Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1993, Blaðsíða 8

Ægir - 01.07.1993, Blaðsíða 8
Jósafat Hinriksson varð mikils heiðurs aðnjótandi í júnísíðastliðnum. Austfirskir sjómenn heiðruðu hann aushir í Neskaupstað á sjómannadaginn og á þjóðhátíðardaginn sœmdi forseti íslands hann hinni íslensku fálkaorðu. vel þegar ég talaði við þá og stóð alltaf fyrir mínu. Þeir gátu aldrei sett mig á gat. Ef þeir höfðu álit á mönnum voru þeir í uppáhaldi hjá þeim undir niðri. Þeir flögguðu ekki með það. Og þeir voru harðir. Bjarni var harður skip- stjóri. Samt var þetta ekki erfiður tími. Maður var harður og maður þoldi mikið. Og þetta var spennandi. Þá voru stoppin eftir hvern veiðitúr bara 24 tímar. Ef maður kom hálffjögur að nóttu þá var farið hálffjögur nóttina eftir. Ef maður kom hálffimm þá var farið hálffimm, ekkert verið að bíða eftir því að strætó væri kominn í gang. Það voru bara nákvæmlega 24 tímar og það var haldið. Það var úr- valsmannskapur öll árin sem ég var á Neptúnusi. Um það leyti sem ég fór í land voru þeir að byrja að koma þessir útiteknu af Arnarhólnum." Mokveiði á Hrauninu Jósafat segir að Bjarni hafi verið ótrúlega fiskinn. Þá var engin fisksjá í brúnni eins og nú, einungis dýptar mælir sem Ióðaði beint niður. „Hann kórónaði snilldina á vetrar vertíðunum á Hrauninu. Makalaus1 hvað karlinn fiskaði. Þegar komið var fram að miðnætti var dekkið orðiö smekkfullt. Þá varð að gera hlé á veiö um og fara í aðgerð. Og þetta var púra þorskur, enginn úrgangur að henda r sjóinn, allt púraþorskur. Allt. Það var eins og hann ætti ákveðna bleyð11 þarna, maöur. Og þegar hann var að moka þar upp þorski og ýsu þá vaí hann ekkert að spekúlera í miklu111 hraða. Hann vissi það, hann BjarU1 Ingimarsson, að feitur þorskur er latur og hann syndir ekki hratt. Hann t°8' aði hægt, fékk mikla opningu á troll'ú og fiskaði miklu meira en allir aðrU sem voru að keyra fram úr honUiu- Hann gerði grín að þeim svona." Fertugur í land Jósafat fór í land 1963. „Ég var bú' inn að fá nóg af sjónum, búinn a^ 286 ÆGIR JÚLÍ1993

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.