Ægir - 01.03.1994, Qupperneq 28
Sjaldséðir fiskar árið 1993
Mjúkhaus, áöur óþekktur á íslandsmiöum
Að venju bárust á land alhnargar sjaldséðar fisktegundir á sl. ári, þar á
meðal ein sem ekki hefur greinst áður á íslandsmiðum, mjúkhaus sem veiddist
í apríl á grálúðuslóð vestan Víkuráls. Myndin hér að ofan er afmjúkhaus. Af
öðrum sjaldséðum tegundum má nefna flatnefsem veiddist í fyrsta sinn undan
Norðurlandi, annað eintakið afsœgreifa sem veiðist hér við land og vargakjaft
sem fannst fyrst sumarið 1990. Nokkrir fiskar eru enn ógreindir til tegundar,
til dœmis einn af mjóraœtt og nokkrir sogfiskar, en hér gœti verið um nýjar
tegundir að roeða. Tvö lengdarmet voru sett á árinu. 14 ára gömul skrápfúra,
52 cm löng, veiddist á Papagrunni og 49 cm sandkoli á Grindavíkurleir. Hér á
eftir fer ítarleg skrá um sjaldséða fiska sem veiddust árið 1993.
Eftir Gunnar Jónsson, Jakob
Magnússon, Vilhelmínu Vilhelms-
dóttur og Jónbjörn Pálsson.
Slímáll, Myxine ios
- Mars, 26 sjóm. SSA af Vestmanna-
eyjum, 824-915 m dýpi, lína.
- Mars, SV af Reykjanesi, 926-1223
m, botnvarpa, 21 stk.
- Apríl, út af Siðugrunni, 732-878 m,
50 cm, botnvarpa.
- Apríl, grálúðuslób vestan Víkuráls
eða út af Berufjarðarál, 988 m, 2
stk., botnvarpa.
- Maí, gráiúðuslóð vestan Víkuráls,
1006-1043 m, 40 cm, botnvarpa.
- Júní, grálúðuslóð vestan Víkuráls,
47 cm.
- Júlí/ágúst, grálúöuslóð vestan Víkur-
áls, 915-1098 m, 42 cm.
Að venju er slímáll talinn hér með
þótt ekki teljist hann til fiska í þrengstu
merkingu þess orðs. Slímáls varð fyrst
vart á íslandsmiðum árið 1973. Næst
fannst hann 1977, þá 1989 og síðan
1991 hefur hann veiðst hér árlega.
Brandháfur, Hexanchus griseus
- Október, út af Þorlákshöfn, 55 m,
138 cm, hrygna.
í maga voru tveir smáfiskar (strend-
ingar) og svampur (?). Þetta mun vera
fimmti eða sjötti brandháfurinn sem
fæst hér við land en fyrst varð hans
vart árið 1920.
Rauðháfur, Centrophorus squamosus
- Október, SA-mið (grálúðurall)
Flatnefur, Deania calceus
- Apríl, Öxarfjörður, 55 m, 88 cm
hængur, grásleppunet.
Flatnefur hefur ekki veiðst áður
undan Norðurlandi svo kunnugt sé.
Heimkynni hans hér við land eru á
djúpmiðum undan SA-, S- og SV-landi.
Maríuskata, Bathyraja spinicauda
- Mars, Rósagarður, 421-448 m, 4 stk.
Náskata, Raja (Leucoraja) fidlonica
- Mars, SV af Reykjanesi, 633-842 m,
botnvarpa, 2 stk.
Slímáll
28 ÆGIR MARS 1994