Ægir - 01.06.1992, Page 42
322
ÆGIR
6/9:
NÝ
FISKiSKIP
I þessu tölublaði Ægis birtast lýsingar á fjórum inn-
fluttum fiskiskipum, sem bættust við flotann á síð-
asta ári. Um er að ræða tvö sérhæfð línuveiðiskip,
annað með búnað til heilfrystingar, einn rækjutogbát
með frystibúnaði og álbát.
Skotta HF 172
Nýtt fiskiskip bættist við flotann 15. maí á sl. ári, er
Skotta HF 172 kom til heimahafnar sinnar, Hafnar-
fjarðar. Skip þetta, sem áður hét Imaq-Fisk, er keypt
frá Grænlandi og er smfðað árið 1986 (afhent í janú-
ar) hjá Solstrand Slip & Baatbyggeri A/S, Tomrefjord
í Noregi, smíðanúmer 43. Skrokkur skipsins var
smíðaður hjá Herfjord Slipp & Verksted A/S í Revs-
nes.
Skotta HF er annað skipið frá umræddri stöð 1 lS'
lenska fiskiskipaflotanum, hið fyrra er iínubáturino
Ásgeir Frímanns ÓF (sjá 11. tbl. ‘90). Á móti Skotto
HF hverfa úr flotanum Már GK 55 (23), 101 rúmlests
stálbátur, smíðaður í A-Þýskalandi árið 1960, °S
Sævaldur SH 219 (279), 9 rúmlesta furubátur srriið-
aður árið 1961. Auk þess hverfa úr rekstri tveir opn'r
bátar.
Skipið er tveggja þilfara frambyggt, sérbyggt 11
línuveiða með línuvélasamstæðu og búið ti/ heilfrýst'
ingar.
Skipið er í eigu Skottu hf., Hafnarfirði. Skipstjóri s
skipinu er Gerðar Þórðarson og yfirvélstjóri Hallgr"11'
ur Guðsteinsson. Framkvæmdastjóri útgerðar er Siþ'
urður Aðalsteinsson.
Skotta HF 172. Myndin er tekin er skipið bar nafnið Imaq-Fish.