Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1994, Blaðsíða 14

Ægir - 01.04.1994, Blaðsíða 14
A að heimila fjárfestingar útlendinga í sjávarútvegi á Islandi? Innan sjávarútvegsins eru skoðanir skiptar um hvort leyfa eigi útlendingum að fjárfesta í ís- lenskum sjávarútvegsfyrirtækjum. Til eru þeir sem óttast að með því að leyfa slíkar fjárfestingar séu íslendingar að afsala sér yfirráðum yfir stærstu og langþýðingarmestu auðlind sinni í hend- ur útlendinga. Aðrir telja þennan ótta ástæðulausan og telja raunar slíka fjárfestingu erlendra aðila lífsnauðsynlega fyrir sjávarútveginn hér á landi, ekki síst í ljósi sívaxandi samvinnu og samkeppni í sjávarútvegi víða um lönd. Þá sé útveginum nauðsyn að geta aflað sér fjármagns víðar en á hinum agnarsmáa íslenska fjármagnsmarkaði. Ægir leitaði til fjögurra áhrifamanna í íslenskum sjávarútvegi og lagði fyrir þá spurninguna: „Á að leyfa fjárfestingar erlendra aðila í ís- lenskum sjávarútvegsfyrirtækjum?" Siguröur Einarsson Óskar Vigfússon Jóhann A. Jónsson Helgi Laxdal Siguröur Einarsson, framkvæmdastjóri í Vestmannaeyjum: „Ég tel að við ættum að hafa reglurnar með þeim hætti að unnt væri að vinna eftir þeim. Ljóst er að regl- urnar eru með þeim hætti nú að það er ekki hægt að fara eftir þeim og þá er um tvennt að ræða: Annars veg- ar að framfylgja núgildandi lögum, hins vegar að breyta þeim. Ég held að það sé hættulaust fyrir íslendinga þó að útlendingar eigi ein- hvern lítinn hlut í íslensk- um sjávarútvegsfyrirtækjum og tel raunar að slíkt gæti á margan hátt verið gagnlegt fyrir íslendinga. Menn verða að muna að þó að út- lendingar eigi hlut í íslensk- um sjávarútvegsfyrirtækj- um, þá þurfa þeir að fara eftir íslenskum lögum og reglum eins og íslendingar. Ég held þess vegna að allur ótti í þessu sambandi sé ástæðulaus." Oskar Vigfússon, forseti Sjómannasambands Islands: „Ég geri ráö fyrir að til lengri tíma litið sé okkur Is- lendingum nauðsynlegt að fá inn í landið erlent áhættufjármagn til þess að auka hagvöxt og hagsæld. Hins vegar geri ég mér grein fyrir því að erlendir fjárfest- ar verða ekki ginnkeyptir fyrir því að láta áhættufé af hendi nema í þá auðlind sem gæfi eitthvað af sér, þ.e. sjávarútveginn. Ef við leyf- um slíkt verður það að vera með ströngum skilyrðum, svo sem lagaákvæðum um að útlendingar geti ekki náð meirihlutaeign í sjávarút- veginum. Ég tel mestu máli skipta að okkur íslending- um takist að lyfta okkur upp úr þeirri efnahagslegu lægö sem við höfum verið í og hefur meðal annars endur- speglast í atvinnuleysi og slæmri afkomu fyrirtækj- anna. Þess vegna verður raunsæi að ríkja í þessum efnum og menn verða að leggja kalt mat á stöðuna og sleppa allri tilfinningasemi." Jóhann A. Jónsson, fram- kvæmdastjóri á Þórshöfn: „Ég tel að þróunin í sjáv- arútvegi og í heimsmálun- um sýni að við getum ekki til lengri tíma litið ætlað okkur aö koma í veg fyrir fjárfestingu erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegi. Hins vegar tel ég rétt að ganga mjög hægt um gleðinnar dyr í þessu eins og svo mörgu öðru. Við skulum líta rétt sem snöggvast á það sem er að gerast í sjávarútvegi okkar núna. Útgerðarfyrirtækin eru farin að sækja á fjarlæg mið og íslensk sjávarútvegs- fyrirtæki hafa í auknum mæli skoðað fjárfestingar- möguleika í öðrum löndum. Við eigum hér á landi mik- inn og góðan mannafla til starfa í sjávarútvegi, til sjós og lands, og ég tel að við ættum að hasla okkur völl í útlöndum meira en hingað til, einkum vegna þess að við íslendingar virðumst komnir aö endimörkum þess sem landhelgi okkar býður. Samhliða þessari þróun tel ég að þróunin verði sú að er- lend fyrirtæki skoði fjárfest- ingarmöguleika hérlendis, telji þau þá vera sér hag- stæða, og ég tel að við eigum ekki að leggja alfarið blátt bann við slíkri fjárfestingu heldur opna gættina, en fara varlega. Ég tel að þetta sé al- heimsþróun og held að við hljótum að geta haft stjórn á hlutunum hér heima hjá okkur. Við getum haft mik- inn hag af því að fjárfesta í 14 ÆGIR APRÍL 1994

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.