Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1990, Síða 11

Ægir - 01.11.1990, Síða 11
JÍ/90 ÆGIR 571 a nauðsyn þess að nýta verður ^rænlandsgönguna til að byggja UPP þorskstofninn. Það er enn ^rýnna þegar haft er í huga að allir áfgangar þorsks frá 1986 hafa Venð slakir en veiðarnar munu ^Vggja á þessum árgöngum fyrri hluta næstu áratugar. Útlit er fyrir að ýsuafli fari í fyrsta sinn fram úr þeim mörkum Sem sett hafa verið og verði um &8-70 þúsund lestir á árinu. Haf- rannsóknastofnun hefur lagt til að ýsuafli næsta árs verði miðaður v>5 50 þús. lestir en 38 þúsund lestir fyrir fiskveiðitímabilið. Veruleg aukning hefur orðið í ufsaveiðum og má gera ráð fyrir a& aflinn verði hátt í 100 þúsund lestir samanborið við 80 þúsund 'estir á síðasta ári. Hafrannsókna- stofnun hefur lagt til að leyfilegur Iteildarafli af ufsa verði 90 þúsund lestir og af því magni verði veitt 65 t>úsund lestir á fiskveiðitímabilinu 1 ■ janúar til 31. ágúst. Um síðustu mánaðamót var karfaaflinn orðinn 64 þúsund lestir er> þar af var úthafskarfi tæpar 4 búsund lestir. Á sama tíma í fyrra var aflinn 61 þúsund lestir. Á síð- asta ári var karfaaflinn um 92 þús- und lestir en gera má ráð fyrir að l>eildaraflinn á þessu ári verði um 115 þúsund lestir. Leyfilegur heild- arafli þessa árs var 80 þúsund lestir og er lagt til að sama magn verði veitt á næsta ári. Af því verði 55 þúsund lestir veiddar til 31. agúst. Veiðar á úthafskarfa eru nú °rönar þáttur í rekstri nokkurra u,gerðarfyrirtækja. Ráðuneytið úefur á undanförnum árum styrkt Þessar veiðar með aflaheimildum í grálúðu en Ijóst er að ekki getur °rbið framhald þar á. Grálúðu- a,linn hefur dregist saman milli ara. Gert er ráð fyrir að aflinn á þessu ári verði um 35 þúsund lestir samanborið við 58 þúsund lestir árið á undan. Lagt er til að úeildarafli í grálúðu verði 30 þús- Ur>d lestir á næsta ári, þar af verði 27 þúsund lestir veiddar fyrir lok ágúst. í skýrslu Hafrannsóknastofnun- arinnar er lagt til að hámarksafli úr skarkolastofninum verði 10.000 lestir á árinu 1991 eða 6.300 lestir til ágústloka. Er mikilvægt að verða við tillögum stofnunarinnar ogákveða leyfilegan heildarafla úr þessum stofni. III. Ákvörðun hámarksafla 1991 Á grundvelli tillagna Hafrann- sóknastofnunar hefur verið tekin ákvörðun um hámarksafla af botn- fiski fyrir fiskveiðitímabilið frá 1. janúar til 31. ágúst á næsta ári. Leyfilegur heildarafli verður sem hér segir: Þorskur Ýsa Ufsi Karfi Grálúða Skarkoli 245 þúsund lestir 40 þúsund lestir 65 þúsund lestir 55 þúsund lestir 30 þúsund lestir 7 þúsund lestir Áður en til úthlutunar á afla- marki til einstakra fiskiskipa kemur verður .áætlaður hálfur línuafli í janúar og febrúar sem er utan aflamarks dreginn frá þessum tölum. Ákvörðun ráðuneytisins er að mestu leyfi í samræmi við til- lögur Hafrannsóknastofnunar. Vegna breyttra reglna um stjórn fiskveiða má búast við því að raunverulegur heildarafli verði í fyrsta skipti í bærilegu samræmi við upphaflegar ákvarðanir. Rétt er að ítreka að tillögur um þorsk- veiðar eru byggðar á þeirri for- sendu að ganga komi frá Græn- landi. Framangreind ákvörðun hlýtur því að koma til endur- skoðunar ef sú forsenda bregst. Eins og menn rekur minni til kom fram tillaga á síðasta Fiski- þingi um að breyta fiskveiðiárinu. Tillagan fékk hljómgrunn í ráð- gjafanefnd um mótun fiskveiði- stefnu sem og á Alþingi við af- greiðslu málsins. Breytingin hefur marga góða kosti í för með sér. Fram hjá því verður hins vegar ekki litið að hún skapar viss vandamál vegna úthlutunar veiði- heimilda fyrir fyrsta fiskveiðitíma- bilið sem nær frá 1. janúar til 31. ágúst. í greinargerð með frum- varpinu var gerð ítarleg grein fyrir þessum vandamálum og er því ekki ástæða til að endurtaka það hér. Ákvörðun um veiðar á úthafs- rækju verður tekin jafnskjótt og til-

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.