Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1990, Blaðsíða 21

Ægir - 01.11.1990, Blaðsíða 21
'1/90 ÆGIR 581 taeknina myndu spretta upp og yfirbjóða gömlu fyrirtækin um kvótakaup. Nýir gróðamöguleikar °g hagræðing í sjávarútvegi, sem ^argir geta leikið eftir, leiðir þannig ekki til viðvarandi hagnað- ar/ heldur fyrst til fiskverðshækk- "nar og síðan einungis til hækk- nnar á verði kvótans. útgerðin græða? Fyrst öll hagræðing í sjávarút- Vegi brýst fram í hækkuðu kvóta- verði, er spurningin ekki hvort lagt verður á veiðigjald, heldur ein- ungis hver fær það, fámennur hópur kvótaeigenda eða almenn- 'ngur í landinu. Það er augljóst að nienn sem vilja hefja útgerð, verða annað hvort að leigja kvóta a hverju ári og greiða þannig veiðigjald, ellegar kaupa varan- 'egan kvóta. Þeir slá þá lán fyrir varanlega kvótanum, og greiða sinn auðlindaskatt til útgerðarerf- 'ngjanna sem vexti og afborganir. Nú má enginn skilja það svo að ntér finnist útgerðarmenn eða afvinnurekendur 'yfirleitt eitthvað verri en annað fólk. Og ég hef svo sannarlega ekki á móti því að utgerðarmenn græði, því það er Þjóðinni fyrir bestu að duglegir nienn græði á vinnu sinni og fram- taki. En hvers framtak er það, Þegar fúnar bátskeljar seljast nú á uPpsprengdu verði? Það er einskis nanns framtak nema ef telja mætti aratuga skrif Bjarna Braga Jóns- sonar og Gylfa Þ. Gíslasonar, ehegar áróðursstarf Halldórs Asgrímssonar og Kristjáns Ragn- arssonar upp úr 1983. Það er a^veg augljóst að ef útgerðin fær kvótann afgjaldslaust til eignar um aha framtíð, þá fá menn í hend- urnar verðmæti sem þeir þurfa ekkert fyrir að hafa. Án þess ég telji mig hafa neitt einkaleyfi á eéttlaeti og siðgæði, þá finnst mér aiger óþarfi og ofrausn af almenn- 'ngi í landinu að taka ekki jafnan hluta af svo fyrirhafnarlausum gróða. Ég hef reynt að gera mér í hugarlund hve mikið sparast við þær breytingar sem reikna má að verði í útgerð og vinnslu vegna kvótans og frjálsara fiskverðs. Ég geri mér engar grillur um ná- kvæmnina í útreikningunum, en mér er ekki kunnugt um að aðrir hafi gert betur. Niðurstöðurnar gefur að líta í meðfylgjandi töflu. Það er vert að taka strax fram, að sparnarðarhlutföll eru valin af geðþótta og sá kostnaður sem lagður er til grundvallar er heildar- kostnaður veiða og vinnslu. Ég hygg að þriðjungs samdráttur skipastóls sé nokkurn veginn í takt við þær hugmyndir sem menn gera sér um hagkvæmustu flota- stærð, og mér finnst sennilegt að hagræðingarmöguleikar í vinnsl- unni séu jafnmiklir eða meiri. Það kann að virðast vafasamt að reikna með 20% launasparnaði í útgerð, þar sem skipverjar eru ráðnir upp á hlut. Því er til að svara að ég hef enga trú á að skiptaprósentan verði óbreytt hvort sem eignaréttur útgerðarinnar á kvótanum verður festur í sessi eða lagt verður á veiðigjald til almannasjóða. Ég ræði það aðeins nánar hér á eftir. Hagræðingin sem hér er lýst er ekki smá eða lítils virði. Innlendur kostnaður lækkar um svo sem 9 milljarða á ári og erlendur um 6 milljarða. Jafnvel þótt tölurnar væru svo sem þriðjungi lægri, væru þar samt háar. Tölur um kvótaverð sem þessi hagræðing gæti staðið undir fylgja með. Hagræðing og samsvarandi gróði mun að vísu ekki sjást í bók- færðri afkomu fyrirtækjanna meðan verið er að afskrifa verð- lausan og allt of stóran flota. Skag- strendingur og Samherji munu sjálfsagt sýna bókhaldslegt tap vegna smábátanna sem þeir eru að kaupa og afskrifa, þótt þeir stæðu vitaskuld ekki í kaupunum ef þau væru ekki í rauninni gróða- vegur. Hins vegar er hætt við að ýmsir sem eiga bát og kvóta, haldi áfram útgerð þangað til kemur að endurnýjun, jafnvel þótt hag- kvæmara væri að selja kvótann og leggja skipinu; jafnvel þótt rekst- Crunn- Þaraf Erlent Sparnað- Heildar- Erlendur tölur erlent hlutfall arhlutf. sparn- sparn- % % aður aður Útflutningstekjur 40.322 Útgjöld: Laun, hluturo.þ.h. 17.018 0 0,0 20 3.404 Olía 2.164 1.731 80,0 20 433 346 Veiðarfæri 1.511 1.057 70,0 20 302 211 Annar kostnaður 13.601 6.801 50,0 20 2.720 1.360 6% raunv. af skuldum 2.825 2.260 80,0 33 932 597 Afskriftir 4.257 3.406 80,0 33 1.405 1.124 Samtals 41.377 15.255 36,9 22 9.196 3.638 Samt. ágengi 1990 66.153 24.390 14.703 5.817 Kvótaleiga m.v. 600 þúsund tonn (gengi 1990) 24,50 kr./kg (sparnaður / 600 m. kg) Staðvirði m.v. vexti 7,5% 196.034 m.kr. Varanlegt kvótaverð 327 kr./kg (staðvirði /600 m kg) Afar lauslegar hugmyndir um líklegan sparnað í útgerð og fiskvinnslu miðað við gefnar sparnaðarforsendur. Byggt er á tölum frá 1987. Fjár- hæðir í milljónum króna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.