Ægir

Årgang

Ægir - 01.03.1993, Side 28

Ægir - 01.03.1993, Side 28
svo megi verða þarf skólabát. Undir- tektir skólastjóra grunnskólanna vítt og breitt um landið sanna þetta svo ekki verður urn villst. Það hefur verið sama við hvaða aðila hefur verið talað innan sjávarútvegsins sjálfs. Öllum ber saman um nauðsyn þess að Fiski- félag Islands reki og eigi skólabát, svo hægt sé að fullnægja þeirri þörf, sent er fyrir starfrækslu hans, svo sjó- vinnukennslan verði markvissari og raunhæfari. Stjórnendur Fiskifélagsins horfa mjög til þess að eignast 50-60 rúm- lesta vertíðarbát sem félagið eignaðist án endurgjalds. Er áætlað að rekstrar- kostnaður slíks báts gæd orðið 10-12 milljónir á ári. Eru miklir möguleikar á því að félagið geti eignast slíkan bát og hafa menn ákveðinn bát í huga sem er í góðu ástandi og hirðu. Skólabáturinn þarf að vera útbú- inn með línu- og netaspil, trollspil og handfærarúllur. Báturinn þarf að geta stundað veiðar með línu og netum, gildruveiðar, handfæraveiðar og helst tog- eða dragnótaveiðar. Gert er ráð fyrir að leyfi fengist að hafa tvo rétt- indamenn í áhöfninni. Báturinn yrði gerður út allt árið að frádregnum eðlilegum tíma í viðhald og eðlilegar frátafir. Miðað yrði við að fara í dags- ferðir yfir vetrartímann, en tveggja til þriggja daga róðra yfir sumartímann. Stefnt yrði að því að gefa öðrum aðil- um kost á afnotum af bátnum þannig að nýta megi hann sem bezt. Það er grundvallarforsenda til að Fiskifélag íslands geti rekið skólabát að félagið hafi öll urnráð yfir bátn- um, með öðrum orðum, að Fiskifé- lagið eigi og reki bátinn alfarið. Til þess að svo rnegi verða þurfa allar fjárveitingar til rekstrar bátsins að vera eyrnamerktar félaginu og að sjálfsögðu tryggt að fé verði veitt á fjárlögum sérstaklega í þessu skyni. Að endingu vil ég skora á alla Fiskifélagsmenn og velunnara félags- ins að styðja þetta brýna og nauðsyn- Iega mál, að Fiskifélag íslands eignist og reki skólabát. Efast ég um að nokkurt annað mál geti orðið Fiski- félaginu frekar til framdráttar og eflt starfsemi þess á ný en þetta, þótt þörfin hjá grunnskólunum fyrir að- gang að skólabát við sjóvinnukennsl- una sé aðalatriðið sem ber að hafa að leiðarljósi fyrst og fremst. Nemendur sjóvinnudeildar Álftamýrarskóla um borð í skólabót 1980. 130 ÆGIR 3.TBL. 1993

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.