Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.04.1994, Qupperneq 28

Ægir - 01.04.1994, Qupperneq 28
RÆKJAN ER EKKI ÓTÆMANDI AUÐLIND Rœkjan var nœstverðmœtasta grein sjávarútvegsins á síðasta ári og veiðar á rœkju hafa aukist hröðum skrefum undanfarin ár. Auknar rækjuveiðar haldast í hendur við samdrátt í öðrum fisktegundum. Snorri Snorrason á Dalvík hefur veitt rækju á djúpmiðum í hartnær aldarfjórðung. Eftir Þröst Haraldsson. Rækjuveiðar hafa aukist verulega á undanförnum áratug. Síðustu tvö ár hefur aflametið verið slegið og nú er svo komið að áttunda hver króna sem sjávarútvegurinn aflar verður til fyrir rækju. Rækjan er orðin næstverðmæt- asta tegundin sem veiðist við landið á eftir þorskinum og hefur skotið bæði karfanum og loðnunni aftur fyrir sig. í fyrra veiddu íslensk skip 52.000 tonn af rækju við landið og jókst afl- inn um 19% frá árinu 1992 sem einnig var metár. Verðmæti þessarar rækju var rúmir níu milljarðar króna og hefðu sumir látið segja sér það tvisvar eða jafnvel þrisvar fyrir nokkrum árum að rækjan ætti eftir að skapa þjóðinni meiri verðmæti en ýsan og ufsinn til samans. Horfurnar fyrir þetta ár eru engu síðri, það hefur verið mokveiði að und- anförnu á Dohrnbanka og ekkert lát viröist vera á veiðinni. Þetta kætir marga í þeim aflasamdrætti sem orðið hefur á undanförnum árum. Sennilega hangir aukin rækjuveiði og samdráttur í þorskafla líka saman, en við víkjum að því síðar. frá Dalvík. Innfjarðarækjan var þá far- in að gefa sig fyrir vestan og okkur dreymdi um að finna rækjumið hér í Eyjafirði. Árið áður höfðum við verið á þorskanetum austur af Grímsey þar sem við upplifðum þessa feikna ánetj- 50 tonna bát sem þótti stór fyrir rækjuveiðar. Menn héldu svo að ég væri að bila þegar ég fór að ræða það árið 1975 að kaupa togara til rækju- veiða. Tveim árum síðar keypti ég Dal- borgina og gekk um sama leyti inn í Söltunarfélag Dalvíkur sem er rækju- vinnsla. Árið 1978 leigði ég Hafró Dal- borgina í mánuð og þá fundum við miðin á Dohrnbanka. Raunar eru þau ekki beinlínis á Dohrnbanka heldur nokkru vestar, út undir miðlínu milli íslands og Grænlands. Baldur EA 108 í heimahöfn daginn áöur en haldiö var vestur á Dohrn- banka. Baldur er tæplega 500 tonn aö stærö og var áöur geröur út frá Grænlandi undir nafninu Nattoril- ik. Á innfelldu myndinni er Snorri Snorrason skipstjóri og útgerðar- maöur á Dalvík. Úthafsrækjuveiöar frá 1970 Fyrst ætlum við norður á Dalvík þar sem einn helsti frumkvöðuli úthafs- rækjuveiða býr. Hann heitir Snorri Snorrason og hefur stundað rækjuveið- ar með hléum allar götur frá 1970. Mestallan áttunda áratuginn var hann einn að fást við rækjuveiðar á djúp- miðum og mætti takmörkuðum skiln- ingi, en gefum honum orðið um það hvernig ævintýrið byrjaði. „Þetta byrjaði árið 1970, en þá gerð- um við út lítinn bát þrír saman héðan un af rækju. Við vorum vissir um að þarna væru mikil rækjumið, en gátum lítið sinnt því að leita. Sumarið 1970 leigðum við Hafrannsóknastofnun bát- inn í mánuð og leituðum að rækju hér í firðinum, í Skjálfandaflóa og Öxar- firði, en fundum ekkert fyrr en við reyndum fyrir okkur austan við Gríms- ey. Næsta áratuginn var ég mikið í rækju og oftast einn. Fyrst var ég á þessum litla bát, en 1973 fékk ég mér Á Dalborginni suöum við rækjuna um borð, en árið 1981 hættum við því og raunar gafst ég þá upp á að eltast við rækjuna. Þetta var hálfeinmanalegt og maður hafði engan til að bera sig saman við. Árið 1980 var litla sem enga rækju að hafa, hvorki hér fyrir norðan né á Dohrnbanka. Það.var al- veg sama hvar við reyndum fyrir okk- ur, við fengum bara fisk. Á þessum árum fórum við víða, allt norður undir Jan Mayen og út fyrir 28 ÆGIR APRÍL 1994

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.