Ægir

Årgang

Ægir - 01.03.1993, Side 25

Ægir - 01.03.1993, Side 25
Línurenna Kristins Kristjánssonar vélsmiðs frá Nýhöfn, Melrakkasléttu, Norður-Þingeyjarsýslu. UPP úr honum. Það var ekki meira um vert en þegar Kólumbus lét eggið standa uppi á endann. En menn verða að skilja tímann og vanann þá þess að giska á, hvað menn hefðu gjört með það, þó ég hefði sagt þeim þetta. Ég fór ekki dult nteð það og sýndi sumum hver hugmyndin væri. ^egar ég var staddur í Reykjavík á kindbúnaðarsýningunni 1921, fór ég etnu sinni til Pétúrs Gauta, sem þá Var fáðherra, og sagði honum eitt- hvað um þetta og minntist á líkur þ'rir lögvernd. Hann sagði ntér að fora til Guðmundar Ólafssonar lög- fræðings síns. Upp úr því hafði ég lít- ó, nema það að hér væri engin Patentlöggjöf til. Skildist mér helst, “Ó þetta væri mest undir náð kon- Ungsins komið. Eg smíðaði þó á þessum árum einn pípukrans, sem ég kallaði, og stól 0g rennu. Þessi pípukrans var þannjg gjörður, að klippt var til úr Punnri galvaníseraðri járnplötu sem altmáni af sömu stærð og stamp- °tninn. Við bogalínuna, lítið frá rönd voru klippt löng og mjó göt eft- lr geisla miðpunktsins. Þá voru smíð- lr 12 rörbútar úr sama efni. Voru Pau ferköntuð og nærri eins há og stampurinn. Rifa' var eftir endilöngu törinu á miðri hlið þess, neðri end- 11111 aðeins mjórri. Klippt var svo úr Ueðri enda þess, að þegar því var sttingið niður í botnplötuna, varð 110 'kurt lauf í gegn til þess að krækja I ^ast- Síðan var hvert rör fest Parinig að öðru. Efst var hverju röri tUöðið urn stálvír. Þetta varð þá vel amfellt og féll í línustampinn. Þegar .111311 vat beitt, var beittur öngull lát- 1111 eftir rifunni í rörin, hver á sinn stað. Menn geta giskað á það að ég varð næsta hissa, vorið 1924, þegar Krist- ján Bergsson, sjálfur forseti Fiskifé- lagsins, ásamt Pétri á Oddstöðum, komu í Nýhöfn til mín. Þeir drukku kaffi. Að því loknu segir Kristján við mig: „Hafðir þú ekki hér einhvern útbúnað til þess að láta línu renna í sjóinn?" Og á lægri nótunum: „Viltu lofa mér að sjá það?“ Mér fannst eins og sakir stóðu ekkert ákjósanlegra en það að fá for- seta Fiskifélagsins í þetta mál. Við fórum út í skemmu mína. Tók ég þar stamp og pípukransinn. Við beittum lítinn línustúf með saltaðri síld. Tók þar næst stólinn og renn- una, kom stampinum fyrir á sínum stað, lét Iínuendann yfir rennuna og rétti léttleikamanni hann og sagði honum að hlaupa með hann frant bakkann eins og hann gæti. Þetta rann úr eins og leiftur. Eg spurði Kristján hvernig honum litist á þetta. Ekkert gaf hann út á það og fór sína leið. Mér fannst eftir á framkoma hans hjáræn og datt mér í hug að það stæði eitthvað í sambandi við það, sem ég sagði við Pétur Gauta. Líka hafði ég mínar skoðanir um það, að hann hefði lagt þetta langa lykkju á leið sína aðeins til þess að finna skólabróður sinn frá Gagnfræðaskól- anurn á Akureyri eins og hann lét í veðri vaka. A jólaföstunni, veturinn eftir (1.12.1925), fékk ég símskeyti frá Fiskifélagi íslands um að senda fyrir næstu vertíð 20 pípukransa í stampa úr steinolíufötum og tvær lagninga- rennur. Ég var ekki vel við látinn með þetta, því ég átti ekkert efni í það. Sendi ég þá mann með hest og sleða á Kópasker til þess að sækja bárujárn, sem þar var þá til. En það fór fyrir mér þá sem oftar, að ég varð að smíða áhöld til þess að koma 3. TBL. 1993 ÆGIR 127

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.