Ægir - 01.11.1990, Side 25
'1/90
ÆGIR
585
rúmum aldarþriðjungi síðar voru
umsvif hans, og síðar sona hans,
0r&in slík í sjávarútvegi, fisk-
v'nnslu o.fl. að þess eru engin
dæmi hér á síðari tímum. Kveld-
úlfur var með fiskverkun og fisk-
breiðslu víða í Reykjavík og næsta
"ágrenni s.s. á Eiðisgranda (1910-
1920), við Sjómannaskólann, í
Haga og á Seltjarnarnesi. Síldar-
bræðslur voru á Hesteyri og Hjalt-
eyri.
Kveldúlfshúsin við Skúlagötu
eru nú horfin. Þau urðu að víkja
Vir endurskipulagi byggðar í
^kuggahverfi. Ekki mun það hafa
verið létt verk fyrir niðurrifsmenn
Þeirra húsa að framkvæma það
verk, því burðarveggir húsanna
munu hafa verið styrktir með
strekktum stálvírum.
Verka Thors Jensens sér þó enn
stað. Heimili hans, Fríkirkjuvegur
stendur enn. Einnig Korpúlfs-
staðir og húsið að Lágafelli í Mos-
fellssveit, en þar bjó hann síðustu
®viársín. Þessar fallegu byggingar
eru góður minnisvarði um þennan
ntikla framkvæmda- og hugsjóna-
mann, sem lét sig ekki muna um
það að opna mötuneyti tyrir Reyk-
víkinga í spönsku veikinni árið
1918. Þar gátu allir sem vildu
fengið ókeypis máltíðir dögum
saman, eða svo lengi sem þörfin
var brýn. Thor Jensen lést að Lága-
felli þann 12. september árið
1947, 83 ára að aldri. Meðal
barna hans voru Ólafur Thors
síðar forsætisráðherra, Thor sendi-
herra, Richard og Kjartan, báðir
framkvæmdastjórar hjá SÍF um
árabil og Haukur framkvæmda-
stjóri Kveldúlfs i áratugi.
Fiskverkunin Sjávarborg var
rekin um árabil af Edinborgar-
verslun í húsi er „Hvítárvallabar-
óninn" Bollieau byggði á sínum
tíma sem fjós við neðanverðan
Barónsstíg. Aldrei kom þó til þess
að þar stæðu kýr í básum. Ævi
Bollieau lauk nokkrum árum síðar
á dapurlegan hátt í jarnbrautarlest
suður í Evrópu. Sjávarborg gerði
út fjölda þilskipa á sínum tíma.
Árið 1912 voru þau níu talsins.
Var afli þeirra verkaður hjá félag-
inu og ennfremur afli annarra
skipa, innlendra og erlendra.
Einar Finnbogason, fyrsti skipaði
yfirfiskmatsmaðurinn (1910) á
Norðurlandi, síðar verkstjóri og
fiskmatsmaður hjá Milljónafélag-
inu í Viðey, var verkstjóri hjá Sjáv-
arborg um tíma, en lengst af síðar
var þar verkstjóri Þórður Guð-
mundsson kenndur við Hól.
Breskur maður, Clifford Hobbs
hafði íiskverkun um tíma (um
1915) í og við Sjávarborg. Keypti
hann einkum fisk af norskum og
hollenskum línuveiðurum. Salt-
t’iskinn „ragaði" hann sjálfur og
þótti farast það verk vel úr hendi.
Hjá Edinborgarverslun vann um
sl. aldamót við fiskverkun kona að
nat’ni Guðríður Þórðardóttir. Fram
kemur í æviminningum Sigur-
björns heitins Þorkelssonar kaup-
manns „Himneskt er að lifa" (2.b.)
að hann hafi á yngri árum iðkað
einhverskonar lyftingar. Sigur-
björn var góður íþróttamaður á
sinni tíð og var einn af stoínendum
Iþróttafélags Reykjavíkur (ÍR).
Náði hann t.d. að lyfta 150 kg
með annarri hendi og sömu þyngd
lyíti hann með hálsinum. Með
tönnunum lyt’ti hann 100 kg.
'i'kverkuruirhús Kveldúlfs að Kveldúlfshöldn viö Skúhgötu um 1915. A myndinni má sjá (ernskonar flutningstæki: hand-
körur, hjólbörur, handvagna og þaö nýjasta á þessum tíma - btl. Úr Ijósmyndasafni Thors jensen, (TH.j.)