Ægir - 01.11.1990, Page 8
568
ÆGIR
11/90
Sunnlendinga og á Fiskiþingi og í
aðalstjórn félagsins var hann full-
trúi Farmanna og fiskimanna-
sambands íslands.
Á því ári sem liðið er frá því
seinasta Fiskiþing var haldið hafa
8. íslenskir sjómenn látist við
skyldustörf. í hljóðri þökk bið ég
viðstadda að rísa úr sætum í virð-
ingarskyni við hina látnu.
Undirbúningur að 49. Fiski-
þingi hefur staðið í nær tvo mán-
uði. Margir fundir hafa verið
haldnir í fiskideildum, aðalfundir
sambanda og fjórðungsþing. Víða
hefur fundarsókn verið ágæt og er
ánægjulegt hve margir af þeim
yngri eru nú að bætast í hópinn.
Til þessa þings berast því mörg vel
undirbúin mál til meðferðar frá
öllum aðilum sjávarútvegsins.
Bestu þakkir færi ég gestum
okkar, sem í dag og á morgun
munu í máli sínu fræða okkur og
upplýsa og á þann hátt leggja
þinginu veganesti til umfjöllunar
en þeir eru sjávarútvegsráðherra,
fulltrúar frá Rannsóknastofnunum
sjávarútvegsins, Háskóla íslands
og Seðlabankanum.
Að undanförnu hefur látið
býsna hátt í ákveðnum hópi
manna, sem hafa haldið því fram
að skipulag í sjávarútvegi standi
lífskjörum á íslandi fyrir þrifum.
Ekki tókst að fá þá sem hæst hafa
látið til að koma hér í dag. En ég
þakka þeim er þorði.
í ályktunum 48. Fiskiþings í
fyrra kemur fram það álit að efla
beri starfsemi Fiskifélagsins fremur
en að draga úr henni. Lögð verði
áhersla á, að félagið lagi sig að
þörfum hvers tíma. Til að stuðla
að því var lagt til að 48. Fiskiþing
kysi milliþinganefnd er endur-
skoðaði lög félagsins. og skipulag
þess. Leitað yrði samstarfs við
sjávarútvegsráðuneytið að það til-
nefndi mann í nefndina og að
nefndina skipuðu fimm menn.
Þetta mál var tekið fyrir m.a.
fyrir áeggjan og endurtekið tilboð
sjávarútvegsráðherra á 47. Fiski-
þingi 1988 um aðstoð sjávarút-
vegsráðuneytisins við að laga
starfshætti félagsins betur að
kröfum nútímans.
Á því Fiskiþingi var milliþinga-
nefnd að skila frá sér endanlegum
tillögum, sem aðallega komu fram
við að breyta lögum félagsins.
Milliþinganefndin er skipuð fimm
valinkunnum mönnum. Fjórum úr
okkar röðum og þeim fimmta frá
sjávarútvegsráðuneytinu. Hún hóf
störf s.l. vetur og mun formaður
hennar skila áliti og tillögurn
þegar starfsemi Fiskifélags íslands
verður tekin fyrir á þinginu.
Leitað var álits margra aðila um
þjónustustarfsemi Fiskifélagsins.
Viðbrögð allflestra voru mjög já'
kvæð í garð félagsins og undir
strikaður er sá vilji að Skýrslu- °8
Hagdeildir verði efldar svo a
upplýsingar berist fyrr, en deild'r
þessar eru forsenda fyrir því, sem
gagna- og upplýsingabanki félagS'
ins byggir allt á og samtvinnast
starfsemi annarra starfsdeilda, u
miðlunar þeim fjölmörgu einstak -
ingum og stofnunum hérlendum
og erlendum sem til okkar leita-
Að sjálfsögðu kom fram gagnrým
frá örfáum aðilum. Eg segi -
„Aumur er sá, sem aldrei lær
gagnrýni fyrir störf sín". Þe5S
vegna þakka ég persónulega, þvl
ég álít þann vin er til vamms segn-
Ég færi sjávarútvegsráðherra
þakkir fyrir að hvetja til þessa
verks og milliþingamönnum ve
unnin störf og vænti þess að stör
Fiskifélagsins fái heiðarlega
umfjöllun á þessu Fiskiþingi.
Hér verður staðdrað við. En
ýmsum þáttum sjávarútvegsins eru
gerð skil í skýrslu minni til Fiski-
þings um starfsemi Fiskifélags
íslands á liðnu starfsári. Sú skýrs a
verður flutt síðar á þinginu.
Góðir þingfulltrúar. Þið hafi
sjaldan komið jafn vel undirbúnir
til þinghalds og nú. En þið eigi
eftir að fjalla um og taka á vi
kvæmum málum. Þess vegna e[
það von mín að sem fyrr komj
fram sá mikli styrkur, sem áva
hefur verið aðalsmerki FiskiþinS5,
Að lokum ber ég fram þá frómu
ósk, að þeir sem koma til með a
starfa hér og stjórna í framtíðinnj
megi eiga jafn gott og heiðarleg
samstarf og forverar þeirra í san1
skiptum við alla þá mörgu aðila e
störfin höfða til. 49. FiskiþinS er
sett.