Ægir - 01.11.1990, Qupperneq 56
616
ÆGIR
11/90
Fiskilestar (frystilestar):
Lestarými undir neðra þilfari er skipt í tvær lestar,
þ.e. fremri lest (125 m3) og aftari lest (166 m3). Báðar
lestar eru gerðar fyrir geymslu á frystum afurðum, og
eru einangraðar með 200 mm polyurethan og
klæddar með vatnsþéttum krossviði og kældar með
kæliþlásurum. I fremri lest er lyfta sem flytur frystar
afurðir frá vinnuþilfari.
Ein lestarlúga er að hvorri lest og á efra þilfari eru
samsvarandi losunarlúgur, upp af lúgum á neðra þil-
fari. Fyrir affermingu er losunarkrani.
Vindubúnaður, losunarbúnaður:
Vindubúnaður er vökvaknúinn (lágþrýstikerfi) frá
A/S Hydraulik Brattvaag og er um að ræða línuvindu
og akkerisvindu.
Línuvinda er fremst s.b.- megin á vinnuþilfari,
gegnt dráttarlúgu. Vindan er af gerð CM2202-BR,
togátak 5 tonn.
S.b.- megin við fremri losunarlúgu er losunarkrani
frá HMF af gerð M 111K2, lyftigeta 11 tm.
Skoðun og viðgerðir
gúmmíbáta allt árið
Teppi og dreglar til skipa
ávallt fyrirliggjandi
GÚMMÍBÁTA
ÞJÓNUSTAN
Eyjaslóð 9 Örfirisey
Sími: 14010
Úr brú skipsins. Ljósmynd: Tæknideild /JS.
Á efra þilfari, í stigahúsi, er akkerisvinda af gerð
B3, búin tveimur keðjuskífum og koppi.
Rafeindatæki, tæki í brú o.fi:
Ratsjá: Furuno, FR 810 DA , 72 sml. ratsjá með
dagsbirtuskjá
Ratsjá: Furuno, FR 805 DA, 48 sml. ratsjá með
dagsbirtuskjá
Seguláttaviti: J.C. Krohn & Sons
Gyróáttaviti: Sperry SR-130
Sjálfstýring: Robertson AP9
Vegmælir: JRC, JLN 203
Miðunarstöð: Furuno, FD 171
Miðunarstöð: Taiyo, TD-L1100
Örbylgjumiðunarstöð: Furuno, FD 525
Loran: Tveir Furuno LC-90
Leiðariti: Furuno, GD 200, meðCD 141 litmyndskja
og MT 100 segulbandi
Gervitunglamóttakari: Furuno, FSN 70
Dýptarmælir: Furuno, FE 881 MKII (pappírsmælir)
Dýptarmælir: Furuno, FCV 201 (litamælir)
Talstöð: Skanti, TRP 8250, 250 W SSB mið- og
stuttby Igjustöð
Örbylgjustöð: Sailor RT 2047, 55 rása (duplex)
Örbylgjustöð: Skanti TRP 2500, 55 rása (simplex)
Veðurkortamóttakari: Furuno, FAX 108
Sjávarhitamælir: Furuno, TI-11D
Auk framangreindra tækja má nefna Vingtor kall
kerfi, Sailor R2022 aukamóttakara og Skanti R60-
vörð. Þá er í skipinu olíurennslismælir frá WiH11113
llskov og sjónvarpstækjabúnaður frá Elbex m
þremur tökuvélum og skjá í brú.
Af öryggis- og björgunarbúnaði má nefna Zofl
slöngubát, tvo 16 manna Viking gúmmíbjörgunar
báta, flotgalla og reykköfunartæki.