Ægir

Volume

Ægir - 01.06.1992, Page 20

Ægir - 01.06.1992, Page 20
300 ÆGIR 6/92 þorskafli mestu og leiddi þetta til þess aö veiðarnar urðu óhag- kvæmari en áður. Sú staðreynd að veiðiferðirnar styttust sýnir á hinn bóginn að skipin voru orðin fljótari í förum og fullkomnari, gátu m.a. verið að veiðum í verri veðrum en áður. IV Hér hafa verið rakin nokkur meginatriði í veiðisögu þýskra togara á íslandsmióum fyrir síðari heimsstyrjöld. Fram til þessa hef- ur þessari sögu lítt verið sinnt af íslenskum fræðimönnum og er þar mikill akur óplægður. Veiðar þýskra togara hér við land hófust fyrir alvöru skömmu fyrir síðustu aldamót. Frá 1903 jókst sóknin stöðugt, en féll niður á árum fyrri heimsstyrjaldar. Að styrjöldinni lokinni hófust veiðarnar á ný af auknum krafti og urðu brátt miklu meiri en þær höfðu verið fyrir stríð. Fram til 1930 jókst afli Þjóð- verja hér við land ár frá ári, en minnkaði síðan nokkuð á 4ða áratugnum. Var reynsla Þjóðverja í því efni hin sama og annarra þjóða er hingað sóttu á þessum tíma, en augljóst virðist aó þá hafi ýmsir helstu fiskistofnarnir verið teknir að gefa sig vegna ofveiði. Fróðlegt er að bera saman veið- ar Breta og Þjóðverja hér við land á þessum árum og kemur þá í Ijós að eini verulegi munurinn var sá að Bretar veiddu meira at’ flatfiski, Þjóðverjar af ufsa og karfa. Sam- anlagt veiddu þessar tvær þjóðir bróðurpartinn af öllum afla út- lendinga hér við land og flest árin var afli þeirra mun meiri en afli íslendinga sjálfra. Tilvísanir: 1. Þjóðólfur 27. tbl. XLI árg., 1889. 2. Jónas Jóassen í þingræðu, shr. Heimir Þorleifsson (1974): Saga |S' lenzkrar togaraútgerðar til 1917. 3. Ásgeir Cuðmundsson (1983): Saga Hafnarfjarðar I, 253. 4. Sama heimild, 255-257. 5. Um afla Breta hér við land á þess' um árum, sjá: Jón Þ. Þór (19831- Breskir togarar og íslandsmið 1889' 1916, 167 (tafla I). 6. Sama heimild, s.st. 7. Jahresberichte fur das deutsche FiS' heri 1924, 25-26. 8. Sbr. Bulletin Statistique 1930-1938- 9. Jahresberichte fúr das deutsche Fischerei 1924, 25. 10. Jahresbericht fúr das deutsche Fischerei 1937. 11. Jahresberichte fúr das deutsche Fischerei 1924-1927._________________ Höfundur er sagnfræðingur. ÚTGERÐARMENN ATH! Tökum að okkur allt almennt viðhald veiðarfæra. Eigum á lager flestar gerðir af vírum og keðjum. Auk annars efnis sem þú þarfnast til veiðanna. Viðgerðarþjónusta. Netagerð Höfða hf. v' Húsavík, sími 96-41999.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.