Ægir - 01.11.1990, Page 26
586
ÆGIR
11/90
smiðju við Skúlagötu er þar var
áður til húsa. Þar var síðar máln-
ingarverksmiðjan Harpa hf. með
starfsemi sína um áratuga skeið.
Húsin voru brotin niður 1988-
1989. Verkstjóri í fiskverkun
Iðunnar var lengst af Bjarni Árna-
son er áður hafði verið verkstjóri í
saltfiskverkun Kveldúlfs við Vatns-
geyminn. Kveldúlfur mun hafa
haft einhverja fiskverkunarað-
stöðu í og við Iðunnarhúsið um
tíma.
Fiskþurrkunarhús í Reykjavík 1925-30. (Kirkjusandur?) Ljósm. óþekktur.
Við Mjölnisveg (nú Skúlatún) '
húsi er liggur miðsvæðis við
götuna austanverða og hefur um
langt skeið verið eitt húsa véla-
miðstöðvar Reykjavíkurborgar,
var um skeið rekin fiskverkunin
Njörður hf. (Njarðarstöðin).
Félagið gerði út togarana Njörð og
Draupni. Skúli Thorarensen frá
Kirkjubæ á Rangárvöllum var
framkvæmdastjóri félagsins. Hann
varð síðar um skeið umsvifa-
mestur þeirra er fyrstir hófu skreið-
arverkun að nýju hér á landi að
frumkvæði Fiskimálanefndar árið
1935.
Fiskverkunin Otur, iðulega
kölluð „Mjölnisstöðin" eftir grjót-
verksmiðju er þar var áður starf-
rækt, var rekin um árabil á svæði
vestan við og næst húsi Mjólkur-
samsölunnar innarlega við Lauga-
veg. Félagið gerði út togarann
Otur. Ágústa Hróbjartsdóttir (f- a
Eyrabakka árið 1909) er starfaði
fyrrum í Oturstöðinni, lýsir erfiðri
vinnu fiskverkunarkvenna a
þessum árum í 75 ára afmaelis'
blaði Verkakvennafélagsins Fram-
sóknar (1989).
„Ég vann lengi í fiskverkunar-
stöð sem hét Otur og var til húsa
ofarlega við Laugaveginn. Ég er í
fiskvinnunni á árunum 1933—
1936 og um tíma unnum við
Guðný Árnadóttir saman þarna-
Þessa stöð áttu þeir Halldór í Há-
Guðríður sem fyrr er getið og var
frænka hans, lyfti 50 kg með litla
fingri! Það lék Sigurbjörn ekki
eftir. Ástæðulaust er að rengja
þessa frásögn, því sterkir menn
IJúga ógjarnan upp á sig ósigrum
og allra síst að gamlar frænkur hafi
borið þá ofurliði í kraftatökum.
Fiskverkun í Sjávarborg mun
hafa lokið um 1930. Rafmagns-
veita Reykjavíkur hefur lengst af
síðan haft þar birgðageymslu.
Fiskverkunin Iðunn var rekin
um nokkurt skeið i og við hús
samnefndrar klæða- og ullarverk-
Ur portinu milli aðalbygginga Kveldúlfs við Skúlagötu 1915-16. Tengiálman lá
milli efri hæða húsanna. Þar gátu fiskflutningabílar ekið á milli. Ljósm./TH.j.