Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1994, Blaðsíða 15

Ægir - 01.04.1994, Blaðsíða 15
taekifærum annars staðar og vib getum líka haft hag af fjárfesting- um erlendra aðila hér." Helgi Laxdal, formabur Vélstjórafélags íslands: „Ef ég ætti að svara þessu án þess að taka tillit til veruleikans myndi ég svara þannig að slíkt Spurning mánabarins væri óæskilegt. Vib lifum af sjáv- arútvegi og ef útlendingar ættu stóran hluta af útveginum mynd- um við missa stjórn á rekstrinum og réðum þar af leiöandi ekkert yfir honum lengur. Aftur á móti, ef litiö er á veruleikann, erum við abilar ab EES og samkvæmt þeim samningum eiga útlendingar sama rétt og við til þess að reka fyrirtæki á íslandi. Við höfum hugsað okkur að útiloka útlend- inga frá sjávarútveginum. Það er hins vegar mjög erfitt. Fyrirtæki sem er í eigu annars fyrirtækis getur verið eignaraðili að enn öðru fyrirtæki. Eg sé því ekki í hendi mér hvernig hægt er ab útiloka eignaraðild útlendinga. Þá vantar fjármagn inn í sjávarút- vegsfyrirtækin eins og öll önnur fyrirtæki á Islandi og þar á ég einkum við áhættufjármagn. Eins og staðan er nú veitir okkur ekki af viðbótarfjármagni, en menn verða hins vegar að fara varlega í þessar sakir allar." □ PCB mengun í dýrum Nýlegar rannsóknir á dýrum sem gerðar hafa verið á Svalbarða leiða í ljós að í dýrun- um er jafnmikið af eiturefninu PCB og í hliðstæðum dýrategundum sem lifa í mestu iðnabarhéruðum Evrópu. Niðurstöður gáfu til kynna að í dýrunum voru allt að tuttugu milligrömm af PCB á hvert kílógramm, sem er langt yfir hættumörkum. Norway News Fagnar EES-samningnum Norskur skipstjóri segir í viötali við blaðið Fiskaren að það sé eins gott að EES-samning- urinn hafi tekið gildi. Ástæða þessara um- mæla er sú, að skipstjórinn auglýsti eftir mannskap á netabát sinn og eina umsóknin sem barst kom frá Englendingi. Þrátt fyrir umtalsvert atvinnuleysi í Noregi hefur geng- ið illa að fá sjómenn til starfa á fiskiskipum. Fiskaren ISLENSK HÖNNUN ISLENSK FRAMLEIÐSLA POSTUR OG SIMI Söludeildir í Ármúla 27, Kirkjustræti, Kringlunni og á póst- og simstöðvum um allt land. 9 RM 64L 1 Jyrir farsíma í skip og báta Nú er hægt að skrá einka- símtöl áhafna svo hver og einn greiði símkostnað í samræmi við notkun. ÆGIR APRÍL 1994 15

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.