Ægir - 01.08.1990, Blaðsíða 36
432
ÆGIR
8/90
LÖG OG REGLUGERÐIR
LÖG
um Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins
1. gr.
Stofna skal sjóð er nefnist Verðjöfnunarsjóður sjávarút-
vegsins. Hlutverk sjóðsins er að draga úr áhrifum verð-
sveiflna á sjávarafurðum á þjóðarbúskapinn.
2. gr.
Sjávarútvegsráðherra skipar sjóðnum fimm manna stjórn
til fjögurra ára í senn. Einn fulltrúi skal skipaður samkvæmt
sameiginlegri tilnefningu Landssambands íslenskra
útvegsmanna, Sjómannasambands Islands og Farmanna- og
fiskimannasambands íslands, einn samkvæmt sameiginlegri
tilnefningu hagsmunasamtaka í fiskiðnaði og þrír án tilnefn-
ingar. Sjávarútvegsráðherra skipar formann sjóðstjórnar.
Varamenn skulu skipaðir á sama hátt. Náist ekki samkomu-
lag um sameiginlega tilnefningu fulltrúa í stjórn skipar ráð-
herra hann án tilnefningar.
3. gr.
Verðjöfnunarsjóði skal skipt í deildir eftir tegundum
afurða. Sjávarútvegsráðherra tekur ákvörðun um deildar-
skiptingu sjóðsins samkvæmt tillögum sjóðstjórnar.
4. gr.
Greitt skal í Verðjöfnunarsjóð þegar markaðsverð afurða
í hverri deild er að meðaltali 3-5% hærra en staðvirt meðal-
verð (grundvallarverð) síðustu fimm árin og skal innborg-
unin vera 50% af því sem umfram er. Sjóðstjórn ákveður
fyrir hverja deild hvar 3-5% verðbilið er hverju sinni. Verð-
jöfnun sal miðast við útflutning og greiðslur innheimtar við
gjaldeyrisskil, þó ekki síðar en fjórum mánuðum eftir að
útflutningur átti sér stað. Sjóðstjórninni er þó heimilt að
veita lengri greiðslufrest standi sérstaklega á. Greiðslur
skulu renna inn á verðjöfnunarreikning á nafni viðkomandi
framleiðanda.
5. gr.
Greiða skal af verðjöfnunarreikningum sjóðsins þegar
markaðsverð er að meðaltali 3-5% lægra en staðvirt meðal-
verð (grundvallarverð) síðustu fimm ára og skal útgreiðsla
vera 50% af því sem á vantar. Sjóðstjórn ákveður fyrir
hverja deild hvar 3-5% verðbilið er hverju sinni. Greiðslur
skulu þó aldrei vera umfram það fé sem er inni á viðkom-
andi verðjöfnunarreikningi. Verðjöfnun skal miðast við út-
flutning. Greiðslur eru gjaldkræfar við gjaldeyrisskil.
6. gr.
Sjávarútvegsráðherra skal ákveða mánaðarlega fyrirfram,
að fenginni tillögu sjóðstjórnar, það hlutfall af andvirði sjávar-
afurða sem inn- og útgreiðslur skulu miðast við. Breytist það
hlutfall ekki innan mánaðarins enda þótt breyting verði á
því markaðsverði sem lá til grundvallar ákvörðuninni, sbr.
4. og 5. gr. Lánastofnanir skulu innheimta greiðslur til
sjóðsins skv. 4. gr.
Innstæður á verðjöfnunarreikningum sjóðsins teljast eign
hans en eru bundnar við verðjöfnun á afurðum þess fran\
leiðanda sem inneign myndaði. Sé félagi, sem á reiknmg
sjóðnum, slitið og það sameinað öðru félagi með þeirn
hætti að ákvæðum 56. og 57. gr. laga nr. 75/1981, um tekju
og eignaskatt, með síðari breytingum, sé fullnægt skal Pa°
félag, er við tekur, taka við rétti til verðjöfnunar af sérreikn
ingi þess félags sem slitið var. Sé rekstur einstaklings, setn
greitt hefur í sjóðinn, seldur er heimilt að kveða svo a a
innstæða á verðjöfnunarreikningi fylgi með í sölunni. V1
sama hætti getur innstæða á nafni einstaklings flust yí'r a
félag sem myndað kann að vera um rekstur hans. Látist em
staklingur, sem greitt hefur í sjóðinn, taka erfingjar hans vi
öllum réttindum sem hinn látni hafði áunnið sér gagnva
sjóðnum uppfylli þeir ákvæði laga þessara, nema um skulu
frágöngubú sé að ræða.
Verði framleiðandi gjaldþrota eða sé félagi slitið án þesS
að ákvæði 1. mgr. eigi við skal innstæða á verðjöfnunat
reikningi þess renna inn á óskiptan reikning Verðjöfnunat
sjóðs. Sama á við ef framleiðandi hefur ekki í sex ár fram
leitt sjávarafurðir til útflutnings.
Greiðslur framleiðenda inn á verðjöfnunarreikninga hja
Verðjöfnunarsjóði skulu koma til lækkunar á tekjum þeitta
á því ári sem framleiðsla á sér stað. Útgreiðslur af vero-
jöfnunarreikningum til framleiðenda skulu færðar til tekna a
því ári sem framleiðsla á sér stað.
Skylt er framleiðendum og útflytjendum sjávarafurða
ásamt flutningafyrirtækjum og lánastofnunum að veita
Verðjöfnunarsjóði allar þær upplýsingar sem hann kann a
leita eftir um söluverð, söluskilmála, tegundir, pakkningar-
vinnslustig afurða og annað það sem máli skiptir.
10. gr. ,
Stjórn sjóðsins er heimilt að fella niður inngreiðslur
Verðjöfnunarsjóð verði verulegur aflabrestur.
Fari samanlagðar innstæður einstakra deilda umfranl
30% af verðmæti útfluttra afurða viðkomandi tegundar sí
asta almanaksár er stjórninni heimilt að lækka inngreiÖ5|u
eða fella þær niður um tiltekinn tíma.
Stjórn sjóðsins er heimilt, þrátt fyrir ákvæði 4. og 5. &■'
að ákveða að verðjöfnun fyrir óunnar botnfiskafurðir ta
mið af verðjöfnun botnfiskafurða er undir aðrar deildir falla-
11. gr. .
Stjórn Verðjöfnunarsjóðs hefur yfirumsjóð með starfsen11
sjóðsins. Hún ræður starfsfólk til að annast daglegan rekstnr
hans eða semur um það við fjármálastofnanir eftir því sel11
hagkvæmt þykir. ,
Kostnaður af rekstri Verðjöfnunarsjóðs skal greiddur ‘
óskiptum reikningi sjóðsins. Sé rekstrarkostnaður meiri en
nemur innstæðu á óskiptum reikningi sjóðsins skal hontin1
skipt hlutfallslega niður á verðjöfnunarreikninga sjóðsins-
Innstæður á verðjöfnunarreikningum sjóðsins skulu avax
aðar á tryggan og hagkvæman hátt í erlendum gjaldeyn-