Ægir - 01.07.1993, Side 12
„Ég á fœreyska flotann.
Allir Fœreyingar sem fiska
í Barentshafi em með
okkar hlera."
Og hlerarnir rjúka út. Þessa dagana
eru margir kúnnar í Noregi á spýt-
unni. Það lítur út fyrir að við getum
selt stóra hlera í þrjá, fjóra eða fimm
norska togara í þessum mánuði."
Fjölskyldan stendur saman
Fyrstu árin var Jósafat allt í öllu í
rekstrinum. í mörg ár hafði hann ekki
verkstjóra. Konan hans kom einu
sinni í viku og sá um bókhaldið. Nú er
þetta breytt. Jósafat nýtur núna stuðn-
ings fimm sona sinna, stundum sex.
Einn þeirra er stjarneðlisfræðingur.
Hann sér um tölvukerfið. Annar er
rekstrartæknifræðingur og er föður
sínum innan handar við reksturinn.
Hinir eru menntaðir í ýmsum grein-
um. Allir eru þeir uppaldir í fyrirtæk-
inu.
Klárir í fimm tungumál
„Ef koma hingað útlendingar þá
erum við klárir í fimm tungumál hér.
Spánverjar, ekkert mál. Þab geta einir
þrír tekið Spánverja. ítalska, einn ef
ekki tveir. Skandinavíska, létt máh Og
allir góðir í enskunni."
Einn forstjóri
Þegar Jósafat er spurður hvort það
séu sjö forstjórar í fyrirtækinu, hann
og sex synir, þá er svarið stutt, laggott
og ákveðið: „Nei, ekki aldeilis. Hann
er bara einn."
Gott samband við
viðskiptavinina
Og lykillinn að velgengninni?
„Gott samband við viðskiptavinina-
Ég gef út bæklinga, skrifa bréf og nota
símann. Ég hringi daglega til Færeyja
og Noregs. Ég segi bara það er ekkert
meira en að hringja suður í Hafnar-
fjörð. Svo er ég alltaf að hugsa urn þa^
sem ég er að gera og passa að það se
ekki svindlað á mér."
Hleri nr. 6034
Það leynir sér ekki að Jósafat Hin-
riksson hefur trú á því sem hann er að
gera. „Það er bara þrjóska þegar menn
vilja ekki kaupa af mér hlera. Miklb
menn. En ég þoli það nú alveg. Het
erum við alltaf í stuði. Við vorum um
daginn að framleiða sexþúsundasta
hlerann. En sjábu hvað ég skrifaði hja
mér í morgun. 6034. Það var verið að
ganga frá 6034. hleranum í morgun-
Þetta eru mikil afköst. Enda halda
mínir menn vel áfram. Ég er með 25
manns í vinnu. Ég er bara meb dug-
lega menn og legg ekkert upp úr fjöld-
anum."
Fiskurinn róar
Breska læknatímaritiö The Lancet hefur birt grein um niðurstöður rannsókna á fiskneyslu sein
gerðar hafa verið í Edinborg í Skotlandi. Niðurstöðurnar benda til þess að aukin fiskneysla, einkum
neysla á feitum fiski svo sem síld, makríl, laxi og sardínum, verki róandi á fólk.
Rannsóknirnar benda til þess að fólk með ákveðna tegund af fitu í blóðinu, sem nefnd er triglycer-
ides, eigi vanda til ab vera árásargjarnara en annað fólk. Neysla á fisklýsi, einkum því sem auðugt er af
omega-3 fitusýrum, dregur hins vegar úr magni triglycerides í blóbinu. Vísindamenn í Edinborg
könnubu blóðsýni úr 1500 manns, miðaldra körlum og konum sem valin voru af handahófi, og báru
saman við skapgerðareinkenni þeirra. Niðurstöðurnar bentu til fylgni á milli árásargirni og áöur-
nefnds fituefnis í blóðinu. Vísindamennirnir telja að þau áhrif omega-3 fitusýranna að draga úr árás-
argirni geti verð ein af skýringunum á því ab aukin neysla þeirra dregur úr hættu á hjartasjúkdómum-
(Infofish Intemational)
290 ÆGIR JÚLÍ1993