurinn til þess
að hafa tvær kýr á fóðrum.
Núverandi forstjóri Heklu er
Ingimundur Sigfússon, sonur Sig-
fúsar Bjarnasonar stofnanda fyrir-
tækisins. Margir afkomenda Sig-
fúsar munu halda tryggð við
gamla fyrirtækið og starfa þar
innan veggja.
Véladeild Heklu
A árum seinni heimsstyrjaldar-
innar tók Heildverslunin Hekla að
auka tengsl sín við Bandaríkin og
gerðist umsvifamikill aðili í inn-
flutningi á vélum og tækjum.
Segja má að þessi viðskipti hafi
lagt grunn að stórum hlut Heklu í
vél- og tæknivæðingu íslendinga,
sem átti sér að mestu stað í og eftir
seinni heimsstyrjöld.
í þessum pistli er ætlunin að
fjalla að mestu um sjóvéladeild-
ina, en sjóvéladeild Heklu selur
m.a. þá vél sem langalgengust er í
íslenska fiskiskipaflotanum. Láta
mun nærri um þessar mundir að
fimmta hver aðalvél í íslenskum
þilfarsfiskiskipum sé af gerðinni
Caterpillar (Reyndar má geta þess
hér, að tekið hefur verið upp nýtt
vörumerki, í stað Caterpillar er
komið CAT, með ístrikuðum gulum
þríhyrningi. Hjá íslenskum 5JU
mönnum heitir vélin þó einfs1
lega „Kata" og á hátíðlegunl
stundum „Katrín".).
Hekla hefur haft umboð fyr'r
CAT á íslandi síðan 1947 og getL,r
umbjóðandinn ekki kvartað y,ir
árangrinum, auk fyrrgreindHr
20% markaðshlutdeildar aðalvé a
í fiskiskipaflotanum, er ótölulegur
fjöldi Ijósavéla og annarra hjálpar'
véla í íslenskum fiskiskipum a
tegundinni CAT.
Sjóvéladeildin er nýlega flutt 1
gömlu aðalbygginguna að Lauga'
vegi 172, en áður var hún Brautat-
holtsmegin. Núverandi fran1'
kvæmdastjóri Sjóvéladeildar er
Eiríkur Ingólfsson og sölustjóri et
Birgir Sveinsson.
Sjóvéladeildin snýst ekki ein-
8/90
ÆC.IR
415
80ngu í kringum CAT-vélarnar, þó
VlSsulega séu þær stór hluti af
starfsemi deildarinnar. íslenskir
u,8erðarmenn og sjómenn kann-
3sl v'& önnur merki frá Heklu eins
°g t-d. Ulstein Propeller A/S, sem
Hmleiðir gíra og skrúfubúnað af
^su tagi. Reyndar flutti Hekla
Urn t'aaa inn skip sem smíðuð voru
samnefndri skipasmíðastöð.
1 nnig geta Brunton, sem
Pekktastir eru fyrir skrúfuhringi og
annan skipsskrúfubúnað, Hytek
gírar), Fernstrum (utanborðskæl-
ark Ingersoll Rand (loftverkfæri
o.fl
°g Hatz (Ijósavélar).
Ekki má gleyma því að stór hluti
a s,arfsemi sjóvéladeildar Heklu
er bjónusta við viðskiptavinina,
utve8un og ísetning varahluta
n-s-frv. Þegar útgerðarmenn
auPa aðalvél eða Ijósavélar, þá
ióta þeir að taka gæði þjónust-
Urinar með í reikninginn, en líkur
1 góðrar þjónustu hljóta að vaxa í
st'l við fjölda seldra véla.
% varútvegssýningin
^ekla tók þátt í síðustu sjávarút-
vegssýningu árið 1987 og verður
að sjálfsögðu einnig með að þessu
sinni. Birgir Sveinsson sölustjóri
tjáði Ægi að Hekla yrði með bás í
eystri skála. Básinn (E—40) er 70
fermetrar, eða nærri helmingi
stærri að grunnfleti en básinn sem
Hekla var með á síðustu sjávarút-
vegssýningu. Að sögn Heklu-
manna verður töluvert í þessa sýn-
ingu lagt að þessu sinni. Kemur
þar að hluta til áætlun þeirra um
að fara af stað með almenna kynn-
ingu á fyrirtækinu í kjölfar opn-
unar á nýja húsnæðinu.
Á sjávarútvegssýningunni verður
Hekla með 6 vélar frá CAT, þar á
meðal vél af gerð 3208, sem sýnd
verður með skrúfubúnaði og skrúfu-
hring frá Brunton. Einnig verður
sýnd 700 hestafla vél ásamt
dælugír frá Hytek. Svo verður á
sýningunni ný rafstöð úr „seríu"
sem mun vera ein algengasta teg-
undin í flotanum í dag.
Hekla mun einnig sýna í bás E—
40, bátavél 400 hestafla ásamt
bátarafstöð 250 kw og tvær minni
bátavélar 250 hestafla ásamt
skrúfubúnaði. Ulstein mun svo
sýna ýmis módel af framleiðslu-
vörum sínum, ásamt sjónvarps-
upptökum af virkni þeirra. Öll
erlendu fyrirtækin munu eiga full-
trúa á svæðinu og þrír til fjórir
starfsmenn sjóvéladeildar Heklu
munu verða til staðar, þannig að
sýningargestir eiga von á að fá
allar þær upplýsingar sem þeir
telja sig þurfa. Af starfsmönnum
sjóvéladeildar Heklu, verða ætíð
einhverjir frá þjónustuverkstæð-
inu, þannig að núverandi eig-
endur og notendur véla og tækja
frá Heklu hf geta fengið upplýs-
ingar um hvaðeina sem á bjátar og
borið sig saman um hvað betur
megi fara. Starfsmenn þjónustu-
deildar sýna einnig mælitæki og
kynna notkun þeirra.
Hér hefur einungis verið stiklað
á stóru, en sjón er sögu ríkari og
vafalaust munu íslendingar, og þó
sérstaklega þeir sem að sjávarút-
vegi standa, fjölmenna á sjávarút-
vegssýninguna í Laugardalshöll
dagana 19.-23. September næst-
komandi.