Ægir - 01.07.1993, Síða 36
fiskanna, loðnu og síldar, en áður. Ennfremur vænt-
um við þess að upplýsingastreymi aukist, til dæmis frá
gervitunglum. Við notum gervitungl dálítið nú þegar
því við erum komnir með nokkur rekdufl sem senda
merki upp í gervitungl. Þannig fáum við nærri daglega
upplýsingar sem veita okkur mun öruggari og ná-
kvæmari vitneskju um breytingar á straumum en
áður, sem aftur hjálpar okkur mjög við að átta okkur á
reki seiða. Þannig er stöðugt verið að vinna að betri og
öruggari niðurstööum en áður var og við vonum að
skotum út í myrkrið fækki jafnt og þétt."
Rannsóknaskipin oröin gömul
„Þar sem við erum að tala um nýjar og betri rann-
sóknaraðferöir er ekki úr vegi að minna á að rann-
sóknarskipin okkar eru orðin æði gömul. Árni Friðriks-
son verður 26 ára í haust og Bjarni Sæmundsson er
þremur árum yngri. Ég held að nú sé komið að því að
við verðum að minnsta kosti að fara að huga að nýju
rannsóknarskipi, og það fyrr en seinna."
í hópi hinna bestu
Hvernig stendur Hafrannsóknastofnun sig í saman-
burði við hliðstœðar stofhanir í nálœgum löndum?
„Ég ætti nú ef til vill ekki að dæma um það. Systur-
stofnanir okkar, til dæmis í Noregi, Bretlandi og
Kanada, eru miklu stærri en Hafrannsóknastofnunin.
Þó held ég að við séum síður en svo taldir í hópi
hinna lakari. Ég tel mig geta fullyrt að við stöndum
framarlega á ýmsum sviðum, til dæmis í úrvinnslu
gagna og úttekt á fiskstofnum.
Ég get nefnt að á vegum Alþjóöahafrannsóknaráðs-
ins er starfrækt nefnd sem fjallar um aðferðafræði við
úttekt á fiskstofnum. Formaður hennar er Gunnar
Stefánsson tölfræðingur og hefur verið það í þó nokk-
ur ár. Það segir sitt um það sem við erum að gera hér.
Á sama hátt held ég að togararallið þyki mjög athygl-
isvert erlendis þó að ýmsir gagnrýni það hér innan-
lands. Ég held að mér sé óhætt að fullyrða að mæling-
ar okkar á uppsjávarfiskum séu með því allra besta
sem þekkist. Reyndar höfum við stundað bergmáls-
mælingar á síldarstofninum lengur og eigum miklu
betri gögn á þessu sviöi heldur en þekkist nokkurs
staðar annars staðar í veröldinni.
Þá má geta þess að úttekt okkar á skelfiskstofnum
og rækjustofnum er með því besta sem þekkist. Ég
varö til dæmis þeirrar ánægju aðnjótandi í fyrra að
leggja fram ritgerð eftir Hrafnkel Eiríksson fiskifrS^
ing um þessi efni á fundi Alþjóðahafrannsóknaráös
ins, en Hrafnkell gat ekki sótt fundinn. Niðurstöönr
og aðferðir Hrafnkels fengu svo góðar undirtektir
vinnunefnd Alþjóðahafrannsóknaráðsins á þessu sviö1
hefur nú gert þær að sínum. Þá hafa niðurstöður hval
rannsókna vakið mikla athygli og raunar gerbreG1
allri umræðu um hvali á alþjóöavettvangi. Ennfren1111
má minna á mælingar okkar á frumframleiðni.
rannsóknir ná yfir lengra tímabil en annars staöar
þekkist í Norður-Atlantshafi, eða allt frá 1958 og erU
samfelldar síðan. Þetta eru aðeins nokkur dæmi u111
Til
árangur, en að sjálfsögðu má ávallt gera betur.
dæmis er nauðsynlegt að efla vistfræðirannsóknir fra
því sem nú er."
Menntunarmól
ó réttri leiö
Hvernig þykir þér staðið að menntun fólks fyrir sjaV
arútveginn?
„Ég tel að betur hafi mátt standa að málum, en
hef þá trú að það standi mjög til bóta núna. í Háskól
anum á Akureyri er unnið mikið starf um þessar
mundir og við höfum tekið þá stefnu að styðja ræki
lega við bakið á þeim þar nyrðra, bæði með því að efla
útibú okkar á Akureyri og einnig fara bestu menn okk
ar norður til að kenna. Þá sýnist mér að það sé a&
takast aukin samvinna við Háskóla íslands hér syöra-
Samstarfið við skólann hefur verið mjög gott á sum
um sviðum, en mætti hafa verið betra á öðrum- Á|
mennt held ég að í menntunarmálum horfi nú
betri vegar. Ég er ekki í vafa um að aukin menntun a
eftir að efla starfsemina hjá okkur. Mjög miklu skiptlf
að fá fólk út í atvinnulífið sem hefur fengið verleg3
menntun á þessu sviði þannig að það skilji betur hlur
ina og geti metið betur þær niðurstöður sem koma fra
okkur."
Sterkur órgangur nýrra vísindamanna
Fyrir örfáum árum var ekki einn einasti stúdent a
læra fiskifrœði. Hefiir orðið breyting þar á?
„Þetta hefur gerbreyst. Við höfum hvatt líffræö1
stúdenta til þess að koma hingað til okkar. Þeir hafa
verið sumarmenn og nokkrir hafa fengið verkefni viö
fjölstofnarannsóknirnar. Nú er svo komið aö efnileg111
hópur stúdenta er á leiðinni í fiskifræði og skyld11111
fræðum. Eftir því sem úrvinnslan eykst þurfa meUn
314 ÆGIR JÚLÍ1993