Ægir - 01.11.1990, Page 29
11/90
ÆGIR
589
UPP það ólán? Þykjast þeir ekki
hafa gert nóg, að hafa »skaffað
okkur atvinnu?« Þeim mun finnast
það skylda okkar, að hafa skapað
beim auð og allsnægtir, þó við
uPpskerum heilsuleysi og þrælk-
Ur>, við þau hundakjör, sem við
verðum að lifa við frá þeirra hálfu.
Það er líka gaman að taka dæmi
um hugsunarhátt þessara »vinnu-
veitenda«. Einn dag í vikunni
kemur maður til að borga út
vinnulaunin. Hann stendur ekki
við lengur en það tekur, að greiða
út launin. En hvað skeður? Einhver
at verkastúlkunum þarf að fara úr
vinnunni til þess að hita upp her-
bergið, sem hann er í þessa stund,
Svo ekki slái að blessuðum mann-
inum!
Berið þetta nú saman við okkar
>>upphitun« þó lítið sé. Það sýnir
ionrætið og hugulsemina gagnvart
okkur verkakonunum í »Dverg«.
Ég fer nú að slá botninn í þetta.
hað ætti að vera nóg til að sýna
sPegilmynd af þeirri meðferð, sem
>>vaskastúlkur« verða að sæta af
húsbændum sínum. Það er okkur
vinnustúlkunum skömm, að líða
þetta ástand. Við verðum allar að
leggjast á eitt að þessu fyrirkomu-
úgi verði strax breytt, því það
gildir heilsu okkar og líf.
» Vaskakona«
Það hefur ekki verið neitt sæld-
arlíf að vera fiskverkunarkona á
Þessum árum. Sem betur fer er sú
v'mnuaðstaða og þrældómur sem
þarna er lýst liðin tíð.
Útgerðar- og fiskverkunarfé-
lagið „Ari fróði" sem gerði út
togarann Ara byggði fiskverkunar-
hús efst við Háteigsveg þar sem nú
stendur kirkja Óháða safnaðarins.
Stöðin gekk jafnan undir nafninu
"Arastöðin". Stakkstæðin sem
voru við Sjómannaskólann og
^atnsgeyminn voru reist í atvinnu-
hótavinnu á kreppuárunum.
Kveldúlfur hf. tók síðar við rekstri
þessarar stöðvar. Fiskverkunar-
húsin voru rifin um 1960 þegar
byggingarframkvæmdir hófust
vegna kirkjubyggingar safnaðar-
ins.
Fyrirtækið „Defensor" var
stofnað árið 1915. Það rak tölu-
vert umfangsmikla útgerð og fisk-
verkun sem fór fram í húsum sem
það byggði neðan Borgartúns,
skammt austan við Höfða. Stofn-
endur og helstu eigendur voru þeir
Matthías Þórðarson frá Móum, sá
er fyrstur gaf út tímaritið „Ægi"
árið 1905, síðar málgagn Fiskifé-
lags íslands, merkur rithöfundur
(m.a. „Síldarsaga íslands",) og
Magnús Magnússon fyrrverandi
skipstjóri. Sá síðarnefndi varfram-
kvæmdastjóri félagsins. Nafngiftin
„Defensor" átti sér skýringu.
Franskur barkur er bar þetta heiti
hafði legið við festar um nokkurt
skeið undan Rauðarárvíkinni og
verið notaður sem kolageymsla. í
ofsaveðri árið 1911 sleit hann upp
og rak á land í fjöruna undan
Rauðará, þar sem lengi var Skúla-
torg. Matthías frá Móum og
félagar keyptu skrokkinn á
strandstað og þar var hann rifinn.
Efnið úr honum notuðu þeir til
þess að reisa fiskverkunarhús fyrir-
tækisins svo og bryggju fyrir
neðan Borgartún. Fiskverkunar-
húsið stendur enn, en bryggjan er
Kveidúlfur hafði eigin fiskflutningaskip í förum milli landa. Hér liggur „Muninn"
á lognkyrru kvöldi á ytri-höfninni undan húsum félagsins við Skúlagötu. Ljósm./
TH.J.
Fiskverkunarhús Iðunnar við Skúlagötu 1910-14 (sfðar Málningarverksmiðjan
Harpa).