Ægir - 01.11.1990, Qupperneq 52
612
ÆGIR
11/90
NÝ
FISKISKIP
Ásgeir Frímanns ÓF 21
5. september s. I. kom fiskiskipið Ásgeir Frímanns
ÓF 21 til hafnar í Reykjavík, en skip þetta var keypt
notað frá Noregi. Skipið sem áður hét Gáshólmur,
var smíðað árið 1986 fyrir Færeyinga hjá Solstrand
Slip & Baatbyggeri A/S í Tomrefjord, Noregi, smíða-
númer 49 hjá stöðinni. Skrokkur skipsins var smíð-
aður hjá Herefjord Slipp & Verksted A/S í Revsnes.
Skipið er tveggja þilfara sérbyggt línuveiðiskip með
línuvélasamstæðu og búið tækjum til heilfrystingar.
Ásgeir Frímanns ÓF kemur f stað Atlanúps ÞH 263
(21), 176 rúmlesta stálfiskiskips, smíðað í Noregi árið
1960, og hét upphaflega Auðunn GK.
Ásgeir Frímanns ÓF er í eigu Valeikar hf. á Ólafs-
firði. Skipstjóri á skipinu er jónas Kristjánsson og yfir-
vélstjóri Snorri Ólafsson. Framkvæmdastjóri útgerðar
er Helgi Már Reynisson.
Ásgeir Frímanns ÓF 21. Ljósmynd Harald M. Valderhaug.
Almenn lýsing:
Skipið er smíðað úr stáli samkvæmt reglum og
undir eftirliti Det Norske Veritas í flokki 4*
R280, Fishing Vessel, lce C,iJ» MV. Skipið er tveggí3
þilfara fiskiskip, búið til línuveiða, með perustefnu
gafllaga skut og þilfarshús og brú aftantil á efra þilfan-
Undir neðra þilfari er skipinu skipt með þrenuir
vatnsþéttum þverskipsþilum í eftirtalin rúm, talið
framan frá: Stafnhylki fyrir ferskvatn; tvískipt lest með
botngeymum fyrir brennsluolíu; vélarúm með fersk-
vatnsgeymum í síðum; og aftast beitufrystir ásamt
brennsluolíugeymum og stýrisvélarrými í skut.
Fremst á neðra þilfari er frystivélarými, og þar fyrir
aftan er vinnuþilfar með gangi s.b.- megin og aftast,
en íbúðarými er b.b.- megin við gang.
Framarlega á efra þilfari er stigahús með áföstu
frammastri, en aftan við skipsmiðju er yfirbygg'nS'