Ægir - 01.06.1992, Qupperneq 54
334
ÆGIR
6/92
Rúna RE 150
29. júlí á sl. ári bættlst við flotann innfluttur álbátur,
Rúna RE 150. Báturinn sem áður hét Fredvang
Junior, er smíðaður árið 1988 (afhentur í mars) í
Noregi hjá Tomma Aluminium A/S í Husby, smíða-
númer 36.
Rúna RE er í eigu Svavars Ágústssonar, Seltjarn-
arnesi, sem er skipstjóri, og Hjartar Jónssonar,
Reykjavík, sem er vélstjóri. Rúna RE kemur í stað
Sæbjargar ST7 (314), 56 rúmlesta eikarfiskiskips,
sem smíðað var árið 1956.
Almenn lýsing:
Skipið er smíðað úr áli samkvæmt reglum og undir
eftirliti Skipskontrollen í Noregi, með eitt þilfar
stafna á milli og stýrishús á reisn framantil á aðalþil-
fari og skýli meðfram b.b.-síðu, og er búið til línu-,
neta- og dragnótaveiða.
Undir aðalþilfari er skipinu skipt með þremur
þverskipsþilum í eftirtalin rúm, talið framan frá: í-
búðir með botngeymum fyrir ferskvatn og sjókjöl-
festu; fiskilest með hágeymum fyrir brennsluolíu 1
síðum; vélarúm; og aftast stýrisvélarrými.
Fremst á neðra þilfari er stafnlyfting með stýrishus*
aftast á henni. Meðfram b.b.-síðu er skýli þar sen'
eru íbúðir, geymsla og vélarreisn. Frammastur er a
þaki stýrishúss og afturmastur í afturkanti skýlis.
Mesta lengd.......................... 15.05 m
Lengd milli lóðlína.................. 12.95 m
Breidd (mótuð)........................ 5.90 m
Dýpt að þilfari (mótuð)............... 2.20 m
Eigin þyngd............................. 34 t
Særými (djúpr. mótuð 1.87 m)....... 86 t
Burðargeta (djúpr. mótuð 1.87 m)... 52 t
Lestarrými.............................. 43 m
Brennsluolíugeymar..................... 8.0 m
Ferskvatnsgeymir...................... 2.0 m
Sjókjölfestugeymir..................... 3.7 m
Brúttótonnatala......................... 41 BT
Rúmlestatala............................ 40 Brl
Skipaskrárnúmer....................... 2150
Rúna RE 150 við komu til landsins.