Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1993, Blaðsíða 22

Ægir - 01.03.1993, Blaðsíða 22
DRÖFN h/f tilkynnir 'JjJ >JÍí\=jj‘í>iij‘snmn}ii Tökum aö okkur viögeröir, stillingar og niöursetningar á eftirtöldum véibúnaöi: • Dieselvélum ■ Stýrisbúnaöi i Afgastúrbínum ■ Vindum ■ Skrúfugírum ■ Dælum (margskonar) ■ Framgírum ■ Afréttingar ■ Kúplingum ■ Skrúfubúnaöi Mitsubishi sérfræðingar Einnig sjóðum við á skrúfuása og skipsskrúfur. Leitið tilboða - Reynið viöskiptin Vinsamlegast hafiö samband viö: Hjalta Sigfússon, síma 91-52015 og 91-50393 eöa Sigurö Sigurösson síma 91-654765, fax 91-654766. Markaðshorfur fyrir niðursoðna rækju eru góðar. Þeir erlendu við- skiptaaðilar senr keypt hafa niður- soðna rækju reikna með að halda sín- um hlut, en ekki er búist við verð- hækkunum í erlendri mynt. Varðandi grásleppuhrognakavíar er aftur á móti nokkur óvissa. Þegar þetta er ritað er enn óvíst um veiðar og er nrikil samkeppni ríkjandi milli innlendra og erlendra framleiðenda um hráefnið. Procordia-auðhringur- inn hefur gert samning við umboðs- menn sína hérlendis um kaup á meg- inhluta þeirra hrogna, senr væntan- lega mun veiðast við Islandsstrendur á næstu vertíð. Samningur þeirra hljóðar upp á allt að 20% hærra verð en var á síðustu vertíð. Arið 1992 var það besta í sögu þessa iðnaðar á Is- landi, og nam heildarútflutnings- verðmæti grásleppuhrognakavíars 606 milljónum króna. Með því að tryggja að hráefni þetta verði ekki flutt út til erlendra verksmiðja má tvöfalda útflutningsverðmætið milli ára. Ohætt er að fullyrða að hér er eini mögulegi vaxtarbroddurinn í ís- lenskum lagnretisiðnaði á yfirstand- andi ári. Islensku verksnriðjurnar sex, sem eru staðsettar víðsvegar um landið, eru reiðubúnar að gera bindandi samning við saltendur grásleppu- hrogna fyrir allt að 12.000 hrogna- tunnum, en það er um það bil það magn sem reiknað er með að muni veiðast. Ætla má að úrvinnsla úr því hráefni veiti um 200 manns atvinnu í 12 mánuði auk starfa í framleiðslu umbúða og þjónustu. Ætti það að vera kappsmál stjórnvalda, verkalýðs- félaga og annarra hagsmunaaðila að sanreinast um að tryggja aukna full- vinnslu grásleppuhrognakavíars hér- lendis. I nýlegum tillögum ASÍ/VSI er lögð áhersla á að tryggt verði að ís- lenskir kavíarframleiðendur hafi for- gang um kaup á grásleppuhrognum enda greiði þeir sambærilegt verð og erlendir franrleiðendur. Athyglisverð þróun hefur átt sér stað í vinnslu loðnuhrogna til kavíar- gerðar. Reiknað er með einhverri aukningu á yfirstandandi ári í út- flutningi á loðnuhrognakavíar, sem byrjað er að selja í stað grásleppu- hrognakavíars. Óhætt er að fullyrða að mikil verðhækkun á grásleppu- horgnum verði til að auka eftirspurn eftir loðnuhrognakavíar. Lokaorö Eftir mikla uppstokkun í rekstri lagmetisiðja víðsvegar um landið verður að tryggja að varanlegur rekstrargrundvöllur orðið fyrir hendi hjá þeim aðilum sem eftir standa i greininni. Brýnt er að samstarl um markaðsuppbyggingu takist að nýju eftir nokkurt skeið upplausnar og undirboða. Samhliða þarf að endur- vekja þróunarstarf í greininni þanmg að fjölga megi að nýju framleiðslu- tækifærum og styrkja innviði verk- smiðjanna. Höfundur er framkvæmdastjóri hjá Islensku Marfangi hf. og stjórnar- formaður Sölusamtaka lagmetis. 124 ÆGIR 3. TBL. 1993
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.