Ægir - 01.08.1990, Side 22
418
ÆGIR
8/90
SJÁVARÚTVEGSSÝNING í LAUGARDALSHÖLL
Fríðrík A. Jónsson hí.
Byrjunin
Vinnustofa Friðriks A. Jónssonar
hóf starfsemi sína 11. mars 1942. í
fyrstu rak Friðrik þjónustu fyrireig-
endur útvarpstækja og fyrir kvik-
myndahús bæjarins, en árið 1946
bættist við sala á radartækjum í
skip (togarinn Ingólfur Arnarson
mun hafa verið fyrsta fiskiskipið í
heiminum sem búið var radar).
Má segja að þar hafi framtíð fyrir-
tækisins verið ráðin.
Fyrirtækið Friðrik A. Jónsson
varð vafalaust langþekktast fyrir
að vera umboðsaöili fyrir norska
fyrirtækið Simrad á síldarárunum,
sem það er reyndar enn í dag. Árið
1953 fór Friðrik að selja Simrad-
dýptarmæla, sem þar með voru
ekki búnir að segja alla sína sögu á
Islandsmiðum. í kynningarbækl-
ingi sem gefin var út af aðstand-
endum sýningarinnar „íslendingar
og hafið", árið 1968 segir svo:
„25. maí 1954 var fyrsti dýptar-
mælirinn af Simradgerð prófaður
um borð í varðskipinu Ægi. í júní
sama ár fóru fjórir bátar með fyrstu
sónartækin til síldveiða, bátar
þessir voru frá 30 tonn. Þessi tæki
voru handstýrð og mjög ófullkom-
in í samanburði við tæki sem
við bjóðum í dag. En árangur var
greinilegur. ... íslenskir sjómenn
voru fljótir að tileinka sér þessa
nýju tækni og eru nú viðurkenndir
sem brautryðjendur í notkun sónar-
tækja, enda verið sóttir heim frá
mörgum löndum Evrópu og einnig
úr öðrum heimsálfurri, eingöngu
til að kynnast þeirri leikni sem
sjómenn hér höfðu náð í meðferð
þessarar tegundar fiskleitartækja."
Reyndar er því við að bæta að
Friðrik heitinn ásamt tækni-
mönnum frá Simrad og í samvinnu
við íslenska síldarskipstjóra þró-
uðu asdicið í nothæft fiskleitar-
tæki. Áhrif þessa tækis eru flestum
kunn, en það jók svo afköst við
síldveiðar hér við land að aflinn
margfaldaðist. Af nokkrum hefur
þessi tími frá stríðslokum og fram
til 1955, verið talin marka upphaf
annarrar atvinnubyltingar íslend-
inga. Fyrst varð iðnbylting á ís-
landi með upphafi togaraútgerðar
í byrjun aldarinnar og síðan tækni-
bylting með tækjavæðingu fiski-
skipaflotans 1945-1955. Reyndar
er ekkert lát á upptöku fullkomn-
ustu tækni á rafeindasviðinu við
fiskveiðarnar.
Friðrik rak fyrirtækið undir eigin
nafni til dauðadags árið 1974, en
þá tók núverandi framkvæmda-
stjóri við, Ögmundur Friðriksson,
sonur Friðriks A. Jónssonar.
Rekstur fyrirtækisins var lengi
húsa í Skipholtinu, en árið 1988,
flutti fyrirtækið í nýtt húsnæði að
Fiskislóð 90, eitt fjölmargra þjón'
ustufyrirtækja sem hafa verið ao
safnast saman í einskonar þj°n'
ustumiðstöð sjávarútvegsins, sem
nær frá Vélasölunni inni í Ána-
naustum, út í Kristján Ó. Skagfjö^
hf úti í Örfirisey. Má segja að
þarna sé smám saman að verða ti
Laugavegur (eða Kringla) sjávarut-
vegsins.
Sjá varútvegssýningin
Tíðindamaður Ægis gerði -e[
erindi út á Granda og kom við hja
Friðriki A. Jónssyni ht'. Þar tek
hann smálýsingu hjá Ögmundi
framkvæmdastjóra á því hvernig