Ægir - 01.04.1994, Qupperneq 22
Miklar sveiflur hafa veriö í grásleppuafla hér við land á
undanförnum árum eins og kemur fram á þessari skýringarmynd
(tunnur grásleppuhrogna)
co
o
o
in
co
1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993
Núna er búið að selja fyrirfram allt það
magn saltaðra grásleppuhrogna sem
fyrirséð er að fáist á vertíðinni. Á árinu
1992 voru flutt út tæp 617 tonn af
söltuðum grásleppuhrognum og var
útflutningsverömætið um 237 milljón-
ir króna, eða um 384 þúsund krónur
hvert tonn.
Aflahæstu staðirnir
Af einstökum stöbum á landinu
kom á árinu 1992 mest af hrognum frá
Stykkishólmi, eða 1232 tunnur. Af
Ströndum komu 1224 tunnur og 1097
frá Vopnafirði.
Kaviar tii 17 landa
Á árinu 1992 var flutt út íslenskt
lagmeti fyrir um 1,4 milljarða króna.
Þar af var kavíar í glösum úr grásleppu-
hrognum að verðmæti um 606 millj-
ónir króna.
Alls voru á árinu 1992 flutt út rúm
829 tonn af grásleppukavíar til sautján
landa, þar af átta utan Evrópusam-
bandsins. Til ESB-landanna fóru um
88% kavíarsins. Meðalverð fyrir hvert
tonn var um 731 þúsund krónur.
Sex kavíarverksmiðjur
í landinu hafa veriö starfandi að
undanförnu sex verksmiðjur sem fram-
leiða kavíar úr söltuðum grásleppu-
hrognum. Þetta eru Strýta á Akureyri,
Nóra í Stykkishólmi, Vignir Jónsson og
Icearctic á Akranesi, Fiskanes í Grinda-
vík og ORA í Kópavogi.
Bann eða ekki bann
Á síðasta ári varð mikil umræða hér
á landi um útflutning á söltuðum grá-
sleppuhrognum til fullvinnslu erlend-
is. Talsmenn niðursuðuverksmiðjanna
héldu því fram að með þessum hætti
væru flutt út tvö hundruð ársverk og
bentu á að íslenskir framleiðendur
væru vel samkeppnisfærir við erlenda
hrognakaupendur með tilliti til verðs.
Á tímabili stöðvaði viðskiptaskrifstofa
utanríkisráðuneytisins leyfi til útflutn-
ings á óunnum hrognum. Leyfi voru
síðan gefin út á ný.
Á móti boðum og bönnum
Af hálfu Landssambands smábáta-
eigenda var sú afstaða tekin að sam-
bandið hvatti félagsmenn sína til þess
að skipta við innlenda aðila, en kvaðst
á móti boðum og bönnum í þessum
efnum. Þar á bæ eru menn þeirra skoð-
unar að grásleppukarlar eigi að hafa
sjálfdæmi um það, með tilliti til verðs
og greiðslutrygginga, hverjum þeir
selja afla sinn.
Bann spillir mörkuðum
Af hálfu útflytjenda saltaðra grá-
sleppuhrogna voru sett fram þau sjón-
armið að bann við útflutningnum
hefðu slæm áhrif á áratugagömul við-
skiptasambönd íslendinga erlendis,
auk hugsanlegra viðbragða Evrópu-
sambandsins þar sem tollfrelsi er á
fullunnum kavíar innan sambandsins.
Frakkar borða mest af kavíar
Framleiðendur kavíars úr grásleppu-
hrognum hér á landi segja að hrognin
tvöfaldist að verðmæti við fullvinnslu
hér, en frá íslandi fara þau einkum á
markað í Frakklandi, á Ítalíu, Spáni og
í Bandaríkjunum. Um 70-80% fara á
markað í Frakklandi og mests hluta
kavíarsins neyta Frakkarnir einn mán-
uð á ári, þ.e. í desember. Eitthvaö fer
svo á markað fyrir páska.
ERUM KAUPENDUR AÐ
GRÁSLEPPUHROGNUM
FISKANES HF.
SÍMI 92-68566 - FAX 92-68742
PÓSTHÓLF 60 - 240 GRINDAVÍK
22 ÆGIR APRÍL 1994