Ægir - 01.09.1990, Síða 15
9/90
ÆGIR
467
^ ntramt er nú að koma til sög-
nnar nýtt staðsetningarkerfi, svo-
,a sð GPS kerfi (Global Position-
. § System), sem byggist á send-
8um frá gervihnöttum og má nota
allan heim. Þá hefur Póstur og
komið upp fjölda stöðva á
röndinni til fjarskipta við skip á
$a sv*ðinu umhverifis landið, þar
I 111 koma mætti fyrir nauðsyn-
gum gagnaflutningsbúnaði fyrir
1 ynningakerfi. Þá kom almennt
§agnanet til sögunnar hér á landi
7rir nokkrum árum, sem gerir kleift
£ fiytja gögn milli landshluta án
ss a^ leggja í mikinn kostnað við
a leigja sérstakar símalínur. Síðast
en ekki síst heldur tilkynninga-
. yldan uppi vakt allan sólarhring-
'nn, þar sem fylgst er með ferðum
lskiskipa. Allir þessir þættir þurfa
a vera fyrir hendi í sjálfvirku til-
tynningakerfi.
^inna við sjálfvirkt tilkynninga-
erfi hófst í smáum stíl árið 1983 og
indist í fyrstu einkum að því að
a°na hvort fýsilegt væri að koma
UPP slíku kerfi í Ijósi þei rrar
stöðu, sem hér er fyrir hendi og
a Ur er lýst. Því var Ijóst, að við-
angsefnið snerist fyrst og fremst um
leita að tæknilegri lausn, sem
uPPfyllti þær kröfur, sem gera
verður til öryggiskerfis, án þess þó
kostnaður við uppsetningu og
^ekstur keyrði úr hófi. í þessu sam-
andi var ákveðið að koma upp
e,nföldu tilraunakerfi, sem nota
til að prófa og sýna helstu
e'8inleika sjálfvirks tilkynninga-
erfjs Þessum áfanga var náð í lok
arsins 1984 og haustið 1985 lágu
Vrir tillögur um útfærslu slíks kerfis
ng áætlaðan stofnkostnað sem voru
ynntar fjárveitinganefnd Alþingis
°8 Samgönguráðuneytinu. Þar sem
e'nsýnt þótti að mikill kostnaður
Þyrfti ekki að koma í veg fyrir að
slálfvirku tilkynningakerfi yrði
0rnið upp var hafist handa árið
um þróun fullkomnara kerfis,
Sern nota mætti til rekstrartilrauna.
nnið hefur verið að þessu við-
fangsefni allar götur síðan og hófust
tilraunir með þetta nýja kerfi vorið
1988. Síðan hefur verið unnið að
smíði fleiri tækja fyrir landstöðvar
og skipstöðvar jafnframt því sem
gerðar hafa verið tæknilegar endur-
bætur á búnaðinum. Þá hefur verið
unnið að því að undirbúa fram-
leiðslu skipstækjanna. Fyrstu tutt-
ugu tækin eru nú að koma úr
framleiðslu og verða væntanlega
sett í skip á næstu vikum. Þannig
er nú allt til reiðu að hefja upp-
byggingu þessa kerfis fyrir alla
strandlengjuna, en gera má ráð
fyrir að Ijúka mætti þessu verkefni
á fjórum árum.
Markmið og kröfur
Ljóst er, að helsta markmiðið
með því að koma upp sjálfvirku
tilkynningakerfi er að bæta úr
þeim takmörkunum, sem tilkynn-
ingaskyldan hefur búið við til
þessa dags. Fyrst og fremst er því
um að ræða, að:
Stytta verulega tímabilið milli
tilkynninga
Tryggja að tilkynningar berist
hratt og örugglega til miðstöðvar,
sérstaklega neyðartilkynningar
Gera reglubundið eftirlit að
mestu sjálfvirkt
Tryggja næga afkastagetu,
þannig að fylgjast megi með öllum
flotanum jafnvel þegar álag er
mest á kerfinu
Þessi markmið ráða miklu um
þær tæknilegu kröfur, sem gera
verður til kerfisins. Þannig er talið
nauðsynlegt, að ekki líði meira en
fimmtán mínútur milli tilkynninga
frá hverju skipi. Þessi niðurstaða
fékkst með því að kanna atburða-
rásina, sem fer af stað, ef ekki
heyrist frá skipi, þegar það er
kallað upp. Athuganir leiddu í
Ijós, að auðveldlega megi fylgjast
með öllum fiskiflotanum með
ofangreindum uppkallstíma, þótt
aðeins sé notuð ein fjarskiptarás.
Er þá gert ráð fyrir 1200 bitar/sek
gagnahraða og að flotinn sé þá
dreifður á hinum ýmsu miðum,
þannig að fjarskipti geti farið fram
samtímis á sömu tíðni, þar sem
nægilega langt er á milli stöðva.
Önnur mikilvæg krafa felst í því,
að kerfið geti svarað neyðarkalli
frá skipi án tafar. Þannig er talið
æskilegt, að ekki líði meira en 10
sek. frá því að neyðarskeyti berst
til landstöðvar, þar til því hefur
verið svarað frá miðstöð. Erfitt
getur reynst að uppfylla slíka
kröfu, þar sem leiðin milli fyrstu
landstöðvar og miðstöðvar getur
legið um nokkra tengipunkta.
Ljóst er, að ekkert öryggiskerfi
stendur undir nafni, nema því
megi treysta, helst án undantekn-
inga. Því hefur verið lögð mikil
áhersla á að allur búnaður sé sem
vandaðastur. Jafnframt er gert ráð
fyrir, að búnaður allra helstu
landstöðva yrði tvöfaldur, þannig
að einstakar bilanir geri stöð ekki
óvirka. Prófanir á kerfinu hafa ekki
hvað síst beinst að því að leiða í
Ijós hæfni þess við íslenskar
aðstæður.
Auk þess að flytja gögn til til-
kynningaskyldunnar er æskilegt
að kerfið geti nýst til almennra
gagnafjarskipta á milli skips og
lands, enda er slík þjónusta í fullu
samræmi við aðalhlutverk kerfis-
ins, sem gerir það að verkum, að
haldið er stöðugu sambandi við
skipin. Þannig mætti nota sjálf-
virka tilkynningakerfið til að flytja
ýmsar upplýsingar milli skips og
útgerðar og annarra aðilja í landi,
t.d.:
Upplýsingar um aflabrögð og
verðlag á fiskmörkuðum
Hvers konar upplýsingar um
rekstur skipsins, t.d. vegna við-
halds véla, olíunotkun o.s.frv.
Veðurgögn, mælingar á hitastigi