Ægir - 01.08.1990, Qupperneq 26
422
ÆGIR
8/90
Heimsaflinn árin 1987
Aflahæstu þjóðir sömu
Sú venja hefur skapast á undan-
förnum árum að birta í Ægi, yfirlit
yfir heimsaflann, þegar tölur frá
FAO hafa legið fyrir. í töflu 1, eru
tölur yfir afla helstu fiskveiðiþjóð-
anna á árunum 1987 og 1988.
Sömuleiðis kemur fram í töflu 2,
hvaða fisktegundir eru mikilvæg-
astar í heimsaflanum á árabilinu
1985-1988.
Heildarafli ársins 1988 var rúm-
lega 97 milljónir tonna, en það er
umtalsvert meira en spár í fyrra
bentu til. Reiknað hafði verið með
u.þ.b. 94 milljóna tonna afla og
kemur því mikil aflaaukning á
árinu 1988 nokkuð á óvart.
Þegar lesendur skoða töflu 1,
yfir aflahæstu þjóðirnar munu
flestir staldra við aflatölur frá Kína.
Ekkert lát virðist á aukningu í afla
Kínverja og ef eins heldur fram um
þessa þróun og verið hefur síðasta
áratuginn, mun Kína þegar á árinu
1990 vera orðin mesta fiskveiði-
þjóð veraldar. Vöxtur fiskafla Kín-
verja á síðasta áratug er ævintýra-
legur. Árið 1979 var afli Kínverja
4.054.295 tonn, fimm árum síðar
hafði aflinn vaxið í 5.926.793
tonn og á árinu 1988 var aflinn
orðinn 10.358.678 tonn. Árleg
aflaaukning Kínverja hefur því
verið 9.8% síðustu tíu árin. japan
og Sovétríkin hafa síðustu áratug-
ina verið með langmestan fiskafla
allra þjóða heims, að vísu hefur
Perú náð því að vera meiri afla, en
óstöðugleiki stofnstærðar ansjósu
ræður því að þar er um undan-
tekningatilfelli að ræða. Nú virðist
hinsvegar ný þjóð vera að taka for-
ystuna hvað aflamagn varðar. Rétt
er þó að vekja athygli á að inni í
aflatölum er bæði sjávarfang og
fiskur ræktaður í vötnum og eldis-
kerjum. Kínverjar hafa alla tíð lagt
mikla áherslu á fiskeldi og verið
mestu framleiðendur í heimi á því
sviði.
Á síðustu 7 árum hefur heims-
afii vaxið úr rúmum 76 milljónum
tonna (1972) í 97.985.300 tonn á
árinu 1988. Hefur heildaraflinn
því aukist um 27.7% á þessu tíma-
bili eða um 4.1 % á ári. Af þessari
aukningu er hlutur eldisfisks
stærstur. Hefur fiskeldi vaxið á
þessu tímabili úr 8.496.200
tonnum 1972 í 13.424.600 tonn á
árinu 1988, eða um 58%, sem er
árlegur vöxtur um 7.9%. Af
84.560.700 tonnum af sjávarfangi
eru 52.862.100 tonn komin úr
Kyrrahafi. Atlantshaf leggur til
25.709.100 tonna afla og Ind-
landshaf 5.531.400 tonn.
Afgangurinn skiptist síðan á ýmis
innhöf. Árlegur vöxtur afla úr sjó
hefur verið 3.6% á síðustu sex
árum.
í töflu 1 má sjá að íslendingar
hafa hækkað um eitt sæti frá árinu
1987 og voru á árinu 1988 í 14.
sæti aflahæstu þjóða heimisins.
Þegar síðast voru birtar tölur um
heimsaflann í 8.tbl Ægis í fyrra var
þess getið að bráðabirgðatölur
Norðmanna bentu til þess að ís-
lendingar hefðu sennilega í fyrsta
sinn í sögunni náð því að verða
ofar Norðmönnum á þessum lista.
Nú hefur komið í Ijós að Norð-
menn vanmátu afla ársins 1988
um rúmlega eitt hundrað þúsund
tonn og sýna Norðmenn því enn
meiri afla en íslendingar.
Áður var getið um miklar sveiflur
í afla af ansjósu. í töflu 1 sést að
Perú hefur aukið afla milli ára um
rúmlega tvær milljónir tonna, sem
er jafnvel meira en aflaaukning
og 1988
árin
Kínverja. Hvernig þróun afla Peru'
manna hefur verið síðan 1988
hefur Ægir ekki spurnir af, en e
litið er til þróunar síðustu áratuga<
þá hefur þessi afli sveiflast mil1
1 og 12 milljóna tonna. Einnig ma
benda á að afli Bandaríkjanna
minnkar lítillega frá árinu 1987-
Bandaríkjamenn hafa á síðustu 1-
árum tvöfaldað afla sinn. Á árinu
1977 var afli Bandaríkjanna
2.980.438 tonn, en hafði á árinu
1987 vaxið í 5.986.120 tonn, eða
um rúmlega 100%.
Að síðustu er rétt að vekja athygl'
á minnkandi veiði S-Afríku sem
kemur í 19. sæti yfir þær þjóð'r
sem mestan afla draga úr sjó. At1
S-Afríku hefur minnkað um töluvert
á annað hundrað þúsund tonn fra
árinu 1987 og er það í stíl v'
minnkandi afla af S-Afríku ansjósu,
sem sýnd er í töflu 2 um mikilvæg'
ustu fisktegunda sem veiddar eru 1
heiminum. Fregnir hafa borist um
mikla ofveiði á þessari tegund úti
af ströndum Namibíu og aflinn
minnkaði um nærri þriðjung a
milli áranna 1987 og 1988. Lík-
legt er að íslendingar komi hér vi
sögu á næstu árum, en íslenskrt
fiskifræðingar fara fljótlega ti
starfa suður í Namibíu til a
aðstoða nýfrjálsa Namibíumem1
við að koma skipulagi á fiskveiðar
og rannsóknir á auðlindum þeirra
sem felast í hafinu við strendur
landsins.
Helstu tegundir í afla
1984-1988
í töflu 2 er samantekt þe55
magns sem veitt var úr tuttugu
mikilvægustu fiskstofnum heim5'
ins á árunum 1984—1988.
Alaskaufsinn trónar á toppnun1