Ægir - 01.07.1993, Blaðsíða 44
SJOMINJAR
Sjóminjasafnib er opió
alla daga í júní til sept-
ember frá klukkan 13 til
17 og í október til maí á
laugardögum og sunnu-
dögum frá klukkan 13 til
17. Einnig er safnið opn-
ab á öðrum tímum eftir
samkomulagi.
Fastir þœttir
Sjóminjasafnsins í Ægi
Stjórnendur Sjóminjasafns íslands
hafa þekkst bob ritstjórnar Ægis um
að birta fasta þætti um sjóminjar í
blaðinu. Hér birtist fyrsti þátturinn,
en hugmyndin með þáttum af þessu
tagi er að auka skilning á mikilvægi
þess að halda til haga munum og
minjum úr þessum grundvallarat-
vinnuvegi þjóðarinnar. Safnið mun
beina fyrirspurnum og ábendingum
til lesenda Ægis svo sem efni standa
til og eru lesendur hvattir til ab hafa
samband vib safnið, annað hvort
beint eða fyrir milligöngu blaðsins.
Þessi fyrsti þáttur Sjóminjasafnsins í
Ægi er almenn kynning á safninu.
Tengsl við fólk
í sjóvarútvegi
Þegar ritstjórn Ægis bauð Sjóminja-
safni íslands að vera með fasta um-
fjöllun um starfssvið sitt í ritinu tók
safnið tilbobinu fegins hendi og þakk-
ar gott boð. Sjóminjasafnið vill auka
tengsl sín við alla þá sem starfa að
veiðum og vinnslu sjávarafla og sigl-
ingar og hyggur gott til glóðarinnar
um samvinnu vib fólk á þessum vett-
vangi. Sjóminjasafnið tók til starfa
árið 1986 og heyrði í fyrstu undir sér-
staka sjóminjasafnsnefnd sem kom
því á fót og leiddi það fyrstu skrefin.
Síðastliðið haust var safnið síðan gert
að deild í Þjóðminjasafni íslands.
Safnib nýtur faglegrar stjórnunar
þjóðminjavarðar og þjóðminjaráðs og
nýir menn hafa séð um reksturinn fra
1. nóvember í vetur. Björn G. Björns-
son annast daglegan rekstur og kynn-
ingarmál og safnvörður er Jón Allans-
son sem lokið hefur námi í sagnfræði,
fornieifafræði og safnavísindum fra
Gautaborgarháskóla.
í gömlu húsi með sól
við Sögutorg
Sjóminjasafnið er til húsa 1
Brydepakkhúsi að Vesturgötu 8, r
hjarta Hafnarfjarðar. Húsið var reist
um 1865 og er því tæplega 130 ára
gamalt. Húsið var sérstaklega endur-
byggt fyrir safnið og er einkar viðeig-
andi umgjörð um muni og minjar fra
sjósókn fyrri tíma. Næstu nágrannar i
hjarta Hafnarfjarbar eru Byggðasafn
Hafnarfjarðar, í elsta húsi bæjarins
sem Bjarni riddari Sívertsen bygg^1
um 1803, og veitingahúsið A. Hansen
í gömlu Hansensbúð. Þessir þrír aðilar
hafa sameinast um að kynna starfsenn
sína ásamt ferðamálafulltrúa Hafnar-
fjarðar og kenna sig við Sögutorg
Bjarna riddara í Hafnarfirði. Sitthvað
er ab gerast á Sögutorgi alla sunnu-
daga í sumar, svo sem fornbíladagur,
hestadagur, markaðsdagur, og hefur
það haft góð áhrif á aðsókn að safn-
inu.
Safn allra landsmanna
Þótt Sjóminjasafn íslands hafi að-
setur sitt í Hafnarfirði er þab safn alls
landsins og hlutverk þess er aö skra,
varðveita, rannsaka og sýna sjóminja1
322 ÆGIR JÚLÍ 1993