Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1990, Síða 16

Ægir - 01.09.1990, Síða 16
468 ÆGIR g/90 sjávar og önnur slík gögn frá skipum Veöurspár og viövaranir um stórviðri Hvers konar almenn skeyti sem senda þarf milli skips og lands Þetta hlutverk getur orðið mjög mikilvægt í náinni framtíð, tölvu- væðing um borð í fiskiskipum hefur aukist mjög hratt og þar með þörfin fyrir flutning á gögnum og upplýsingum milli skips og lands. Kerfislýsing Sjálfvirka tilkynningakerfið byggist einkum á eftirfarandi þáttum: Sjálfvirku staösetningarkerfi, sem veitir stöðugar upplýsingar um staðsetningu skipsins á stafrænu formi Gagnaneti með landstöðvum, gagnasamböndum og skip- stöðvum Miðstöð, sem tekur á móti og vinnur úr tilkynningum frá skipum, auk þess að stjórna kerf- inu Þessum þáttum verður nú lýst nánar. Staðsetningarkerfi Loran-C kerfið hefurverið notað af íslenskum skipsstjórnarmönn- um í hátt á annan áratug með góðum árangri. Nánast öll íslensk fiskiskip og flestir smábátar eru nú búnir slíkum tækjum. Kerfið má nota á öllum miðum og víðast nægir að gera mælingar í einni keðju til að fá nákvæma staðsetn- ingu að undanskildum geira norð- vestur af Snæfellsnesi. Flestar gerðir Loran-C tækja á markaðn- um eru nú með stöðluðum gagnat- engjum, þannig að í langflestum tilvikum má nýta Loran-C tæki sem eru til staðar um borð í skip- inu fyrir tilkynningakerfið. Þá er nú að koma til sögunnar svonefnt GPS gervihnattakerfi og eru nokk- ur íslensk skip þegar búin GPS tækjum. Þessi tæki gefa nánast sams konar upplýsingar um stað- setningu og Loran tækin og á sama formi. Sjálfvirka tilkynningakerfið getur því nýtt sér upplýsingar frá GPS án nokkurra breytinga. Gagnanetið Gagnaflutningur í sjálfvirka til- kynningakerfinu byggist á skip- stöðvum, landstöðvum og al- menna gagnanetinu. Skipstöðin er samsett úr fjórum einingum, þ.e. notandaeiningu< stjórneiningu, talstöð og spennu gjafa eins og fram kemur á mynu 1. Notandaeiningin, sem er eina tækið í brú skipsins, er búin lykl3' borði og tveggja línu LCD sNa' sem nota má til að fá upplýsin§ar um ástand kerfisins og sena stöðluð skeyti. Á hlið tækisins er stór rauður rofi, sem nota má til a senda neyðarskeyti. Þetta er gert með því að slá ákveðið á rofann< sem festist þá í ástöðu. Stjórnein- ingin sér um og stjórnar öllun1 samskiptum, hlustar eftir uppka'1 frá landstöð, les nýjustu staðsetn- ingu frá Loran (eða GPS) tækinm og setur saman og stjórnar útsend- ingu tilkynningaskeytis. Jafnfran1* gefur stjórneiningin viðvörun, t-O- ef neyðarskeyti berst frá öðru skip1 eða ekki heyrist frá landstöð. Skip' stöðin er í reynd almenn gagna' fjarskiptastöð, sem getur tengst tölvum eða öðrum stafrænum tækjum skipsins og m.a. Ie51 stöðu átta rofa, sem t.d. má nota til að fylgjast með aðvörunar- kerfum skipsins. Skipstöðin getur jafnframt virkað sem endurvarps stöð, þ.e. borið skeyti milli skip5 og lands eða milli skipa. Endur- varpi er stjórnað af miðstöðinni/ sem hefur upplýsingar um stao setningu allra skipa í kerfinu og velur þá leið sem nota skal hverju sinni til fjarskipta milli skips og lands. Landstöðvar kerfisins sjá um a flytja skeyti milli skips og lan 5 undir stjórn miðstöðvar. Talið er heppilegast að nota VHF tíðnu þ.e. metrabylgjuna, í þessu skynu enda þótt langdrægi slíkra stöðva takmarkist við sjónlínu. Af Þv| leiðir, að allmargar stöðvar þarf u að ná til hafsvæðisins næst strön inni eða allt að þrjátíu stöðvar- Langdrægi er þó allt að 70 sjo mílur til hafs þar sem stöðm stendur hátt yfir sjó. FjarskipÞ a metrabylgju eru hinsvegar árei Mynd I. Nýjasta gerð skipstöðvar fyrir sjálfvirka tilkynningakerfið

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.