Ægir

Volume

Ægir - 01.11.1990, Page 50

Ægir - 01.11.1990, Page 50
610 ÆGIR 11/90 miklum afla af því þeir þora ekki að sleppa sér frá landinu. í sumar fórst fyrir vestan þilskip með 7 eða 8 manns einungis sökum þess, að enginn „Navigateur" var á skipinu og þannig eru mörg dæmi." Á Vestfjörðum, í kjördæmi Jóns forseta, var sjómannamenntunin í bestu lagi og þar var fyrsti reglu- legi sjómannaskólinn starfræktur frá 1852 til 1856 undir stjórn Torfa Halldórssonar, síðar á Flateyri við Önundarfjörð. En það var jafn- framt mjög eftirtektarvert að þar vestra var mestur þróttur í útgerð þilskipa og verslun; t.d. keypti Ásgeirsverslun á ísafirði árið 1894 fyrsta stóra millilandaskipið, sem var í eigu íslendinga, Ásgeir Ásgeirsson, sem var 900 lesta skip í förum milli ísafjarðar og Evrópu. Skipið sigldi með saltfisk Vestfirð- inga til Spánar og kom til baka hlaðið vörum frá Kaupmanna- höfn. í beinu framhaldi af stofnun Stýrimannaskólans í Reykjavík efldist mjög sjávarútvegur og sigl- ingar í höfuðborg landsins og um allt land; má hér minna á, að fyrsti togarinn, sem var sérstaklega smíðaður fyrir íslendinga, Jón for- seti, kom til landsins árið 1907 og árið 1914 var Eimskipafélag íslands stofnað. Forsenda þessarar miklu atvinnubyltingar var vel menntuð sjómannastétt, skip- stjórnar- og vélstjórnarmenn, sem kunnu að beita nýrri tækni við fiskveiðar og siglingar. Ef fjöldi nemenda er borinn saman við sveiflur í þjóðarhagsögu fer það saman að aukin aðsókn að skól- anum speglar betri afkomu sjáv- arútvegsins og þjóðarheildarinnar. Aðsókn í Stýrimannaskólann er nú betri en undanfarin ár. Hinn 1. september höfðu 155 nemendur sótt um skólavist; 133 mættu til leiks og skiptast þannig milli stiga: 1. stig 73 nemendur 2. stig 52 nemendur 3. stig_____8 nemendur ________ Samtals 133 nemendur Við skólann starfa nú auk skóla- meistara 13 fastir kennarar og 5 stundakennarar. Hið nýja kennslutæki, sigling^' samlíkirinn, sem StýrimannaskoF inn fékk á s.l. vetri, hefur valdio byltingu í tækjakennslu, en skol- ann vantar enn fiskveiðisamlíki ti að vera með sambærileg taeki og stýrimannaskólar í nágranna- löndunum. í lok skólasetningarræðu vitnað' skólameistari í ræðu Hallgn111^ Sveinssonar biskups, sem hann flutti við fyrstu skólasetningu 1- október 1891, en biskupinn lagöi út af latnesks orðtakinu; „Auður er afl framkvæmda", og „Mennt er máttur" Skólameistri sagði: „Nú eins og fyrrum vantar oss auð og þekk- ingu. Góðir og vel útbúnir skólar aðlagaðir þörfum þjóðarinnar, Útgerðarmenn og skipstjórar Dráttarbraut fyrir allt að 450 þungatonn. Pantið pláss tímanlega. Botnhreinsun og málun. Öll almenn viöhaldsvinna ásamt smíöi yfirbygginga og innréttinga. Leitiö upplýsinga og tilboða. Skipasmíðastöðin Dröfn h/f Strandgata 75, 220 Hafnarfiröi. Símar: 50393 - 50483

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.