Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1994, Síða 10

Ægir - 01.04.1994, Síða 10
botnfiskafla eru þeir ab veiða sjö til átta prósent." Ekki sjálfgefiö aö Hafró viti allt En hvar á þá að skerða? Hvar á skerðingin að koma niður? „Þegar menn spyrja að þessu gefa þeir sér ab þeir viti allt þessir blessaöir drengir sem sitja á skrifstofum Haf- rannsóknastofnunar. Því trúi ég ekki. A meban menn geta ekki talið silunga í Mývatni, sem er hvergi nema rétt upp í pung á dýpt, þá tel ég úti- lokað ab menn geti talið þorskana í hafinu í kringum ísland. Það er alveg útilokab að sannfæra mig um það. Ég álít reyndar að þorskstofn og aðrir fiskstofnar séu ævinlega miklu stærri en tölurnar sem Hafrannsóknastofnun ber á borð fyrir okkur segja til um. Ég er sannfærður um þab. Ég trúi því ekki ab íslenski hrygn- ingarstofninn hafi á síðustu vertíð komist í litla vatnið sem er hérna fyrir ofan Vífilsstaöi. Ég bara trúi því ekki. Það er miklu meira af fiski í sjónum." Hafa reiknað sig út í horn En hvemig stendur á því að mennim- ir, með öll sín tœki og tól, komast að annarri niðurstöðu en þú? „Ég er þeirrar skoðunar að þeir séu hreinlega búnir að reikna sig út í horn. Þeir eru fastir í reiknimódeli sem tekur ekkert mið af raunverulegum abstæb- um. Þessar fyrstu fréttir frá Hafró, sem komu eftir togararallið, þess efnis að engin ástæða sé til þess að bæta við veiðiheimildir, þær þýða einfaldlega að fiskiríib sem blasir við sjómönnun- um þegar þeir fara á sjó komi þessu máli ekkert við." Fiskiríiö margfalt betra en áöur En hvaða rök hefur þú önnur en ein- bera tilfinningu? „Betra fiskirí. Það er margfalt fiskirí á mörgum stöðum í samanburði við fiskiríið í fyrra. Gamalt máltæki segir, að þegjandi gengur þorskur í ála. Ég trúi því staðfastlega að þorskur geti ver- ið að alast upp á stórum hafsvæðum án þess að við höfum hugmynd um það. Síðan leitar hann uppruna síns. Hann hefur þetta heimkomueðli og leitar á hrygningarstöðvar sínar og skilar sér, fyrr eða síðar. Það er skýringin á því að við fáum aftur þorsk frá Grænlandi þegar seyði hefur rekið þangað. Ég væri ekki hissa þó að þab mikið væri af fiski á stórum hafsvæðum langt fyrir norð- an land sem við hefðum ekki hug- mynd um. Menn eru farnir ab trúa því statt og stöbugt að þeir hafi nákvæma hugmynd um hvað má veiða mikið. Það er talað um gat á kerfinu ef smá- bátar veiöa svo og svo mikið. En hvað eru götin í náttúrunni sjálfri stór? Hvab gerist til að mynda ef náttúran lækkar hitastigið fyrir Norðurlandi um tvær til þrjár grábur? Hvað er það stórt gat? Hvab er það stórt gat ef selta dettur niður um einhver prósent í sjónum? Ég get ekki ímyndað mér annað en trillugatið sem þeir eru að tala um sé saumnálargat miðað vib hlöðudyr náttúrunnar sjálfrar." Trúarbrögö „Það er búib að rækta með þjóbinni ofsahræðslu við að drepa þorsk. Það hefur gengið prýðilega vel hjá drengj- unum við Skúlagötu. Því miður hafa of margir gleypt þetta kolhrátt án nokk- urrar gagnrýni. Ég nefni sem dæmi að það var fundur um daginn vegna hrygningarstoppsins svonefnda hér fyrir Suðurlandi, sem nú er að vísu orðið talsvert víðar. Þessi blessaðir fé- lagar okkar í hagsmunasamtökunum sögðu hver á fætur öðrum orðrétt: - Ja, við mælum með tillögum Hafrann- sóknastofnunar. Það datt engum þeirra til hugar að spyrja svo mikið sem einn- ar spurningar sem hefði getað hljóbab á þessa leið: - Getiði sagt eitthvað um hvort þið teljið einhvern árangur verða af þessu? Þetta er orðinn þvílík- ur heilaþvottur ab ég lít á þetta sem eitt meginvandamálið í öllu heila fisk- veiðistjórnunarkerfinu. Þetta eru orðin trúarbrögð." D 10 ÆGIR APRÍL 1994

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.